Neytendablaðið - 01.04.1989, Blaðsíða 7
UMHVERFISVERND
HREINSIBÚNAÐUR
LÖGLEIDDUR FLJÓTLEGA
í tengslum við mengunar-
umræðu hefur oft borið á góma
nauðsyn þess að lögleiða
hreinsibúnað á útblœstri
bifreiða hér á landi. Slíkur
búnaður er skyldugur í Banda-
ríkjunum og er á nýjum bílum
sem koma þaðan. Búnaðurinn
fœrist í vöxt í Evrópu og mun
verða lögleiddur bráðlega í
löndum Evrópubandalagsins.
Hér á landi er í undirbútiingi
reglugerð um mengunarvarnir
þar sem meðal annars er lagt til
að hreinsibúnaður skuli vera á
nýjum bílum sem fluttir eru til
landsins eftir 1992. Ólafur Pét-
ursson efnaverkfrœðingur og
forstöðumaður Mengunar-
varnasviðs Hollustuverndar
ríkisins, tók þátt í samningu
þessarar reglugerðar og við
spurðum hann nánar um málið.
„Reglugerðin er enn til meðferðar í
ráðuneytinu og er því ekki orðin endan-
leg,“ sagði Ólafur. „Hún byggir að miklu
leyti á norrænu umhverfismálaáætluninni
sem samstarfsráðherrar Noðurlanda sam-
þykktu nýlega. Þar er stefnt að ákveðnum
atriðum í umhverfisvernd og á hvert land
að móta sína stefnu miðað við aðstæður.
Eitt stefnumálanna er að mæta bandarísk-
um kröfum varðandi útblástur frá bifreið-
um snemma á næsta áratug."
Ef hreinsibúnaður er á bílum sem fluttir
eru hingað til lands, hefur hann yfirleitt
verið fjarlægður. Ástæðan er meðal ann-
ars sú að forsenda þess að hann virki er að
notað sé blýlaust bensín á bílinn og hér er
blýlausa bensínið með of lága oktan tölu
fyrir sumar gerðir bifreiða. Ólafur sagði
því nauðsynlegt að sterkara blýlaust bens-
ín yrði komið á markað þegar hreinsibún-
aður verður lögleiddur. Taldi hann í því
sambandi réttlátt að stjórnvöld minnkuðu
skattaálögur á blýlaust bensín því líklega
yrði það bensín dýrara en það blýlausa
bensín sem nú er til sölu.
40% minna aff blýi
í andrúmsloftinu
Ólafur sagði hreinsibúnað vera eitt
þeirra atriða sem ætti að stuðla að því
markmiði að mengun yrði ekki yfir
ákveðnum mörkum snemma á næsta ára-
tug. „Hér í Reykjavík hefur mengun nálg-
ast hættumörk við vissar aðstæður. Það er
margt sem spilar inn í þetta, meðal annars
veðurfar sem hefur verið þannig í vetur að
við höfum ekki orðið vör við aukna
mengun.“
Ólafur var spurður hvort áhrif notkunar
á blýlausu bensíni væru mælanleg og sagði
hann að mælst hefði 40% minnkun á blýi í
andrúmsloftinu. „Við höfum stundað
mælingar í þrjú ár og er þessi niðurstaða
miðuð við ástandið frá því mælingar hóf-
ust og þar til blýlaust bensín kom á
markað. Blýmengunin hefur farið stöðugt
minnkandi síðan þá.“
Mengunarmælingar eru ekki nógu víð-
tækar að mati Ólafs, t.d. getur Hollustu-
vernd ekki mælt köfnunarefnisoxíð og
fleiri efni frá útblæstri bifreiða. „Það er
mjög slæmt að hafa ekki tölur um ástandið
hvað þessi efni varðar, til að geta borið
saman við mælingar eftir að hreinsibúnað-
ur hefur verið tekinn upp. Við þurfum að
geta mælt fleiri umhverfisþætti í að
minnsta kosti tvö ár til að geta fylgst með
því hvaða áhrif hreinsibúnaðurinn hefur,“
sagði Ólafur Pétursson.
7