Neytendablaðið - 01.04.1989, Síða 16
NOTENDAKÖNNUN
Reynsla notenda af
ÖRBYLGJUOFNUM
Notcndakönnunin að þessu sinni er á örbylgjuofnum. Á vegum Neytendasamtakanna var
hringt í 2307 heimili, voru 86,6% á höfuðborgarsvæðinu og 13,4% utan þess. Örbylgjuofn
var til á 835 heimilum, eða 36,2% þeirra sem hringt var í. 45 tegundir ofna komu fram í
könnuninni og voru 15 tegundir til á 16 heimilum eða meira. Yoru það alls 730 ofnar eða 87,4%
þeirra ofna sem við sögu koma. Tvær algengustu tegundirnar voru Toshiba og Sharp.
Eins og í kaffivélakönnuninni sem birtist í
síðasta blaði, eru konur fjölmennari í hópi
viðmælenda en karlar, eða 66,4%.
Tækjaeign er líka algengari á lands-
byggðinni í þessari könnun eins og þeirri
fyrri. Þannig áttu 49,8% aðspurðra á
landsbyggðinni örbylgjuofn en aðeins
34,1% aðspurðra á höfuðborgarsvæð-
inu.
Nýtilkomin eign
Ofnarnir voru flestir mjög nýir. 87,7%
voru yngri en 5 ára, 12,7% 6-15 ára og
0,2% (tveir ofnar) eldri en 16 ára. Mjög
fátítt var að ofnarnir hefðu bilað. Aðeins
3,6% allra ofnanna höfðu bilað og þar af
3,1% sem aðeins höfðu bilað einu sinni.
96,4% ofnanna höfðu aldrei bilað.
Ofangreindar staðreyndir leiða svo til
þess að flestir viðmælendur voru mjög
ánægðir með ofninn. 87,5% sögðust
mjög ánægðir, 11,4% sæmilega ánægðir
og aðeins 1,1 % kvaðst vera óánægður.
Ekki þurft á þjónustu
seljenda að halda
Þar sem ánægja er almennt mikil með
ofnana og þeir flestir mjög nýir, kemur
ekki á óvart að meirihlutinn segist geta
mælt með ofninum sínum. 81,7% sögð-
ust geta mælt með ofninum, 5,3% sögð-
ust ekki geta mælt með honum og 13,0
sögðust ekki vita það.
Vegna þess hve bilanatíðnin er lítil
treystu fæstir sér til að meta hvort þeir
væru ánægðir með þjónustu seljenda eða
ekki. 79,3% sögðust ekki vita hvort þeir
væru ánægðir með þjónustuna, 17,6%
sögðust ánægðir með hana og 3,1%
sögðust ekki ánægðir með þjónustu selj-
enda.
Fleiri með snúningsdisk
Spurt var hvort snúningsdiskur væri í
ofninum og kom í Ijós að 59,8% ofnanna
voru með snúningsdisk en 40,2% ekki.
Ef borin er saman ánægja með ofninn
og það hvort hann er með snúningsdisk
eða ekki, kemur í Ijós að það atriði skiptir
mjög litlu máli hvað ánægju varðar. Ef
Hlutfall tegunda
(10 algengustu tegundir)
Philips (8%)
Siemens (7%)
Samsung (6%)
Tec (6%)
AEG (6%)
Sharp (13%)
Toshiba (21%)
Electrolux (2%)
Hitachi (2%)
Moulinex (5%)
Allaraðrar (25%) )
16