Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Blaðsíða 160
158 Árbók VFÍ/TFÍ 1994/95
Það er öllum félögum ljóst sem hafa þurft að leita til skrifstofu að þjónustan er margfalt
betri nú en hún var áður og opnunartíminn hefur lengst. Skrifstofan var aðeins opin fyrir
hádegi en er nú opin allan daginn. Það er markmið TFÍ að draga ekki úr þessari þjónustu.
Starfsfólk skrifstofu er nú:
Arnbjörg Edda Guðbjömsdóttir framkvæmdastjóri
Guðríður O. Magnúsdóttir bókari
Auður H. Hafsteinsdóttir skrifstofustúlka
12.2 Félagatal
Stjórn TFI setti sér það sem eitt meginmarkmið fyrir starfsárið 1994 - 1995 að fjölga félögum
í TFI. Ef tölulegar staðreyndir eru skoðaðar kemur í Ijós að það hefur ekki tekist. Þetta má
skýra með því að nauðsynlegt reyndist að gera upp ákveðinn fortíðarvanda, fella af félagsskrá
marga aðila sem skulduðu langt aftur í tímann og hreinsa til á skránni. Einnig voru teknir út
félagar sem orðnir voru verkfræðingar og hópur manna var skráður með heimilisfangið
„erlendis“. Frekari upplýsingar fengust ekki, þó eftir væri leitað.
I reynd féllu af félagalista 55 manns, þar af sögðu 21 sig úr félaginu, I lést og 34 voru
felldir út af lista af framangreindum orsökum.
Rétt er að geta þess, að búið er að leggja þá vinnureglu af, sem gekk út á það að fella nöfn
félagsmanna sjálfkrafa út af lista ef þeir stóðu ekki í skilum með árgjöld og þar með að fella
skuld niður.
Enginn getur lengur íirrt sig ábyrgð á félagsskuld sinni með því einu að segja sig úr félag-
inu. I dag er gengið hart eftir því að menn standi í skilum þannig að ef menn ætla að hætta í
félaginu verða þeir að segja sig úr því skriflega og gera upp skuld sína.
Við fundum hins vegar meðbyr með félaginu og í félagið gengu 43 tæknifræðingar á árinu
1994.
Það að fá fleiri félaga til liðs við félagið hlýtur að vera eitt að megin markmiðum félags-
ins. En við það vinnst tvennt. Félagið verður öflugra sem félag tæknifræðinga og ljárhagur
félagsins verður betri. Sterkur ljárhagur er forsenda fyrir öflugu félagsstarfi.
Skrifstofa og stjórn félagsins gerðu stórátak í að innheimta eldri félagsgjöld. Var þetta
meðal annars gert með því að stjórnarmenn fengu lista með nöfnum á mönnum sem skulduðu
meira enn eitt ár. Stjórnarmenn hringdu síðan í viðkomandi menn á kvöldin og um helgar.
Þetta skilaði góðum árangri og hefur tekist að rukka meira af eldri félagsgjöldum en gert var
ráð fyrir.
Mun betur er staðið að innheimtu og utanumhaldi á skrifstofu í dag heldur en áður. Þessu
til staðfestingar má nefna að innheimta félagsgjalda fyrir árið 1994 er yfir 90 % sem er miklu
hærra en áður. Einnig eru í dag mikið betri upplýsingar til um greiðslustöðu hvers og eins.
Á árinu voru í fyrsta skipti gefin út félagsskírteini. Skírteinin eru gefm út á nafn og gilda
eitt ár í senn. Þau veita handhöfum umtalsverðan afslátt á vöru og þjónustu ýmissa fyrirtækja.
Upplýsingar um afsláttartilboðin birtast reglulega í fréttabréfi.
12.3 Byggíngarfulltrúi í Eyjafjarðarsveitum
Síðastliðið vor var ráðinn húsasmíðameistari í starf byggingarfulltrúa í sveitum Eyja-
ljarðarsýslu. í byggingarlögum er skýrt tekið fram að byggingarfulltrúi skuli vera arkitekt,
byggingarfræðingur, byggingartæknifræðingur, eða byggingarverkfræðingur. 15 manns sóttu
um stöðuna og þar af margir sem uppfylltu menntunarkröfurnar.
TFI, VFÍ og AI voru sammála um að una þessu ekki og er búið að kæra málið. Jóhannes
Benediktsson stjórnarmaður í TFÍ fylgir málinu eftir fyrir hönd TFÍ.