Neytendablaðið - 01.02.1998, Blaðsíða 3
Úr starfi Neytendasamtakanna
Aukin útgáfutíðni
Neytendablaðsins,
árgjald hækkar
Stjóm Neytendasamtakanna
hefur ákveðið að auka útgáfu
Neytendablaðsins í sex tölu-
blöð á þessu ári, en á síðustu
árum hafa verið gefin út fjög-
ur tölublöð á ári. Samhliða
því á að styrkja starfsemina
enn frá því sem nú er og mun
það koma fram í bættri þjón-
ustu við neytendur. Auk þess
gerir þetta Neytendasamtök-
unum mögulegt að gæta betur
hagsmuna neytenda almennt.
Til að þetta sé hægt verður
að hækka árgjald Neytenda-
samtakanna. Á síðasta ári var
árgjaldið 2.000 krónur sem er
tiltölulega lágt miðað við ár-
gjald flestra félaga og sam-
taka. Stjóm Neytendasamtak-
anna hefur því ákveðið að ár-
gjald þessa árs verði 2.400
krónur.
Með þátttöku Neytenda-
samtakanna í „International
testing“ skapast miklu meiri
möguleikar á að upplýsa ís-
lenska neytendur um gæði á
einstökum vörum. Þetta er þó
því aðeins mögulegt að út-
vel, enda ljóst að félagsmenn
greiða aðeins 200 krónur
aukalega fyrir hvort tölublað
sem nú bætist við, auk bættrar
þjónustu. Jafnframt biðjum
við þá félagsmenn velvirðing-
ar sem hafa fengið upplýsing-
ar um annað og lægra árgjald
en stjórn Neytendasamtak-
anna hefur nú ákveðið.
gáfutíðni Neytendablaðsins
og starfsemi Neytendasam-
takanna verði aukin. Þessi
breyting skapar einnig betri
möguleika á að upplýsa les-
endur betur um fjölmörg önn-
ur atriði, svo sem um lagaleg-
an rétt þeirra.
Það er von okkar að félags-
mönnum líki þessi breyting
Kvörtunar- og úrskurðarnefndir
Dómstólar landsins eru oftast
ekki árennilegur kostur fyrir
neytanda sem telur á sér brot-
ið í viðskiptum, enda oft deilt
um tiltölulegar lágar upphæð-
ir. Þess vegna hafa Neytenda-
samtökin á umliðnum árum
beitt sér fyrir stofnun kvört-
unar- og úrskurðarnefnda,
þannig að neytendur eigi kost
á greiðri og ódýrri leið til að
fá fljótt úrskurð í ágreinings-
málum sínum við seljendur.
Eru nú starfandi sex slíkar
nefndir.
Þegar neytandi leggur fram
kæru þarf hann að greiða
kærugjald. Kærugjaldið getur
neytandinn fengið endurgreitt
fallist nefndin á sjónarmið
hans að einhverju leyti.
Neytendasamtökin taka við
kvörtunum og málskotum til
allra nefndanna, en fjórar
þeirra eru vistaðar hjá Neyt-
endasamtökun. Þær eru:
Kvörtunarnefnd Neytenda-
samtakanna og Félags ís-
lenskra ferðaskrifstofa, sem
fjallar um ágreining neytenda
og ferðaskrifstofa. Kærugjald
er 3.500 kr.
Kvörtunarnefnd Neytenda-
samtakanna og Félags efna-
laugaeigenda, sem fjallar um
ágreining vegna þjónustu
þvottahúsa og efnalauga.
Kærugjald er 1.000 kr.
Kvörtunarnefnd Neytenda-
samtakanna, Kaupmanna-
samtakanna og Samtaka sam-
vinnuverslana, sem fjallar um
ágreining neytenda og kaup-
manna vegna kaupa á vörum.
Kærugjald er 1.000 kr.
Kvörtunarnefiid Neytenda-
samtakanna, Húseigendafé-
lagsins og Samtaka iðnaðar-
ins, sem fjallar um nýbygg-
ingar og viðhald íbúðarhús-
næðis. Kærugjald er 10.000
kr.
Eftirtaldar tvær úrskurðar-
nefndir sem Neytendasamtök-
in eiga aðild að eru vistaðal'
annars staðar. Þær eru:
Úrskurðarnefnd í vátrygg-
ingamálum, sem fjallar um
ágreining neytenda og vá-
tryggingafélaga. Hún er vist-
uð hjá Vátryggingaeftirlitinu,
Suðurlandsbraut 16, Reykja-
vík, og er síminn 568 5188.
Kærugjald er 3.700 kr.
Úrskurðarnefnd um við-
skipti við fjármálafyrirtœki,
sem fjallar um ágreining neyt-
enda og fjármálafyrirtækja.
Hún er vistuð hjá Sambandi
íslenskra viðskiptabanka,
Austurstræti 5, Reykjavík, og
er síminn 525 6045. Kæru-
gjald er 5.000 kr.
Hikaðu ekki við að nýta
þér kvörtunar- og úrskurðar-
nefndir Neytendasamtakanna
teljir þú á rétti þínum brotið í
viðskiptum. Til þess eru þær.
til starfa þakkar blaðið Vil-
hjálmi Inga Árnasyni, fyrr-
verandi starfsmanni á Akur-
eyri, störf hans.
Nýr starfsmaður á Akureyri
Nýr starfsmaður, Ulfhildur
Rögnvaldsdóttir, hefur hafið
störf á skrifstofu Neytenda-
samtakanna á Akureyri. Ulf-
hildur hefur frá árinu 1975
starfað hjá lífeyrissjóðunum
á Akureyri, en áður starfaði
hún hjá Iðnaðarbanka ís-
lands. Úlfhildur sat í 12 ár í
bæjarstjórn Akureyrar, en
hefur auk þess meðal annars
setið í stjórnum Verkalýðsfé-
lagsins Einingar og Neyt-
endafélags Akureyrar og ná-
grennis.
í viðtali við blaðið sagðist
Ulfhildur hafa mikinn áhuga
á þessu starfi. „Málaflokkur-
inn er vissulega víðfeðmur
og verkefnin því æði mörg.
Neytendur þurfa einstak-
lingsbundna aðstoð, en það
er ekki síður mikilvægt að
leiðbeina neytendum al-
mennt um markaðinn með
ýmsum upplýsingum. Það er
mjög mikilvægt að fólk sé
vakandi fyrir þessu, enda
skipta neytendamál miklu
l'yrir afkomu fjölskyldna."
Um leið og Neytendablað
ið býður Úlfhildi velkomna
NEYTENDABLAÐIÐ - febrúar 1998
3