Neytendablaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 25
Kvörtunarþjónustan
Breyttar áherslur
hjá Skandia
Tryggingafélagið Skandia tilkynnti viðskiptamönn-
um sínum í byrjun ársins breytingu á áhættu-
flokkum bifreiðatrygginga og fólst meginbreytingin í
því að nú er tekið meira tillit til tjónareynslu bifreiða-
tegunda en gert hefur verið áður.
Reikningur
felldur niður
Það getur borgað sig að
leita til Neytendasam-
takanna, það fékk kona
nokkur að reyna þegar hún
óskaði aðstoðar samtak-
anna vegna reiknings frá
pípulagningarmanni.
Konan hafði hringt í
pípulagningarmann vegna
stíflu í eldhúsvaski, maður-
inn kom á staðinn en tókst
þó ekki betur til en svo að
pípulagningamaðurinn
hafði borað í gegnum rör
sem olli vatnstjóni í
geymslu á hæðinni fyrir
neðan. Pípulagningamað-
urinn kom þá aftur og
þurfti að skipta um rörið en
ekki tókst viðgerðin betur
því enn lak vatnið niður í
geymsluna. Nú kom pípu-
lagningamaðurinn í þriðja
skiptið og ekki tókst heldur
í þetta skipti að gera við
rörið. Að vonum var konan
orðin þreytt á viðskipt-
unum og fékk hún því ann-
an til að vinna verkið.
Stuttu seinna fékk kon-
an mjög svo óvæntan
reikning frá pípulagninga-
manninum sem ekki hafði
tekist að gera við vaskinn
og hljóðaði hann upp á
tæpar 20.000 kr. Þar sem
konan sætti sig ekki við að
greiða fyrir ónýta vinnu
sneri hún sér til NS. Pípu-
lagningamaðurinn sá sig þá
um hönd og felldi niður
reikninginn enda hefur
hann áttað sig á að engin
sanngimi væri í því að
krefjast greiðslu.
Nýlega Ieitaði til Neytenda-
samtakanna kona sem var afar
óánægð yfir því að ábyrgðar-
trygging hennar hafði hækkað
um 8% á milli áranna 1995 og
1996, en hún var tryggð hjá
tryggingafélaginu Skandia.
Þegar málið var kannað nánar
kom í Ijós að Skandia hafði
hækkað tryggingariðgjöld
ábyrgðartrygginga á 20 bfla-
flokkum og m.a. á bifreiðinni
Renault 19 sem konan í þessu
máli átti. Iðgjöld annarra bfla
höfðu lækkað t.d. á ákveðnum
tegundum Volvo og Toyota
bifreiða. Þau svör fengust frá
tryggingafélaginu að það
byggði hækkun iðgjalda á
rannsóknum sem gerðar
höfðu verið á Norðurlöndum
og sýndu að ákveðnar bif-
reiðategundir lentu frekar í
tjóni en aðrar. Skandia hafði
Það verður að teljast einkennilegt að bifreiðaiðgjöld séu ekki
metin eftir tjónareynslu hins vátryggða heldur tjónareynslu
bílsins sjálfs.
óskað álits Vátryggingaeftir-
litsins á hækkuninni og gerði
það ekki athugasemdir. Af
þessu má sjá að nauðsynlegt
er fyrir bifreiðaeigendur að
bera saman verð á bifreiða-
tryggingum áður en trygging
er keypt. Það verður að teljast
einkennilegt að bifreiðaið-
gjöld séu ekki metin eftir
tjónareynslu hins vátryggða
heldur tjónareynslu bflsins
sjálfs eða skipta ökumennirnir
sjálfir ekki orðið neinu máli?
Rétturtil endurgreiðslu
hjá Sjóvá-Almennum
Sjóvá-Almennar hafa allt
frá árinu 1994 greitt
ákveðnum viðskiptavinum
sínum 10% af iðgjöldum til
baka af öllum grunntrygging-
um og viðbótartryggingum
nema líftryggingu. Hér er um
að ræða þá viðskiptavini sem
eru í svokölluðum STOFNI
með fjórar eða fleiri grunn-
tryggingar, hafa verið tjón-
lausir á iðgjaldsárinu og stað-
ið í skilum með iðgjöldin.
Kona nokkur sem leitaði til
Neytendasamtakanna uppfyllti
öll skilyrði til endurgreiðslu
en þegar hún ætlaði að sækja
greiðsluna var henni neitað
unt hana með þeim rökum að
hún væri ekki lengur með
tryggingar hjá félaginu. Kon-
an hafði sagt tryggingunni
upp um áramót en þá hafði ið-
gjaldsár hennar runnið út og
hafði hún verið tjónlaus á því
ári. I ljós kom að tryggingafé-
lagið hafði sett sér þá vinnu-
reglu að endurgreiða iðgjaldið
í Maí og ef viðkomandi við-
skiptamaður var ekki með
tryggingu á þeirn tíma gat
hann ekki fengið endurgreitt
óháð því hvort hann uppfyllti
þau skilyrði sem sett voru fyr-
ir endurgreiðslunni.
Tryggingarfélagið hafði
ekki kynnt þessa vinnureglu
fyrir viðskiptavinum sínum og
í kynningarbæklingi hafði
hennar ekki verið getið. Það
var því álit Neytendasamtak-
anna að þar sem konunni
hafði ekki verið kynnt það
skilyrði að endurgreiðsla yrði
aðeins veitt gegn því að trygg-
ingin væri enn í gildi gat fé-
lagið ekki byggt neinn rétt á
því.
Konunni voru endurgreidd-
ar um 5.000 kr. eftir afskipti
Neytendasamtakanna af mál-
inu. Ástæða er til að benda
fólki á að kanna hvort það eigi
inni peninga hjá Sjóvá-Al-
mennum af sömu ástæðum og
þessi kona reyndist eiga.
NEYTENDABLAÐIÐ - Maí 1996
25