Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Blaðsíða 75
Skýrslur fagdeilda VFÍ 73
alþjóðaútgáfunni, íslenskum íðorðum bætt við, en sameiginlegt efnisyfirlit þeirra þriggja
kafla alþjóða raftækniorðasafnsins, sem er efni bókarinnar, verður á hverju tungumáli fyrir
sig: íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Efnisyfirlit á öðrum málum eru yfir hvern kafla um
sig. Orðanefnd ritar formála, hefur umsjón með útlitshönnun bókarinnar og les allar próf-
arkir.
Hugmyndir að ensk-íslensku/íslensk-ensku orðasafni úr raftæknifræði eiga sér alllangan
aðdraganda. Þær má kannski rekja til löngunar Orðanefndar til að gefa út í skólaútgáfu úrtak
úr öllum útgefnum bókum nefndarinnar og öðrum óbirtum orðasöfnum í hennar eigu annars
vegar og hins vegar til áhuga fagstjórnar í raftækni, sem nú er Rafstaðlaráð, á að gefa út
handhægt orðasafn úr raftækni til notkunar í skólum. Þar sem íðorðasafn Orðanefndar er
tölvuskráð, er auðvelt að gefa út heildarorðasafn á íslensku og ensku, sem jafnframt er
efnisyfirlit yfir 7 fyrri bækur Orðanefndar af 8, sem út hafa verið gefnar, þegar að útgáfu þess
safns kemur. Reynt verður að hraða undirbúningi og prentun safnsins eftir föngum, því að
nefndin hefur hlotið styrk til útgáfunnar frá Málræktarsjóði, sem nú hefur í fyrsta sinn veitt
styrki til íðorðastarfs. Þess er ljúft að geta hér, að Verkfræðingafélag Islands er, ásarnt
Orðanefnd RVFÍ, meðal stofnenda Málræktarsjóðs, sem starfar skv. skipulagsskrá frá því í
mars 1991.
í Orðanefnd RVFÍ eru nú starfandi rafmagnsverkfræðingarnir
Bergur Jónsson, formaður Gísli Júlíusson
ívar Þorsteinsson Jón Þóroddur Jónsson
Sigurður Briem Sæmundur Oskarsson
Þorvarður Jónsson
Einnig hefur Hreinn Jónasson rafmagnstæknifræðingur starfað með nefndinni eins og
mörg undanfarin ár.
Því miður hefur íslensk málnefnd ekki séð sér fært af tjárhagsástæðum undanfarin 2 ár að
styrkja störf nefndarinnar með því að sjá henni fyrir aðstoð íslenskufræðings eins og var þó
um margra ára skeið. Þetla hefur verið mjög bagalegt fyrir nefndina.
Orkustofnun hefur veitt Orðanefnd húsaskjól, aðstöðu og veitingar um langan tíma.
Nefndin er afar þakklát fyrir gestrisnina.
Bergur Jónsson formaður.
5 Vélaverkfræðingadeild
Stjórn VVFÍ starfsárið 1994-1995 er skipuð sem hér segir:
Hafliði Loftsson formaður Sveinn Valdimar Ólafsson gjaldkeri
Tómas Hansson ritari.
Stjórnin hefur ekki verið mjög virk á árinu. Skipulögð var ferð til Granda h.f. til að skoða
frystitogarann Þerney. Nokkrum dögum fyrir ferðina kom í ljós að tæknifræðingar voru einn-
ig að skipuleggja samskonar ferð. Sú ferð var auglýst og var verkfræðingum boðið að vera
með. Því varð þetta ekki ekta VVFI - ferð, en verkfræðingar mættu þó margir.
A næstunni er fyrirhuguð ferð í flugskýli Flugleiða á Keflavíkurflugvelli þar sem áætlað er
að skoða viðgerðarastöðu þeirra þar og í desember n.k. er áætluð ferð í h.f. Egil Skallagrímsson.
5.1 Kynnisferð V2FÍ til Flugleiða
Flugleiðir h.f. buðu Vélaverkfræðingadeild VFÍ, sem gjaldkera deildarinnar hugkvæmdist að
skammstafa V“FÍ (sem ber æðra veldi vélaverkfræðinga hógværan vott), í skoðunarferð þann