Neytendablaðið - 01.02.1996, Síða 20
Markaðskönnun á 14” sjónvarpstækjum
Myndgæðin hafa aukist
Neytendablaðiö hefur gert markaðskönnun á 14” sjónvarpstækjum
hjá 12 seljendum. Einstaka seljendur selja ekki svo lítil tæki, eða
eins og einn seljandinn sagði: „Það kaupa allir þessi litlu tæki í
Fríhöfninni."
Vörumerki Seljandi Framleiðsluland
Akai Sjónvarpsmiðstöðin Bretland
Daewoo Einar Farestveit England
Finlux Hljómcó Þýskaiand
Kolster Sjónvarpsmiðstöðin Ítalía
Mitsubishi Hljómcó Bretland
Nokia Johan Rönning, Hljómcó Þýskaland
Panasonic Japis Bretland
Philips Heimilistæki Ítalía/Spánn
Saba Bónus Radíó Þýskaland
Samsung Bónus Radíó, Japis, Heimskringlan, Radíónaust Bretland/Kórea
Sanyo Heimilistæki Japan/Bretland
Schneider Sjónvarpsmiðstöðin Indónesía
Sharp Hljómbær Spánn
Siemens Smith og Norland, Litsýn Þýskaland
Sony Japis Spánn
Supertech Heimilistæki Hong Kong
Telefunken Radíóbúðin Þýskaland
Toshiba Einar Farestveit England
Vestel Radíóbúðin Tyrkland
Við höfum einnig skoðað gæðakannanir í
erlendum neytendablöðum og þar má
fínna nokkur þeirra tækja sem hér eru á
markaði. í þessari gæðakönnun kemur
meðal annars fram að myndgæði lítilla
sjónvarpstækja hafa aukist. Astæða er til
að benda á að í töflu má oft sjá sama
vörumerkið með sama vörunúmerinu í
tvígang, að undanskildum bókstöfum.
Ástæðan er sú að í öðru tilvikinu er um
að ræða tæki með textavarpi og í hinu
tilvikinu án textavarps. Að öðru leyti er
um sama tæki að ræða. Þegar könnunin
var í lokavinnslu var blaðinu bent á að til
þess að ná öllum þeim nýju stöðvum sem
nú eru komnar á markaðinn, til dæmis
Stöð 3 og fjölvarpi, þarf tækið að vera
búið örbylgjumóttöku. Neytendum er
bent á að kanna þetta, hyggi þeir á sjón-
varpskaup.
Ábyrgðartími
Flestir seljendur gera greinarmun á
ábyrgðartíma á myndlampa annars vegar
og öðrum hlutum sjónvarpstækis hins
vegar. Hjá Radíónausti og
Heimskringlunni er ábyrgðartími á
myndlampa eitt ár. Hjá Heimilistækjum
er fimm ára ábyrgð á myndlampa í
Philips sjónvarpstækjum, en þrjú ár á
öðrum tækjum sem þau selja. Hjá öðrum
20
NEYTENDABLAÐIÐ - Febrúar 1996