Neytendablaðið - 01.04.1989, Qupperneq 10
TIL UMFJÖLLUNAR
getur verið mjög gott og
mjög lélegt
Pétur Sigurjónsson segir margtað varastþegar um viðkvœm efni eins og viskós er að rœða.
Kvörtunardeild Neytendasam-
takanna berst mikið affatnaði
sem hefur skemmst íþvotti eða
efnalaug. Mikið afþessum
fatnaði er úr efnum sem eru
vandmeðfarin, eins og t.d.
viskós, en það efni er mikið í
tísku um þessar mundir. Ýmis
vandamál hafa komið upp í
þessu sambandi, - föt hafa
hlaupið, litur hefur runnið til
ofl. Til að frœða lesendur um
þettafataefni, fengum við Pétur
Sigurjónsson fyrrverandi for-
stöðumann Trefjadeildar Iðn-
tæknistofnunar, en hann er
lœrður trefjaefna-verk-
frœðingur.
... Litarefnin renna til,
einkum vegna þess að
þau eru ekki nógu góð.
í Austurlöndum eru oft
notuð ódýr, léleg litar-
efni sem reynast ekki
halda litnum þegar
kemur að þvotti..
„Viskós-efni geta verið mjög góð, en
einnig mjög léleg,“ sagði Pétur. „Gæðin
fara eftir því hvaða hráefni og spunaað-
ferð var notuð við framleiðsluna og hvaða
meðferð efnið fékk við spuna, vefnað, lit-
un og frágang."
Um framleiðsluaðferðina sagði Pétur:
„Viskós-efni eru endurunnin úr cellulose
eða tréniefnum og eins og allsstaðar eru
gæði hráefnisins ákvarðandi fyrir gæði
fullunninar vöru. Tréniefnum í bómull
eða kurluðum viðartegundum er breytt í
spunaþykkni og úr því spunnir fínir
þræðir. Það ergert á þann hátt að trénið er
leyst upp þannig að sem minnst stytting
verði á fjölliðun hráefnisins. Þykkninu
sem þannig fæst er síðan sprautað í gegn-
um gatasíur niður í efnalausnir sem fella
og herða það í fína þræði. Um leiðerátaki
beitt á þræðina, þeir togna og fjölliðunar-
einingarnar leggjast meir samsíða og
þráðurinn verður sterkari.
Margar gerðir af viskós eru framleiddar
og eru eiginleikarnir mjög misjafnir.
Venjulegt viskós nær aðeins 35-75% af
togþoli bómullar, sérstaklega ef efnið er
blautt. Rakadrægnin er hins vegar meiri,
svo og krumpun. Með stöðugum rann-
sóknum hefur tekist að ná lengri fjölliðun
og meiri samsíðun fjölliðanna í viskós.
Nýjustu efnin líkjast því bómull æ meir.
Má þar nefna „High - Tenacity“ viskós
(HTV), „HWM“ og „Polynosic" viskós.
Þessi efni hafa mjög gott þurrtogþol,
blauttogþol og minni rakadrægni en eldri
gerðir. En þrátt fyrir að miklar framfarir
hafi orðið í framleiðslunni, eru þessi nýju
efni ekki eins sterk og þolin og bómull.
Þau hafa hins vegar þann kost fram yfir
bómull að háralengdin er mun meiri og er
það til mikilla bóta því þá er mögulegt að
spinna mýkra og linsnúnara garn og fá
meiri fjölbreytni í gerð vefnaðar eða
prjónless.
10