Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Page 27

Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Page 27
Skýrsla formanns VFI 25 NIM fundi er fróðlegt að sækja, formenn skiptast á skoðunum og deila með sér reynslu og opna sýn, sem litlu félagi eins og VFI er bráðnauðsynlegt að fá, ekki síst nú við opnun umheimsins. „VFÍ á þessum systrafélögum mikið að þakka og við erum stolt af skyldleika- tengslum við þessa góðu vini í norðri“, segir í niðurlagsorðum Karls Omars Jónssonar í grein um NIM-94, sem hann skrifaði í VT-fréttir í september 1994. 7.1 Gestaaðild VFI, SV og systrafélögin á Norðurlöndunum gerðu á sínum tíma með sér samning um gesta- aðild. Skv. samningnum getur félagsmaður í verkfræðingafélagi móðurlandsins, hér VFÍ, sótt um gjaldfría gestaaðild að verkfræðingafélagi annars Norðurlands t.d. Danmerkur, ef hann dvelur þar um skeið, en greiðir þá fullt félagsgjald til móðurfélagsins. Gestaaðildin gildir í eitt ár, en hægt er að framlengja hana um eitt ár í viðbót. Tvö ár í allt er hámark. Gestaaðild veitir full réttindi i félagi gestgjafaþjóðarinnar, auk réttinda þeirra sem móðurfélag veitir. Engir gestameðlimir eru í VFI sem stendur. 8 Samstarf viö TFÍ Þann 1. janúar sl. flutti Tæknifræðingafélag Islands starfsemi sína í Verkfræðingahús. Ekki er um sameiningu félaganna að ræða, heldur samrekstur á skrifstofuhaldi og húsnæði. Formenn og varaformenn félaganna skipa yfirstjórn skrifstofunnar og til hennar má vísa málum ef til ágreinings kemur. Framkvæmdastjóri er einn og hinn sami fyrir báða aðila. Bókhald hvors félags fyrir sig er aðgreint en leitast er við að ná í samrekstri sem mestri hagkvæmni. Samþykkt var að miða sameiginlegar greiðslur við höfðatölu þeirra félagsmanna sem fullrar þjónustu njóta. Skiptingin árið 1994 var samkvæmt þessu VFI með 63%, en TFI með 37%, en verður í ár VFÍ með 64%, en TFÍ með 36%. Samráðsfundur VFI og TFI var haldinn 2. desember 1994, sá fyrsti sem TFI býður til í Verkfræðingahúsi. Reynslutími á sameiginlegum rekstri á skrifstofunni var þá orðinn tæpt ár og sagði formaður TFÍ Gunnar Sæmundsson, að samstarfið hefði gegnið vonum framar, hagræðing hafí tekist og spamaður augljós og þá sérstaklega hjá VFÍ. Stjórn VFÍ er því sammála að samstarfið hafi farið vel af stað og sparnaður er augljós, þegar til lengri tima er litið. Fjárfesta þurfi í einu og öðru eins og gengur til þess eins að mæta auknu álagi sem samstarfi fylgir, en frá því hefur verið greint hér að framan. Stjórn VFÍ varar við að fara of greitt af stað. Næstu skref geta orðið að sameinast um menntastefnu, útgáfu- mál, kynningarmál o.fl. nefndarstörf þar sem stéttimar eiga samleið. Það sjónarmið kom fram á samráðsfundinum að sameining VFÍ og TFÍ væri það langt komin að ekki yrði aftur snúið og að sameining félaganna gæti orðið á undan sameiningu í einn skóla. Einnig var vakin athygli á því varðandi stefnumótun félaganna, að til eru stéttir eins og iðnfræðingar o.fl., sem ekki hafa félög og þar gæti verið óplægður akur fyrir félög tæknimanna. Grundvallaratriði fyrir góðu samstarfi og sameiningu í framtíðinni er að samstaða náist um stefnu í menntunarmálum stéttanna, en félögin hafa eins og menn vita samþykkt sameigin- lega menntastefnu, sem getið er um fyrr í þessari ársskýrslu. Félögin hafa samvinnu um útgáfu VT-frétta. Sameiginlegum kaupsamningi tímaritsins Arkitektúr, Verktækni og skipulag, var sagt upp í nóvember sl.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212

x

Árbók VFÍ/TFÍ

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók VFÍ/TFÍ
https://timarit.is/publication/899

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.