Neytendablaðið - 01.04.1989, Blaðsíða 24
UTAN AF LANDI
Bjarni Skarphéðinsson fyrrverandi formaður Neytendafélags Borgarfjarðar ogJón A. Eggertsson formaður Verkalýðsfélags Borgar-
ness fyrir framan Snorrabúð. (Ljósm. Þjóðviljinn)
Ragnheiður Jóhannsdóttir, formaður Neytendafélags Borgarfjarðar:
Mikilvægt að mæta á fundi
Fyrir rúmum 11 árwn, þann
8. apríl 1978, var stofnuð Borg-
arfjarðardeild Neytendasamtak-
anna. Fyrsti formaður hennar
var Jóhannes Gunnarsson
núverandi formaður Neytenda-
samtakanna. Auk Jóhannesar
var í stjórn Agúst Guðmundsson
sem nú er varaformaður. Ragn-
heiður Brynjúlfsdóttir hefur ver-
ið endurskoðandi frá upphafi.
Strax í upphafi var stjórnarfólk með
viðtalstíma og kvörtunarþjónustu.
Fyrsta verðkönnunin var unnin 3. apríl
1978 og tók til 35 vörutegunda.
Fyrsta ábendingin til neytenda var að
vera vel á verði gagnvart vörum sem
komnar væru fram yfir síðasta söludag.
Hér er ekki ætlunin að rekja sögu
félagsins, en ég nefni þetta til fróðleiks því
það er við ramman reip að draga og öðru
hverju fáum við kvartanir og ábendingar
um útrunna vöru.
Strax í upphafi kom fram sú hugmynd
að neytendafélög og launþegasamtök
ættu augljósa samleið. Þar segir m.a.
24
„Ljóst er að öflug neytendavernd er góð
kjarabót, ekki síst fyrir þá lægstlaunuðu.“
Fyrsti samningur milli neytendafélags
og verkalýðsfélags var svo gerður milli
Neytendafélags Borgarfjarðar og Verka-
lýðsfélags Borgarness á 30 ára afmæli
Neytendasamtakanna, 23. mars 1983.
Þessi félög hafa síðan haft mjög gott sam-
starf og er Neytendafélag Borgarfjarðar
til húsa í húsnæði stéttarfélaganna og höf-
um við þar aðgang að ritara.
Sá hluti samnings þessa sem hvað hæst
ber eru borgarafundir sem jafnframt eru
fræðslufundir um neytendamál. Á þessum
sex árum hafa verið haldnir sjö fundir og
allir vel sóttir. Síðasti fundurinn var undir
yfirskriftinni Er SIS betri kostur fyrir
neytendur en aðrir? Framsögumenn voru
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri SÍS, Vil-
hjálmur Egilsson framkvæmdastjóri
Verslunarráðs, Guðmundui J. Guðmunds-
son formaður Dagsbrúnar og Jónína Þor-
grímsdóttir húsmóðir Ytri-Tungu. Fund-
urinn var vel sóttur og tjáði fólk sig um
málefnið. Fjölmiðlar mættu á staðinn og
var fundinum gerð góð skil á Rás 2 og í
fréttatímum útvarps næstu daga.
Neytendafélag Borgarfjarðar hefur allt-
af gert verðkannanir og á þessu ári hafa
tvær kannanir birst. Á árinu 1986 voru
gerðar 11 verðkannanir í samvinnu við
stéttarfélögin. Á þessu ári tókum við í
fyrsta sinn þátt í könnun á notkun lands-
manna á kaffivélum og örbylgjuofnum.
Einnig tók félagið þátt í gæðakönnun á
kjötfarsi og nautahakki í mars sl.
Félögum í Neytendafélagi Borgarfjarð-
ar fjölgar stöðugt og var beiðni okkar um
styrk til sveitarfélaganna víðast vel tekið.
Þótt allt starf sé unnið í sjálfboðavinnu þá
er ýmis kostnaður við að reka félagið.
Stærsti kostnaðarliðurinn er án efa útgáfa
fréttabréfs NB og ræðst sú útgáfa af því
fjármagni sem til er hverju sinni. Eitt
fréttabréf hefur komið út á árinu.
Það er von okkar og trú sem viljum
öflug neytendafélög, að allir neytendur
sjái sér hag í að hlúa að sínu félagi og er þá
ekki eingöngu átt við fjárframlög heldur
og er það mikilvægast að mæta á fundi og
sýna í verki þann vilja sem neytendur búa
yfir.
Stjórn Neytendafélags Borgarfjarðar
skipa: Ragnheiður Jóhannsdóttir formað-
ur, Ágúst Guðmundsson varaformaður,
Olga Sigurðardóttir gjaldkeri, Aðalsteinn
Geirsson ritari, Guðrún Kristjánsdóttir
meðstjórnandi. í varastjórn eru: Guðrún
Helga Andrésdóttir, Jón Helgi Óskarsson
og Sigríður Finnbogadóttir.
Viðtalstímar og opinn sími í Snorrabúð
á þriðjudögum kl. 17-18. Sími 71185.