Neytendablaðið - 01.04.1989, Blaðsíða 19
sagði Jóhannes. „Við vildum samt reyna
fyrst að finna lausn á málinu án átaka og
höfum verið í viðræðum við kjúklinga-
framleiðendur. Þeir hafa lagt fram skýrslu
þar sem skýrt er út hvernig verðlagsgrund-
völlur þeirra er ákvarðaður en við teljum
engan veginn að hægt sé að byggj a viðræð-
ur á því plaggi. Höfuðatriðið í okkar
gagnrýni er að viðmiðunarbúið sem sex-
manna nefnd byggir á, er af mjög óhag-
stæðri stærð. Við höfum sambærilegar
upplýsingar frá Danmörku og höfum
reiknað út hvað eðlilegt heildsöluverð á
kjúklingum hér á landi ætti að vera. Þar
ber mikið á milli okkar og framleiðenda
eða um 126%. Okkur finnst eðlilegt heild-
söluverð vera 178 krónur á kíló, en þeir
320 krónur.“
Sala á kjúklingum
dregist saman
Þegar þetta er skrifað hefur ekki náðst
samkomulag um málið en samtökin hafa
heldur ekki ákveðið að hvetja til neyslu-
stöðvunar. Hins vegar hefur sala á kjúkl-
ingum dregist verulega saman undanfarna
mánuði og telja framleiðendur það vera
áróðri Neytendasamtakanna að kenna.
Hvort sem svo er eða ekki, er það stað-
reynd að of hátt verð dregur úr neyslu. Þess
vegna hlýtur það að vera hagur allra að
finna lausn á málinu og lækka verðið.
Besta aðferðin til þess, að mati Neytenda-
samtakanna, er að leggja niður fram-
leiðslustýringarkerfið og leyfa reglunni
um framboð og eftirspurn að ákvarða
verðið.
Besta aðferðin til þess, að mati Neytenda-
samtakanna, er að leggja niður framleiðslu-
stýringarkerfið og að opinberir aðilar hætti
ofsóknum á hendur kjúklingaframleiðenda,
svo og eggja- og svínaframleiðenda, í formi
kjamfóðurgjalds og óeðlilegra hafta á endur-
nýjun stofna erlendis frá.
FRÁ STJÓRNINNl
Neytendasamtökin fagna frumkvæði
Jóns Sigurðssonar viðskiptaráðherra, að
stuðla að lækkun matarverðs með því að
létta af enn einu innflutningshaftinu og
leyfa innflutning á smjörlíki. Vænta sam-
tökin þess að í framhaldi af þessu verði
innflutningur á smjörlíki gefinn frjáls og
jafnframt að íslenskir neytendur eigi kost
á, í framtíðinni, að kaupa fleiri ódýrar
matvörur erlendis frá. Jafnframt leggja
samtökin áherslu á að strangt gæðaeftirlit
sé fyrir hendi, jafnt með innlendum sem
innfluttum vörum.
Neytendasamtökunum hafa borist fjöl-
margar kvartanir að undanfömu vegna
lélegra kartaflna. Minnt er á, að Neytenda-
samtökin hafa stutt það að innflutningur á
kartöflum og grænmeti verði þá aðeins
leyfður, að ekki sé fyrir hendi innlend
gæðaframleiðsla á hóflegu verði. Ljóst er
að gæði þeirra kartaflna sem nú em á boð-
stólum em langt frá því að vera viðunandi.
Þess vegna krefjast Neytendasamtökin þess
að þegar verði heimilaður innflutningur á
gæðakartöflum.
Verðlækkun á eggjum, kjuklingum og
kartöflum
Neytendasamtökin skora á framleiðend-
ur kjúklinga og eggja að lækka nú þegar
verð á vörum sínum og hverfa frá einokun
og verðstýringu. Verði framleiðendur ekki
við þessari áskomn, neyðast Neytenda-
samtökin til að grípa til aðgerða strax eftir
páska.
Jafnframt skora samtökin á kartöflu- og
grænmetisframleiðendur, að beita sér fyrir
því að:
- drög að reglugerð um dreifingastöðvar
komi ekki til framkvæmda.
- komið verði á eðlilegum viðskiptaháttum
með dreifingu kartaflna og grænmetís.
- neytendur eigi kost á að kaupa þessar
vörur á sanngjörnu verði, miðað við verð
í nágrannalöndum.
19