Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Page 49
Skýrsla formanns VFÍ 47
15 Aðrar nefndir
15.1 Starfsmiðlun VFÍ og SV
Verkfræðingar hafa hin síðari ár illu heilli kynnst atvinnuleysi. Þetta er ný reynsla fyrir stétt-
ina og í sameiningu skipuðu VFÍ og SV starfsmiðlunarnefnd verkfræðinga.
Nefndin hóf störf 1992 og mótað sér fljótlega þá stefnu að megináherslu bæri að leggja á
að aðstoða menn í atvinnuleit. Utbúin voru upplýsingablöð senr geynra góð ráð um starfsstof-
ur, ráðningastofur o.fl. Nefndin taldi rétt að byggja mest á upplýsingamiðlun og aðstoð, en
ekki beinni atvinnumiðlun. Nefndin hefur lítið starfað í ár, enda vann hún afar markvisst og
vel og hafa þau gögn sem útbúin voru komið sér vel, standa enn fyrir sínu og eru talsvert
notuð.
15.2 Verkfræðingatalsnefnd - ritnefnd Verkfræðingatals
Verkfræðingatal var síðast gefið út árið 1981. Aður höfðu verið gefm út verkfræðingatöl árin
1956 og 1966. Hin síðari ár hefur verkfræðingum fjölgað nrjög og rneira en VFÍ hafði gert
sér grein fyrir.
A starfsárinu sem nú er að ljúka verður að taka sérstaklega fram og þakka, mikið starf rit-
nefndar Verkfræðingatalsins. Nefndin hefur vikulega haldið langa vinnufundi, yfirfarið nafna-
skrár og leitað uppi nöfn hugsanlegra verkfræðinga á bókasöfnum og víðar. Starfi nefndar-
innar er hvergi nærri lokið og Ijóst að VFÍ fær þessum ágætu mönnum seint fullþakkað það
sjálfboðaliðastarf sem þeir hafa tekið að sér að vinna fyrir verkfræðistéttina.
í fyrstu var talið að æviskrár yrðu um 1300-1600, en nú hefur komið í ljós að þær verða
a.nr.k. á bilinu 1950 til 2000. Sjá nánar hér að frarnan um nýtt verkfræðingatal.
Ritnefndina skipa:
Haraldur Asgeirsson formaður Guttormur Þorrnar
Páll Flygenring Ingi U. Magnússon
Kristján Már Sigurjónsson
Undirritaður hefur verið útgáfusamingur við Þjóðsögu hf. Ritnefnd VFÍ ritstýrir verki f.h.
félagsins, en Ættfræðistofa Þorsteins Jónssonar hf. mun sjá um ritstjóm f.h. Þjóðsögu hf..
15.3 Gerð myndbanda um eldri félagsmenn
Á seinasta starfsári lét stjórn gera myndbönd urn líf og starf tveggja félagsmanna, þeirra
Jóhannesar Zoéga fyrrum hitaveitustjóra og Guðmundar Einarssonar vélaverkfræðings. Vonir
stóðu til að endanlega yrði gengið frá nryndgerð þessari á starfsárinu nú, en svo virðist sem
það ætli ekki að takast.
Vonir standa til að unnt verði að vinna áfram á þessari braut á komandi árum.
15.4 Útflutningur tækniþekkingar
Sem fyrr segir hefur það verið baráttumál stjórnar VFl á starfsárinu að efla útflutning og
markaðssetningu á tækniþjónustu. Deildir félagsins og hagsmunafélög hafa sýnt þessu nráli
mikinn áhuga og eiga fulltrúa í nefndinni.
Möguleikar á útflutningi tækniþekkingar fyrir verkfræðinga eru fyrir hendi, en mörg ljón
eru á veginum.
Nefndin sendi stjórn VFÍ tillögur um ýmsar aðgerðir til að efla útfluting á tækniþekkingu