Neytendablaðið - 01.04.1983, Blaðsíða 24
Norrænar
reglur um
ryðvörn
fólksbifreiða
Eins og flestum lesendum
Ncytendablaðsins er kunnugt
frá fréttum í fjölmiðlum hafa
veriö samdar samnorrænar
reglur um ryðvörn fólksbif-
reiða.
Það var vinnuhópur sem
starfað hefur á vegum Norrænu
embættisnefndarinnar um
neytendamálefni sem kemur
þessum reglum á framfæri. I
vinnuhópnum eru fulltrúar
bæði frá Neytendastofnunum
og frá félögum bifreiðaeigenda
á Norðurlöndum.
Hefur verið skorað á öll bif-
reiðaumboð á Norðurlöndum
að þau beiti sér fyrir því að sem
fyrst verði komiö á aukinni
ábyrgð á ryðvörn fólksbifreiða
í samræmi við þær reglur sem
vinnuhópurinn hefur samið.
Margt virðist benda til þess
að ryð sé í flestum tilvikum
aðalástæða þess að hifreiöar
verið ónothæfar á óeðlilega
skömmum tíma. Það kostar
mikið fé að kaupa nýja bifreið
eins og kunnugt er. Þar að auki
geta ryðskemmdir í bifreiðum
bæði valdið slysum og valdið
því að tjón verði mun meira en
ella.
Reglurnar eru ætlaðar selj-
endum á hinum norræna mark-
aði. Ætlast er til að við kaup á
nýrri bifreið veiti bifreiðaum-
boðið ábyrgð í minnst þrjú ár á
ryð- og lakkskemmdum á ytra
borði bifreiðar.
7 minnst sex ár vegna tjóns
vegna ryðgunar í gegn.
I minnst sex ár vegna ryð-
skemmda sem geta haft í för
með sér að öryggiskröfum sem
gerðar eru til bifreiða verði
ekki fullnægt. Til þess að
tryggja það að bifreiðin endist
sem lengst þarf sá sem ábyrgð-
ina veitir að leiðbeina bifreiða-
eigendum um handhægar ryð-
varnaraðferðir í lok ábyrgðar-
tímans. Þessa auknu þjónustu
við bifreiðaeigendur á sam-
kvæmt reglunum að vera bif-
rciðaeigendum að kostnaðar-
lausu (með öðrum orðum er
hún innifalin í andvirði bifreið-
arinnar).
Markmiðið með reglunum er
jafnframt að örva framleiðend-
ur til að framleiða betri bifreið-
ar í framtíðinni sem síöur
tærast. En aðgerðir á fram-
leiðslustigi eru mjög mikilvæg-
ar til að hindra ryðmyndun.
Hafa reglurnar því verið þýdd-
ar á ensku og sendar bifreiða-
framleiðendum til kynningar.
Fylgst verður með þróuninni
á þessu sviði og munu neytend-
ur fá vitneskju um að hve miklu
leyti komið verður til móts við
þær kröfur sem settar hafa ver-
ið fram.
Sigríður Haraldsdóttir
1. gr.
Almennt
Aðalumboðsmaður/bifreiöainn-
flytjandi skuldbindur sig til þess
að takast á hendur ábyrgð
gagnvart kaupanda í samræmi
við þessar reglur og ennfremur
að sjá svo um að umboðsmenn
hans takist á hendur sömu
ábyrgð.
Sé ábyrgð aðalumboðs-
manns/bifreiðainnflytjanda
takmarkaðri en reglur þessar
gera ráð fyrir, eða leggi aðal-
umboðsmaður meiri skyldur á
bifreiðareiganda en ákvæði
reglna þessara mæla fyrir um,
er honum óheimilt að halda því
fram að ábyrgð hans fullnægi
ákvæðum þessara reglna.
2. gr.
Gildisvið
Reglur þessar gilda um nýjar
fólksbifreiðar sem nýskráðar
verða í Danmörku, Finnlandi,
íslandi, Noregi eða Svíþjóð.
3. gr.
Skemmdir á ytra borði/
lakkskemmdir
Sá er ábyrgðina veitir ábyrgist
í minnst þrjú ár, miðað við af-
hendingardag, ryð- og lakk-
skemmdir á ytra borði bifreiðar,
sem rekja má til hönnunar-,
efnis- eða framleiðslugalla,
enda komi skemmdirnar í Ijós
á ábyrgðartímabilinu.
Með ryðskemmdum á ytra
borði bifreiðar er átt við ryð sem
fellur á lakkaða eða krómaða
fleti bifreiðar án þess að ryðgað
hafi í gegn.
Með lakkskemmdum er átt
við galla eða skemmdir sem
leitt geta til fyrrgreindra ryð-
skemmda, eða koma fram sem
mislitun, bólumyndun eða á
annan áþekkan hátt.
4. gr.
Ryðskemmdir
Sá er ábyrgðina veitir ber
ábyrgð í minnst 6 ár, miðað við
afhendingardag, á tjóni vegna
ryðgunar í gegn enda komi
skemmdirnar í Ijós á ábyrgðar-
tímanum.
Ákvæði 1. mgr. gilda einnig
um minni ryðskemmdir ef þær
geta haft í för með sér, að
öryggiskröfum, sem gerðar eru
til bifreiða, verði ekki fullnægt.
5. gr.
Gallar í ryðvörn
Sá er ábyrgðina veitir ábyrgist
að ryövörn bifreiðar sé á
ábyrgðartímanum haldið í því
horfi sem bifreiðareigandi get-
ur með sanngirni gert ráð fyrir,
enda þótt skemmdir sbr. 3. og
4. gr. hafi ekki náð að myndast.
22 - NEYTENDABLAÐID