Neytendablaðið - 01.02.1998, Qupperneq 4
Kvörtunarþjónustan
Vandið verk- og
kaupsamninga
Oft er leitað til Neytenda-
samtakanna vegna verksamn-
inga eða samninga um kaup á
efni í tengslum við verksamn-
inga. Astæðan er ýmist á-
greiningur um aukinn kostnað
við verkið og umfang þess
eða að kaupverð efnis er
hærra en samningur gerir ráð
fyrir. Það sem einkennir þessi
mál er að ekki hafa verið
Svikatilboð -
Delphin-
hreingern-
ingarvélar
Fyrirtækið Felix ehf. á Sel-
fossi stóð að söluherferð á
Delphin-hreingerningar-
vélum á árunum 1996-97,
og fóru sölumenn í heima-
hús og buðu vélarnar til
kaups. Einnig buðu sölu-
menn væntanlegum kaup-
endum pottasett að gjöf ef
þeir útveguðu fólk á þrjár
kynningar á vélinni.
Fjöldi fólks sem tók til-
boði sölumannana og út-
vegaði fólk á þessar þrjár
kynningar hefur haft sam-
band við Neytendasamtök-
in vegna þess að fyrirtækið
Felix ehf. hefur svikið lof-
orðið um pottasettið. Neyt-
endasamtökin hafa haft
samband við forsvarsmann
fyrirtækisins vegna þessara
svika og hefur hann ítrekað
heitið því að staðið verði
við gefið loforð. Nú er
hinsvegar komið árið 1998
og enn hefur fyrirtækið
ekki staðið við marggefin
loforð. Neytendasamtökin
fordæma þessi vinnubrögð
fyrirtækisins og hvetja fólk
til að gjalda varhug við lof-
orðum sem þessum.
gerðir fullnægjandi og tæm-
andi verk- og kaupsamningar
og þar af leiðandi er innihald
samninganna óljóst. Algengt
er að samningarnir hafi verið
munnlegir eða að fólk hafi í
höndunum minnisblað sem
nokkrar kostnaðartölur hafa
verið hripaðar á, en án undir-
ritunar.
Þegar fólk telur vinnu við
verk ófullnægjandi eða telur
að krafist sé of hárrar greiðslu
fyrir vinnu og/eða efni er
staða verkkaupans yfirleitt
slæm. I fyrsta lagi á hann það
á hættu að vinna við verk
stöðvist ef hann greiðir ekki
uppsett verð, eða hann fær
ekki efnið sem samið var um
nema hann borgi fyrst. í öðru
lagi er sönnunarstaðan erfið,
því verkkaupinn þarf að sýna
fram á innihald þess samnings
sem hann telur sig hafa gert
um verkið.
Vegna þessa benda Neyt-
endasamtökin fólki á að
ganga vel frá öllum samning-
um, hafa þá formlega og und-
irskrifaða af aðilum. Þegar
gerðir eru verksamningar er
handhægt að nota tilbúið
verksamningseyðublað sem
Samtök iðnaðarins hafa gefið
út. A því koma fram helstu at-
riði sem taka þarf fram í verk-
samningum og auk þess er á
eyðublaðinu gert ráð fyrir því
að íslenskur byggingarstaðall,
IST 30, sé hluti af samningn-
um. Neytendasamtökin telja
eðlilegt að fagaðilar eins og
verktakar og sölumenn efnis
hafi frumkvæði að því að
gerðir séu formlegir samning-
ar, sérstaklega þegar verðið er
farið að hlaupa á hundruðum
þúsunda króna og mögulegt
er að það hækki. Enda er
óeðlilegt að gera þá kröfu til
neytenda að þeim sé kunnugt
um fyrrnefnt verksamnings-
eyðublað Samtaka iðnaðarins.
Þessi samningseyðublöð
liggja frammi á skrifstofum
deilumálum neytenda vegna
kaupa á vöru eða þjónustu hjá
félagsmönnum í Samtökum
iðnaðarins og ganga mál hratt
fyrir sig hjá nefndinni. Nánari
upplýsingar um nefndina fást
hjá ofangreindum samtökum.
Neytendasamtakanna og
Samtaka iðnaðarins.
Að endingu er rétt að geta
þess að á vegum Neytenda-
samtakanna, Húseigendafé-
lagsins og Samtaka iðnaðarins
er starfandi úrskurðarnefnd
vegna nýbygginga og við-
halds húsa. Hún úrskurðar í
Gjalddagar og
uppsögn trygginga
Síðasta sumar keyptu Sjóvá-
Almennar Húsatryggingar
Reykjavíkur og yfirtóku þar
með tryggingar félagsins. Á
meðan Húsatryggingar
Reykjavíkur störfuðu var
húseigendum í Reykjavík
skylt að kaupa brunatrygg-
ingu hjá félaginu. Aðrar
tryggingar hafa neytendur
hjá öðrum tryggingafélögum
og hafa þannig átt möguleika
á að semja um afslátt vegna
umfangs tryggingaviðskipta
sinna. Þegar Húsatryggingar
Reykjavíkur voru seldar Sjó-
vá-Almennum varð fólki
frjálst að kaupa brunatrygg-
ingu hjá hvaða tryggingafé-
lagi sem er. Þannig getur
fólk sem keypt hefur allar
sínar tryggingar hjá tilteknu
félagi bætt brunatrygging-
unni inn í pakkann sinn og
jafnvel samið um frekari af-
slátt. Til þess að þetta sé
mögulegt þarf að segja upp
viðkomandi tryggingu mán-
uði fyrir gjalddaga. Sjóvá-
Almennar sendu ekki gíró-
seðil fyrir tryggingariðgjald-
inu fyrr en hálfum mánuði
fyrir gjalddaga og því var
orðið of seint fyrir fólk að
segja tryggingunni upp.
Neytendasamtökin vilja
benda fólki á að fylgjast með
gjalddögum trygginga sinna.
Einnig er eðlilegt að trygg-
ingafélög sendi innheimtu-
seðla, eða tilkynningar um
fyrirhugaðar greiðslur til
þeirra sem eru með trygg-
ingaiðgjöldin á boðgreiðsl-
um, það tímanlega að við-
skiptavinir hafi tækifæri til
að segja tryggingum sínum
upp með lögmætum fyrir-
vara ef þeir vilja.
4
NEYTENDABLAÐIÐ - febrúar 1998