Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.04.1989, Blaðsíða 11

Neytendablaðið - 01.04.1989, Blaðsíða 11
TIL UMFJOLLUNAR Vandasöm í litun og viðkvæm í þvotti Viskósefni eru mikið notuð í ýmsar trefjablöndur, en að sögn Péturs er oft erf- itt að ná góðri litun á slík efni. „Það getur til dæmis verið erfitt að ná samlitun á polyester og viskós þannig að litun beggja trefjanna sé nógu ekta. Pað er mikið um mistök á sviði litunar. Litarefnin renna til, einkum vegna þess að þau eru ekki nógu góð. í austurlöndum eru oft notuð ódýr, léleg litarefni sem reynast ekki halda litn- um þegar kemur að þvotti. Það er nefni- lega dýrara að lita með góðum litarefn- u um. Pétur lagði áherslu á að viskósefni þola yfirleitt ekki nema 30 gráðu heitt vatn og eru oft mjög viðkvæm fyrir ýmsum hreinsi- og þvottaefnum. Til dæmis er al- gengt að fólk noti alltof mikið af þvotta- efni þegar það leggur flík í bleyti og lætur hana liggja of lengi í bleyti. Pannig geta viðkvæm efni eyðilagst. Almennt gildir sú regla að nota sem mildust þvottaefni til að þvo viskós og slík viðkvæm efni og er best að nota „neutral“ þvottaefni en ekki basísk. Lélegt efni í barnaúlpum Viskósið er sem sagt gætt ýmsum góð- um eiginleikum sem þykja eftirsóknar- verðir nú til dags. Það er þjált og mjúkt og dregur í sig raka, en til samanburðar er t.d. polyester kalt og hrindir frá sér raka. Það er því þægilegra að klæðast fötum úr viskós, en það er hins vegar ekki eins slit- sterkt og polyester. „Eins og áður sagði er algengt að þessum efnum sé blandað saman,“ sagði Pétur, „t.d. polyester og viskós eða bómull, en í slíkum blöndum geta oft leynst svik sem erfitt er að vara sig á. Það segir nefnilega ekkert til um gæði efna þó gefin séu upp t.d. hlutföllin 65% polyester og 35% bómull. Við getum fengið tvenns konar efni með þessum hlutföllum sem eru gerólík að gæðum. Aðalatriðið er hvernig efnið er hannað, hvernig efnisuppbyggingin er, þ.e. hvort hráefnið sé gott bæði í uppistöðu og ívafi.“ Sem dæmi um þetta nefndi Pétur tvenns konar efni úr 65% Polyester og 35% bóm- ull (eða viskós) þar sem rnikill munur er á endingarþoli. Annars vegar er um efni að ræða sem er hannað þannig að uppistaðan er 100% polyester og ívafið 100% bómull (viskós) og hins vegar efni úr sömu efna- blöndu þar sem bæði uppistaða og ívaf er úr garni sem er samkembt og spunnið úr trefjablöndunni 65% polyester og 35% bómull (viskós). í fyrra tilfellinu er uppi- staðan slitendingarþolin, en ívafið trosnar mjög fljótt og þá er efnið ónýtt. „Því miður hefur þetta verið raunin á í ýmsum barnaúlpum sem hér hafa verið á markaði,“ sagði Pétur. „Garn úr sam- spunnum trefjaefnum eru venjulega betri efni en þar sem efnismunur er á uppistöðu og ívafi, en þó eru til undantekningar þar á.“ Verð segir ekki til um gæði 4 Pétur benti jafnframt á að verð segir ekki til um gæði efnis. Efni geta hlaðið á sig miklum milliliðakostnaði. „Það er ekki nægileg þekking á þessum málum hjá íslenskum innflytjendum og saumastof- um,“ sagði Pétur. „Fólk sem annast inn- kaup erlendis frá telur sig oft vera að kaupa betri efni en raunin er, jafnvel rándýr efni sem eru meingölluð. í því sambandi get ég nefnt dæmi um pils sem komið var með til ykkar. Það var saumað úr efni sem var rándýrt í framleiðslu en þoldi ekki einu sinni þurrhreinsun. Þetta pils kostaði víst rúmar 30 þúsund krónur, en reyndist aðeins nothæft einu sinni. ... Til dæmis er algegnt að fólk noti alltof mikið af þvottaefni þegar það leggur f lík í bleyti og lætur hana liggja of lengi í bleyti... Á flestum flíkum núorðið eru upplýsingar um efnið og meðferð þess. Fyrir utan þvotta- og strauráð eru oftast fleiri ráð um hvernig á að meðhöndla efnið og oft eru önnur merki sem gott er að vita hvað merkja. ® 0 Tauið þolir öll venjuleg kemisk hreinsiefni þó ekki sterkari en triklore- tylen. Tauið þolir hreinsun í perkloretylen eða dauf- ari hreinsun. Tauið þolir hreinsun en þó ekki sterkari efni en vanolen efla fluorkol- vetni (white spirit). Tauifl þolir ekki hreins- un (þar er átt vifl efna- laugahreinsun). Tauið þolir klór. Tauið þolir ekki klór. MEÐFERÐ BLETTA Sumir blettir hverfa ekki í þvotti. Suma þarf að fjarlægja áður en þvegið er í þvottavél. Auðveldara er oftast að fjarlægja bletti á með- an þeir eru nýir. T.d. ryð, kúlu- pennablek, naglalakk, olíumáln- ingu, lakk og tjöru er nauðsynlegt að fjarlægja fyrir þvott. Aðalatriðið við að fjarlægja bletti er að láta blettahreinsiefnið sjá um verkið. Leggið tusku eða pappír undir blettinn. Setjið hreinsiefnið varlega á blett- inn. Nuddið aldrei. Strjúkið síðan blettinn frá kanti inn að miðju til að forðast hring í stað blettsins. Munifl afl blettahreinsiefni eru oft eldfim og heilsuspillandi. Notið með varúð. NOTIO ALDREI ELDFIM EÐA HEILSUSPILLANDI VÖKVA í ÞVOTTAHÚSUM. 11

x

Neytendablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.