Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Page 56
54 Árbók VFÍ/TFÍ 1994/95
áhugamannafélög sem kaupa oft skrifstofuþjónustu hjá t.d. Stjórnunarfélaginu sem er ódýr
vegna þess að hún fellur þægilega inn í þeirra starfsemi. Spurningin er hvort Verkfræðinga-
félagiö gæti ekki einnig boðið svona þjónustu.
Rétt er að geta þess að sambærileg félög við VFÍ hérlendis virðast ekki vera rekin með
lægri félagsgjöldum. Þau virðast yfirleitt síst standa betur en Verkfræðingafélagið og jafnvel
líta til þess sem fyrirmyndar.
Félagsgjöld verkfræðingafélaganna á Norðurlöndum eru svipuð og hjá VFÍ. Hjá stærri
þjóðum finnast hins vegar sambærileg félög með mun lægri félagsgjöld.
Verkfræðingafélagið býr yfír gríðarlegu afli til að láta gott af sér leiða fyrir þjóðfélagið
okkar og til eflingar verkfræðistéttinni. Félagið á glæsilega húseign, hið ákjósanlegasta
félagsheimili fyrir viðamikla starfsemi og skrifstofúhald. Félagið hefur á að skipa hæfu starfs-
liði og miklum Ijölda afburðahæfra sjálfboðaliða. Skuldastaða er léttbær og stutt í að eignir
skili arði. Félagið er ákjósanlegt tæki til að vinna að framgangi verk- og tækniþekkingar í
landinu.
Nefndarálit stefnumörkunarnefndar er afar athyglisvert og lesning sem hverjum félags-
manni er hollt að hafa í huga. Alitinu fylgja tillögur til úrbóta og eitt og annað er nú farið að
gera, beinlínis í framhaldi af þeim tillögum sem fram voru settar í nefndarálitinu.
15.7 Frá torfkofa til tæknialdar - verkfræði í 100 ár
Nú er lokið gerð myndarinnar sem fjallar um störf verkfræðinga á íslandi allt frá því fyrsti
verkfræðingurinn hóf hér störf fyrir rúmum 100 árum síðan. Verkfræðingafélag Islands stóð
fyrir gerð myndarinnar í samvinnu við 10 styrktaraðila. Til verksins var ráðið fyrirtækið Nýja
Bíó. Myndin sem er 60 mínútur að lengd skiptist í 2 hluta, þ.e. fyrir og eftir seinna stríð.
Segja má að frumsýning myndarinnar hafi nú farið fram á þessum aðalfundi og sýning í sjón-
varpinu verður væntanlega á vormánuðum.
Vífill Oddsson og Sveinn Ingi Olafsson fylgdu þessu verki úr hlaði og hafa gætt þess vel
við gerð myndarinnar að hún verði Verkfræðingafélaginu og verkfræðingum til sóma.
15.8 Árshátíðarnefnd VFÍ
Árshátíð félagsins var haldin á Hótel Sögu þann 4. febrúar I995. Forseti íslands frú Vigdís
Finnbogadóttir heiðraði VFÍ með nærveru sinni, það sama gerðu Dr. Jóhannes og frú Dóra
Nordal. Formanni TFÍ Gunnari Sæmundssyni og konu hans var einnig boðið til hófsins.
Eiginleg árshátíðarnefnd var ekki skipuð, en Sigurði St. Arndal og Höllu Norland var
falinn undirbúningur með aðstoð stjórnar VFÍ og framkvæmdastjóra.
Hátíðin var hin glæsilegasta og sérstakar þakkir komu frá forseta okkar fyrir góða
skemmtun, með vel skipulagðri dagskrá og góðum mat.
Gestir alls voru 131 það er örfáum fleira en var í fyrra.
Á árshátíð VFÍ voru eftirtaldir heiðraðir með heiðursmerki VFI:
Dr. Geir A. Gunnlaugsson, vélaverkfræðingur
Vífill Oddsson, byggingarverkfræðingur
Þóroddur Th. Sigurðsson, vélaverkfræðingur.
Heiðursmerki er gullmerki VFI sem afhent er þeim mönnum sem skarað hafa frain úr á
einhvem hátt og á þann hátt unnið til viðurkenningar.