Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Síða 79
Félög tengd VFÍ 77
Sigþór Jóhannesson, Sæbjörn Kristjánsson og Björn Stefánsson voru í samninganefnd
félagsins og var Sigþór formaður nefndarinnar. Sæbjöm óskaði eftir því að vera leystur frá
störfum í nefndinni og var orðið við því.
Svavar Jónatansson er fulltrúi FRV í nefnd á vegum VFI um útflutning á tækniþekkingu.
Pálmi Ragnar Pálmason er fulltrúi félagsins í nefnd um stórar stíflur og er Finnur Jónsson
varamaður hans.
Guðrún Zoéga er framkvæmdastjóri félagsins í hálfu starfí.
1.3 Viðfangsefni stjórnar
Stjórnin hélt 14 bókaða fundi á árinu og er helstu viðfangsefna getið hér á eftir.
Samningar. Samið var við SV, ST og FTT. Samningar við SV voru samþykktir á full-
trúaráðsfundi 14. júlí, en samningar við ST 30. september. A þeim fundi var jafnframt
samþykkt umboð til samninganefndar til að ganga frá samningum við FTT.
Skattamál. Nokkrar verkfræðistofúr hafa á undanförnum árum orðið fyrir óþægindum og
kostnaði vegna herts skattaeftir 1 its og var m.a. hætt að viðurkenna ýmsa kostnaðarliði, sem
áður hafa verið viðurkenndir sem eðlilegur rekstrarkostnaður, svo sem félagsgjöld, risna,
starfsmannakostnaður o.fl. Félagið mótmælti þessari aðgangshörku skattayfirvalda ásamt
ýmsum öðrum. I framhaldi af því skipaði ijármálaráðheiTa nefnd árið 1993, sem hafði það
verkefni að endurskoða framkvæmd skattalaga, m.a. hvað teldist eðlilegur rekstrarkostnaður.
2. september sl. gaf ljármálaráðherra út reglugerð um frádrátt frá tekjum af atvinnurekstri eða
sjálfstæðri starfsemi. Þar segir m.a. að ýmis starfsmannakostnaður sé frádráttarbær, svo sem
kostnaður við árshátíð, jólagleði og starfsmannaferðir. Enn fremur kostnaður við almenna
fyrirbyggjandi heilbrigðisþjónustu og heilsubótaraðstöðu, kaffiveitingar í vinnutíma og nám-
skeið, sem tengjast starfinu beint. Auk þess teljast félagsgjöld til rekstrarkostnaðar, en
ríkisskattstjóri mun halda lista yfír félög, þar sem félagsgjöld verða frádráttarbær. FRV hefur
nýlega fengið bréf, þar sem tilkynnt er að FRV sé á þessum lista. Enn fremur eru félagsgjöld
til VFÍ og TFÍ frádráttarbær, ef viðkomandi stundar sjálfstæðan rekstur.
Skilmálar um verkfræðiráðgjöf og samkeppnisráð. Samkeppnismál voru eitt aðalvið-
fangsefni stjómar á starfsárinu. Samkeppnisráð úrskurðaði 24. júní 1994 að ekki væri heimilt
að fjalla um þóknun í Skilmálum um verkfræðiráðgjöf, hvorki upphæð þóknunar né form
hennar. Ekki verður úrskurðurinn skilinn öðruvísi en svo að notkun skilmálanna að öðru leyti
sé heimil. Úrskurðurinn var ekki kærður.
Samkeppnismál. Allmikið var fjallað um útboð á hönnun, m.a. var vinnubrögðum við
forval og samkeppni um svæðisskipulag á miðhálendinu mótmælt. 1 byrjun nóvember hófúst
viðræður við fulltrúa Fjármálaráðuneytisins og Framkvæmdasýslunnar um samkeppnisútboð
og val á ráðgjöfum. Þeir Þorbergur Karlsson og Árni Björn Jónasson hafa tekið þátt í þeim
viðræðum fyrir hönd félagsins. Þeirri vinnu miðar vel og munu niðurstöður væntanlega verða
kynntar á fundi á vegum Fjármálaráðuneytisins síðar í mánuðinum. Enn fremur voru við-
ræður við borgarverkfræðing um sama efni teknar upp aftur og er niðurstöðu að vænta fljótlega.
Afkomukönnun. Aðeins ellefu fyrirtæki svöruðu afkomukönnun en hjá þessum
fyrirtækjum vinna um 230 manns. Til þess að könnunin gefi sem réttasta mynd er nauðsyn-
legt að sem allra flestir sendi inn upplýsingar og verður þátttaka vonandi betri í könnun, sem
nú er að fara út. Helstu niðurstöður úr afkomukönnunum 1989-1993 koma fram í eftirfarandi
töllu og er miðað við verðlag 1993.