Neytendablaðið - 01.04.1989, Blaðsíða 9
TIL UMFJOLLUNAR
VIÐKVÆM FATAEFNI
í TÍSKU
Fataefni sem nú eru á markaði eru mun við-
kvæmari en efni sem voru í tísku fyrir
nokkrum árum. Unglingafatnaður og ýmis tísku-
fatnaður er gjarnan saumaður úr þessum efnum
sem oft hafa fallega áferð í upphafi en erfitt get-
ur reynst að halda henni þegar kemur að þvotti
eða hreinsun.
Mörg efni þola ekki meðferð blettaefna, en
við hreinsun reynist oft nauðsynlegt að nota slík
efni á bletti sem ekki nást við venjulega
meðferð. Starfsfólk efnalauga þarf því að fá
leyfi viðskiptavina til að reyna slíka meðferð,
því oft er mikil áhætta í henni fólgin. Þess vegna
ætti fólk ekki að henda fötum í poka inn í efna-
laug heldur líta á þau með afgreiðslufólki og fá
vitneskju um hvort áhætta geti verið í því fólgin
að nota blettaefni á flíkina og samþykkja það
fyrirfram. Flíkur sem bryddaðar eru með leðri,
eins og nú er mikið í tísku, geta t.d. reynst erfið-
ar því leðrið þolir ekki sömu meðferð og efnið
sem flíkin er saumuð úr. Ef reynt er að ná
óhreinindum úr flíkinni getur leðrið skemmst.
Annað vandamál við meðferð fatnaðar er það
að ekki er alltaf hægt að treysta því að þær merk-
ingar sem segja til um hvaða efnablöndur eru í
flíkinni, séu réttar. Merkimiðar eru seldir hér á
landi án þess að eftirlit sé haft með því að efnin
sem merkt eru standist merkingarnar. Er það til
verulegs hnjóðs fyrir íslenskan fataiðnað.
Hér á eftir fræðir Pétur Sigurjónsson trefja-
efnaverkfræðingur lesendur um viskós sem er
vinsælt efni í efnablöndur en getur verið mjög
misgott efni, eftir því hvernig staðið er að vefn-
aði þess.
Einnig er rætt við Guðjón Jónsson, formann
Félags efnalaugaeigenda, um erfiðleika sem
koma upp við meðferð fatnaðar í efnalaugum.
Kvörtunardeild Neytendasamtakanna berst
mikið af fatnaði sem látið hefur á sjá eða hrein-
lega eyðilagst í efnalaugum. Er þá oftast erfitt
að úrskurða hvort um sé að ræða lélegt efni eða
mistök í efnalaugum. Til að vinna úr slíkum
vafamálum er því í bígerð að stofna sameigin-
lega kvörtunarnefnd Neytendasamtakanna og
Félags efnalaugaeigenda.
9