Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Page 80
78 Árbók VFÍ/TFÍ 1994/95
1989 1990 1991 1992 1993
Velta alls (m.kr.) 1770 1640 1648 1498 1476
Velta/starfsmann (þús. kr.) 4369 4042 4070 3699 3883
Laun og launat. gj./starfsm. (þús. kr.) 2997 2836 2912 2772 3011
Annar kostn./starfsm. (þús. kr.) 1262 958 969 825 805
Hagnaöur/starfsm. (þús. kr.) 106 349 175 102 67
Hagnaður(%) 2.4 8.4 4.1 2.8 1.7
Tafla 2 Afkomukönnun.
Launakönnun. Gerð var launakönnun á vegum félagsins og bárust upplýsingar um laun
149 verk- og tæknifræðinga, sem vinna hjá 15 FRV-fyrirtækjum. Niðurstöður hafa verið
sendar aðildarfyrirtækjum FRV.
Löggilding raflagnahönnuöa. Nokkuð var fjallað um löggildingu raflagnahönnuða í
framhaldi af bréfi frá Iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu til Sambands íslenskra rafveitna, þar
sem fram kom að ráðuneytið teldi varhugavert að herða kröfur til þeirra sem gera raflagna-
teikningar.
Sjálfstætt starfandi arkitektar. í fyrra var stofnað félag sjálfstætt starfandi arkitekta og
komu fulltrúar þeirra á fund stjórnar og fræddust um starf félagsins.
Kynningarbæklingur. Gefinn hefur verið út kynningarbæklingur um FRV-fyrirtæki.
Hugmyndin er að honum verði dreift til nokkurra stærstu verkkaupanna, en auk þess munu
fyrirtækin fá hann til dreifingar til viðskiptavina sinna. Þessi bæklingur verður vonandi
fyrirtækjunum til framdráttar og hann mun vafalaust einnig verða til þess að styrkja félagið.
Ef viðtökur verða góðar er ætlunin að hann verði endurnýjaður reglulega í framtíðinni.
Fréttabréf. Á síðasta ári komu út tvö fréttabréf. Komið hefur til tals að gefa út sameigin-
legt fréttabréf á vegum Verkfræðingafélgsins, Tæknifræðingafélagsins, Stéttarfélags verk-
fræðinga og Félags ráðgjafarverkfræðinga. Ákveðið hefur verið að fyrst um sinn verði frétt-
um frá félaginu komið á framfæri í VT-fréttum.
Umsagnir. Oskað var umsagnar félagsins um frumvarp til Skipulags- og byggingarlaga,
svo og um frumvarp til laga um breytingu á lögum um umhverfismat.
Samkeppni opinberra stofnana við verkfræðistofnr. Nokkuð var ljallað um þessi mál á
stjórnarfundum, en ekki hefur verið frekar aðhafst að sinni. Tilhneiging til að færa verkefni
inn á opinberar stofnanir virðist fara vaxandi. Þannig bjóða ýmsar opinberar stofnanir, sem
eru á fjárlögum, þjónustu sína í samkeppni við verkfræðistofur.
Húsnæðismál. Nýlega hefur hljóðeinangrun milli skrifstofu FRV og Lífeyrissjóðs
Verkfræðingafélagsins verið bætt. Um leið var herbergið minnkað til að bæta eldhúsaðstöðu
hjá Verkfræðingafélaginu. Verkið tók mun lengri tíma en áætlað var og var skrifstofan lokuð
í rúmlega tvær vikur þess vegna. Þrátt fyrir tímabundin óþægindi hefur aðstaðan batnað mjög
við þessar lagfæringar.
Samstarf við VFÍ. Tekist hefur samstarf við skrifstofu VFÍ um nokkra skrifstofuþjón-
ustu. Nú er svarað í síma hjá Verkfræðingafélaginu, utan skrifstofutíma FRV og ef fram-
kvæmdastjóri er ekki viðlátinn og er tekið við skilaboðum þar. Þetta verður vonandi til
þæginda fyrir félagsmenn og aðra þá sem erindi eiga við skrifstofuna.
1.4 Ráðstefnur og fundir
Aðalfundur var haldinn 13. maí sl. Að loknum venjulegum aðalfundarstörfum var fundur
opnaður og flutt voru nokkur erindi um „Sókn á erlenda markaði - staða og framtíðarsýn“.