Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.1998, Page 36
34 Félagsmál VFÍ/TFÍ
öðrum nefndarmönnum, en því miður leiddi starf nefndaiinnar ekki til sameiginlegrar niður-
stöðu.
Menntamálaráðuneytið sendi síðan VFÍ og TFÍ erindi í október 1997 þar sem óskað var
eftir umfjöllun félaganna um málið og tillögum um framhald. Það varð til þess að mennta-
málanefnd VFI og menntunarnefnd TFI héldu tvo sameiginlega fundi þar sem málið var rætt
og síðan var sameiginleg ályktun nefndanna send til stjórna beggja félaganna. í ályktuninni
er harmað að VT-nefndin skuli ekki hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu og þeirri
skoðun lýst að mikilvægt sé að félögin beiti sér fyrir því að námsbrautir til tæknifræðigráðu
og verkfræðigráðu verði í framtíðinni í boði við sömu menntastofnun. Að lokum er lagt til
að skipuð verði ný fimm manna nefnd til að vinna að þessu máli, þar sem einn fulltrúi verði
frá hvoru félagi, tveir fulltrúar úr atvinnulífinu, þar sem verk- og tæknifræðimenntun nýtist
beint, og formaður úr atvinnulífinu, sem ekki sé endilega tæknimaður.
Bæði félögin svöruðu síðan ráðuneytinu með bréfi þar sent þessi sameiginlega ályktun
nefndanna var fylgiskjal. Aður en stjórn VFI sendi sitt svarbréf var haldinn sameiginlegur
fundur með stjórn og menntamálanefnd VFÍ og fulltrúum Verkfræðideildar HÍ þar sem mis-
munandi sjónarmið þessara aðila voru kynnt og málið rætt.
Fjárhagsáætlun mcnntamálancfndar starfsárið 1998-99: Menntamálanefnd óskar eftir
að fá aðgang að rekstrarfé til þeirra verkefna sem nefndin annast fyrir félagið, samkvæmt
eftirfarandi viðmiðunartölum:
Erlent samstarf kr. 150.000
Fundir og gagnaöflun kr. 50.000
Aðkeypt vinna kr. 50.000
Aætluð fjárþörf alls kr. 250.000
Lokaorð: Tveir félagsmenn ákváðu í upphafi starfsársins að gefa ekki kost á sér til áfram-
haldandi setu í menntamálanefnd. Þeir voru Hilmar Sigurðsson, sem setið hafði í nefndinni
síðan vorið 1989, og Guðleifur M. Kristmundsson, sem setið hafði í nefndinni síðan vorið
1990, þar af sem formaður frá haustdögum 1990. Fyrir hönd MVFÍ vil ég þakka þeim
báðum langt og farsælt starf í þágu nefndarinnar, svo og fyrir ánægjulegt samstarf þann tíma
sem ég sat í nefndinni með þeim.
Að lokum vil ég þakka framkvæmdastjórn félagsins, svo og framkvæmdastjóra og starfs-
fólki skrifstofunnar, gott og ánægjulegt samstarf. Sérstakar þakkir fyrir gott og ánægjulegt
samstarf færi ég lfka fyrrverandi framkvæmdastjóra, Arnbjörgu Eddu Guðbjörnsdóttur, sem
hætti störfum snemma á starfsárinu.
Menntamálanefhd VFÍ
Steindór Guðmundsson formaður
Siðanefnd VFÍ
Siðanefnd starfsársins var skipuð eftirtöldum mönnurn: Þórarinn Magnússon formaður,
Halldór Þór Halldórsson, Vífill Oddsson, Guðmundur G. Þórarinsson og Jóhann Már Mar-
íusson. Siðanefnd er jafnan skipuð fimm fyrrverandi formönnum VFÍ. Hver maður situr í
nefndinni í fimm ár og síðasta úrið sem formaður.