Neytendablaðið - 01.04.1983, Blaðsíða 3

Neytendablaðið - 01.04.1983, Blaðsíða 3
hafa nú í dag meiri byr hjá lands- mönnum en nokkru sinni fyrr. En ljóst er að þetta jákvæða viðhorf varir ekki til eilífðar, nema því þá aðeins, að Neyt- endasamtökunum takist nú að hagnýta sér þetta og gera samtök- in að sterku afli í þjóðfélaginu sem megni að takast á við þau vandamál sem helst hrjá neyt- endur. Verkefni sem Neytendasam- tökin þurfa í meira mæli að sinna en verið hefur, eru fjölmörg, en nokkur skulu þó nefnd hér. Stór- efla þarf útgáfustarf samtakanna, bæði með örari útgáfu Neytenda- blaðsins og eins með útgáfu upp- lýsingabæklinga um afmörkuð efni. Samtökin þurfa í ríkara mæli að láta gæðarannsaka ýmsar neysluvörur sem hér eru á mark- aði, þannig að neytendur geti á auðveldari hátt valið milli hinna fjölmörgu vörumerkja. Neyt- endasamtökin þurfa f auknu mæli að beita sér fyrir að lög og reglur sem snerta neytendur verði bætt og má benda á, að á mörgum sviðum erum við langt á eftir neytendum í nágranna- löndum okkar á þessu sviði. Raunar mætti hafa þessa upp- talningu miklu lengri svo fjöl- mörg eru verkefnin. Ef megna á að takast á við þessi verkefni, þurfa neytendur að efla samtök sín og eins og nefnt var hér að framan, er einmitt lag nú. Því hefur verið ákveðið að gang- ast fyrir á næstu vikum, út- breiðsluherferð, sem miðar að því að tvöfalda tölu félagsmanna, sem nú eru um fjögur þúsund. Ef slíkt á að takast þurfa sem flestir að leggja hönd á plóginn. Eað eru því eindregin tilmæli stjórnar Neytendasamtakanna að sem flestir félagsmenn taki þátt í þessu átaki með okkur. Mark- miðið er sterk Neytendasamtök, til heilla fyrir alla neytendur. jg- NEYTENDAFELOG Hér á eftir fer listi yfir aðildarfélög Neytendasamtakanna. Neytendum á starfssvæðum félaganna er bent á að leita til síns félags, óski þeir upplýsinga eða aðstoðar. Neytendafélag Reykjavíkur og nágrennis: Austurstræti 6, 101 Reykjavík, s. 91-21666. Akranes og nágrenni: Neytendafélag Akraness, Sigrún Gunnlaugsdóttir, Vallholti 21, 300 Akranesi, s. 93-1656. Borgarnes, Borgarfjörður, Snæfellsnes (sunnanvert): Neytendafélag Borgarfjarðar, Bjarni Skarphéðinsson, Andakílsárvirkjun, 311 Borgarnesi, s. 93-7054. ísafjörður og nágrenni: Neytendafélag ísafjarðarog nágrennis, Jón Jóhannesson, Lyngholti 4, 400 ísafirði, s. 94-4041. Viðtalstími: Bóka- safni Isafjarðar, fimmtudaga kl. 20-21, s. 94-3296. Blönduós, A-Húnavatnssýsla: Neytendasamtök A-Húnvetninga, Valgarður Jökulsson, Melabraut 25, 540 Blönduósi, s. 95-4427. Sauðárkrókur, Hofsós, Skagafjörður: Neytendasamtökin í Skagafirði, Gunnar Haraldsson, Víðigrund 8, 550 Sauðárkróki, s. 95-5384. Akureyri og nágrenni: Neytendasamtökin á Akureyri og nágrenni, Eiðsvallagötu 6, pósthólf 825, 602 Akureyri (opið þriðjudaga og miðvikudaga kl. 16-18), s. 96-22506. Húsavík, S-Þingeyjarsýsla: Húsavíkurdeild NS, Auður Gunnarsdóttir, Stórigarður 4, 640 Húsavík, s. 96-41899. Egilsstaðir, Fljótsdalshérað: Héraðsdeild NS, Sigrún Kristjánsdóttir, Sólvöllum 1, 700 Egilsstöðum, s. 97-1570. Seyðisfjörður: Seyðisfjarðardeild NS, Inga Hrefna Sveinbjörnsdóttir, Gilsbakka 34, 710 Seyðisfirði, s. 97-2425. Neskaupstaður, Norðfjörður, Mjóifjörður: Norfjarðardeild NS, Elma Guðmundsdóttir, Mýrargötu 29, 740 Neskaupstað, s. 97-7532. Eskifjörður: Eskifjarðardeild NS, Sandra Magnúsdóttir, 735 Eskifirði, s. 97-6210. Reyðarfjörður: Reyðarfjarðardeild, NS, Hallgerður Högnadóttir, Heiðarvegi 11,730 Reyðarfirði, s. 97-4141. Höfn, A-Skafafelissýsla: Neytendasamtök A-Skaftfellinga, Anna Marteinsdóttir, Norðurbraut 11,780 Höfn, s. 97-8351. NEYTENDABLAÐIÐ - 3

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.