Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1995, Qupperneq 173
TFÍ í öðrum samtökum 171
verið að svipaðri stærð og síðasta ár, en að misserið hafi farið freka illa af stað en úr því hafi
ræst. Einhver samdráttur hefur orðið, sérstaklega á kvöldnámskeiðum. En það virðist vera
komin kreppa í námskeiðssóknina.
Fyrsti hópurinn útskrifaðist í Sjávarútvegsfræði. Voru það 25 manns og var það álit manna
að vel hefði tekist til með þetta nám. Mun nýtt námskeið hafa hafist í janúar á þessu ári.
Ekki hefur verið mikil aukning á námskeiðum fyrir tæknimenn, en það má bæði skrifa á
reikning TFI og VFI og Endurmenntunarstofnunar. En það þurfa stöðugt að koma fram ný
námskeið. En hjá Endurmenntunarstofnun er Ingunn Sæmundsdóttir verkfræðingur í hluta-
starfi sem fulltrúi fyrir Verkfræðinga, Tæknifræðinga og Arkitekta. En það er mikið undir
okkur sjálfum komið hversu mörg námskeið eru haldin.
Nokkuð hefur verið rætt um húsnæðismál stofnunarinnar, en það virðist vera búið að blása
af öll byggingaráform vegna andstöðu við það innan Háskólans. Von er til að stofnunin geti
fengið aukið húsnæði í Tæknigarði, en samkvæmt því sem Endurmenntunarstjóri segir, þá er
húsnæðisekla farin að há verulega daglegu starfi stofnunarinnar.
Á síðasta ári bættist BHMR við sem nýr samstarfsaðili í hóp þeirra sem reka Endurmennt-
unarstofnun. Guðrún Yngvadóttir endurmenntunarstjóri fór á fyrsta heimsþing um símenntun
„Lifelong Learning" og lagði hún fram mjög fróðlega skýrslu um símenntun.
Nú á tímum sífelldra tækniframfara í ljarskiptum og upplýsingatækni þá má búast við
miklum áherslubreytingum í endur- og símenntun. En innan stjómar Endurmenntunarstofn-
unar er ætlunin að stofna starfshóp sem kemur til með að fylgjast sérstaklega með þróuninni í
þessum málum.
Stefán Ragnarsson
3 Staðlaráð íslands
Staðlaráð íslands var stofnað í apríl 1993, sem vettvangur hagsmunaaðila um staðla og
stöðlun. Það var afleiðing lagasetningar 1992, um staðla og stöðlun. Þau lög gera ráð fyrir að
flytja verkefni stöðlunar frá hinu opinbera til samtaka hagsmunaaðila, það er að segja
Staðlaráðs íslands. Þetta var fráhvarf frá því fyrirkomulagi sem rikt hafði meðan allt stöðl-
unarstarfið var í höndum Iðntæknistofunar fyrir hönd ríkisins. Þetta er jafnframt þróun, sem
átt hefur sér stað i Evrópu að undanförnu, en í sumum iðnvæddum löndum Evrópu eins og
Þýskalandi hefur líkt fyrirkomulag tíðkast frá upphafi stöðlunar. Staðlaráð Islands ber
samkvæmt lögunum ábyrgð á stöðlunarstarfmu og stýrir því ásamt þeim skrifstofurekstri sem
nauðsynlegur er því starfi. í ráðinu eiga nú sæti 21 fulltrúi hagsmunaaðila m.a. frá ýmsum
ríkisstofnunum, samtökum iðnaðar og iðngreina, félögum og félagasamtökum.
Tæknifræðingafélagið hefur samkvæmt ákvörðun stjórnar talið sig ótvíræðan hagsmuna-
aðila og hefur frá upphafi átt fulltrúa í ráðinu.
Staðlaráðið sjálft kemur saman ekki sjaldnar en tvisvar á ári og oftar ef þurfa þykir, svo og
ef fram koma óskir um fleiri fundi frá fulltrúum.
Á síðasta starfsári voru haldnir tveir fundir í ráðinu. Fimm manna stjórn ráðsins annast
mál á milli funda.
Á vegum staðlaráðs starfa fagráð og fagstjórnir. Fagráð í upplýsingatækni, Byggingar-
staðlaráð, Rafstaðlaráð og Fagstjórn um stöðlun í gæðamálum. Allmikið starf er unnið í
öllum þessum hópum.
Verkefni liðins árs hafa verið margvísleg. Ávallt fer mikið starf í að tryggja ljárhagsaf-
komu ráðsins, m.a. að semja um greiðslur ríkisins til stöðlunar og skipulagningu og greiðslur
til fagráða. í staðfestingarnefnd staðla eiga sæti tveir fulltrúar úr ráðinu og er formaður
ráðsins annar þeirra, en hinn úr hópi annarra fulltrúa. Sem stendur starfar undirritaður, fulltrúi