Neytendablaðið - 01.04.1983, Blaðsíða 4
BORVÉLAR
í desember hefti sænska neyt-
endablaðsins Rád og Rön birt-
ist gæðakönnun sú sem hér er
birt. Nær hún til ellefu borvéla
sem hafa það allar sameiginlegt
að hafa stiglausa stýringu á
snúningshraðanum (fjölhraða-
rofa). Könnunin var gerð af
ETG (European Testing
Group).
Niðurstöðurnar gefa til
kynna að allar vélarnar eru vel
hæfar við venjulega notkun.
Það fer mest eftir því til hvers á
að nota vélina, þegar borvél er
keypt. Ef vélin er einungis not-
uð til að festa upp hillum
endrum og eins eða til annarra
smáviðgerða, er hægt að láta
verðið ráða valinu.
„Tveir borar“ í hverri vél
Borvél þarf að vera hægt að
nota til fleiri hluta en að bora í
tré og málma. Á öllum vélun-
um sem voru prófaðar, er hægt
að velja á milli venjulegs bors
og höggbors. Höggbor er
notaður á stein. Hann „heggur
og borar“ sig inn í efnið á
meðan venjulegur „eingöngu
borar“.
Höggborarnir voru rannsak-
aðir með því að mæla hve langt
inn í steininn þeir komust á
ákveðnum tíma. Á þeim var
einnig gerð langtímaprófun
með notkun í langan tíma og
vélarnar rannsakaðar að því
loknu. Kannað var hvort hreyf-
illinn (mótorinn) væri í lagi og
eru eingöngu Black & Decker
D 104 R og Black & Decker D
214 R sem ekki fengu neinar
athugasemdir.
Hraðanum má stjórna
í langtímaprófuninni reynir
mikið á vélarnar, þannig að sá
sem notar ekki borvélina þess
meira þarf ekki að taka tillit til
þessa.
Allar vélarnar sem rannsak-
aðar voru eru með stiglausri
hraðastýringu (fjölhraðarofa),
sem virkar eins og bensíngjöfin
á bílnum, eftir því sem fastar er
þrýst á rofann því hraðar fer
borinn. Á vanalegum vélum
sem eru án stiglausrar hraða-
stýringar fer borinn strax upp á
mesta snúningshraðann. Þá er
oft erfitt að bora, enda erfitt að
stjórna hraðanum.
Stiglaus hraðastýring er
nauðsynleg ef nota á vélina til
að skrúfa í skrúfur eða ef byrja
þarf hægt og varlega að bora.
Hún er einnig gagnleg þegar
borað er í málmplötu eða hált
efni, þar sem borinn getur
runnið til.
Krafturinn aukinn með
lággírnum
Ókosturinn við stiglausa
hraðastýringu er sá að snún-
ingshraðinn getur minnkað
þegar borað er í harðan flöt.
Krafturinn minnkar og borinn
fer því hægar. Til að komast
hjá þessu er í tveimur vélanna,
Black og Decker D 214 R og
Boch CSB 500-2E tveggja gíra
kassi með tveimur snúnings-
hraðasviðum. Virkar það eins
og á bíl, sem látinn er í lægri gír
ef hann drífur ekki upp brekku.
Snúningshraðinn minnkar, en
þess í stað eykst krafturinn.
Borvélarnar sem rannsakað-
ar voru eru með stillingu þar
sem hægt er að faststilla snún-
ingshraðann. Það er mikilvægt
að snúningshraðinn geti verið
stöðugur þegar borað er t.d. í
viðkvæmt efni, en aukist ekki
vegna þess að óvart er rofanum
þrýst i botn. Á flestum vélanna
er hægt að festa snúningshrað-
ann á ákveðinni ferð. Á fjórum
vélanna AEG SBE-401 RL,
Black og Decker D 104 R,
Black og Decker D 214 R og
Boch SB 350 RLE er þó ein-
ungis hægt að festa hraðann á
mesta snúningshraðanum.
4 - NEYTENDABLADID