Neytendablaðið - 01.02.1998, Qupperneq 6
Tryggðarkort
á lægra vcrði annars staðar
þótt ávinningur tryggðarkorts-
ins sé tekinn með f reikning-
inn. Eins og áður var nefnt er
meiri ávinning að hafa í
sérvöru og þjónustu.
Ókostir tryggðarkerfa
Ekkert er ókeypis hér í heimi,
heldur ekki heimsendingin á
pítsunni, heimsendingin er
einfaldlega innbyggð í verð-
lagninguna. Öllum er ljóst að
hækka þarf álagningu til að
standa straum af tryggðar-
kortum, en vissulega er kostn-
aður við þau mismikill. Sá
sem fær afslátt fær afslátt frá
hærri upphæð en hefði þurft
að vera og sá sem ekki notar
tryggðarkort þarf að borga
enn hærra verð hjá þeim sem
taka við tryggðarkortum.
Tryggðarkortin leiða til
hærra verðlags og það skilar
sér í vísitölu og þar með
hækkun á lánum. Þar sem
verðtryggðar skuldir heimil-
anna námu um 335 milljörð-
um í september 1997 leiðir
1% hækkun á verðlagi til 3,4
milljarða hækkunar á skuld-
um heimilanna. Neytendur
tapa því á tryggðarkortunum
hvernig sem á það er litið.
Tilkoma tryggðarkorta
vekur fjölmargar spurningar
frá samkeppnislegu sjónar-
miði, til dæmis um það hvort
samstarf fyrirtækja um
tryggðarkort sé æskilegt, þar
sem þau eru að vísa viðskipta-
vinum sínum hvert til annars.
Þátttaka greiðslukortafyrir-
tækja í tryggðarkortum er
einnig áleitin spurning. Þessi
fyrirtæki eru á fákeppnis-
markaði og því hlýtur að telj-
ast óeðlilegt að þau séu á
þennan hátt að hafa áhrif á
öðrum mörkuðum.
Tryggðarkort draga úr
verðskyni neytenda. Neytend-
ur eru hvattir til að versla við
ákveðinn aðila vegna óveru-
legs fjárhagslegs ávinnings og
punkta. Verð og gæði skipta
neytandann hinsvegar megin-
máli. Eltingarleikur við
punkta gerir það að verkum
að aðhald neytenda að verði
og gæðum minnkar. Slfkt er
óæskilegt fyrir samkeppnina
og neytendur einnig.
Fjárhagslegur ávinningur
Það er erfitt fyrir neytendur að átta sig á skilmálum tryggðarkorta og hvaða ávinning
þeir hafa af kortunum. Því hefur Neytendablaðið tekið saman upplýsingar um þetta
varðandi öll helstu tryggðarkort sem hér eru á markaði. Það skal tekið fram að reglan er
sú að ef seljandi tekur við fleiri en einu korti, eins og stöðugt er algengara, verður ney-
tandinn að velja hvaða tryggðarkort hann vill nota, hann getur ekki notið fjárhagslegs
ávinnings af nema einu tryggðarkorti hverju sinni.
Sérkort Stöðvar 2 og
Kreditkorta
Skilmálar: Sömu skilmálar
gilda fyrir Euro-kreditkort og
fyrir Sérkort Stöðvar 2 og
Euro, enda er Sérkortið einnig
Euro-kreditkort. Við skil-
málana hefur þó verið bætt
tveimur greinum vegna
Sérkortsins. Þær fjalla um ár-
gjald vegna Sérkortsins og um
afslátt sem viðskiptavinir fá ef
Sérkortið er notað. Afsláttur-
inn er bundinn því að viðkom-
andi sé áskrifandi að Stöð 2.
Allir handhafar Sérkortsins fá
sendar mánaðarlega með
greiðslukortareikningnum
upplýsingar um þau fyrirtæki
sem veita afslátt og um þann
afslátt sem veittur er. Þeir sem
ekki hafa verið með Euro-
kreditkort þurfa að skila inn
umsókn til að fá Sérkortið. Ef
Sérkortshafi vill hætta með
Sérkortið þarf hann að hafa
samband við Kreditkort hf. og
skila kortinu.
Hvað kostar kortið: Sá sem
er áskrifandi að Stöð 2 allt
árið fær árgjald fyrir Sérkortið
frítt, en það er 3.600 kr. Ef
áskrifandi ákveður að vera
ekki með áskrift að Stöð 2 í
tiltekinn tíma verður hann að
greiða 300 kr. á mánuði.
Sérkortið snýst því fyrst og
fremst um að hafa viðskipta-
vini Stöðvar 2 trygga áskrif-
endur, þannig að ef áskrifandi
hættir með Stöð 2 borgar sig
ekki fyrir hann að hafa
Sérkortið.
Fjárhagslegur ávinningur:
Þegar Sérkort er notað á
áskrifandi rétt á afslætti hjá 80
verslunum og þjónustuaðilum
og er afslátturinn frá 0,65%-
15%. Afslátturinn sem þannig
vinnst kemur til frádráttar á
mánaðarlegu áskriftargjaldi að
Stöð 2. Ef afslátturinn reynist
vera hærri í krónum talið en
áskriftargjaldið er mismunur-
inn reiknaður til frádráttar á
reikning korthafans. Fjárhags-
legur ávinningur af þessu
korti er enginn nema korthafi
sé einnig áskrifandi að Stöð 2.
Sé hann það fær hann afslátt.
Kortið veitir til dæmis 0,65%
afslátt hjá KÁ, Kaskó, Kjar-
val, Slaðarkaup, Samkaupum,
Nóatúni, 11-11 og Fjarðar-
kaupum. Sé haft til viðmiðun-
ar að fjölskylda eyði um 600
þúsund krónum á ári í mat- og
hreinlætisvörur cr afslátturinn
á ári 3.900 kr. Þetta er þó ekki
sagan öll því taka verður tillít
til verðmunar á milli verslana.
Sé miðað við könnun Neyt-
endasamtakanna og DV og
tekið dæmi um tvær verslun-
arkeðjur með svipað þjónustu-
stig, 11-11 sem er með
Sérkortið og 10-11 sem ekki
tekur við tryggðarkortum,
kosta vörurnar í 11-11 8,5%
meira þegar ekki er notað
Sérkort en 7,8% meira að
teknu tilliti til ávinnings af
Sérkortinu.
Sérkortið gefur 1,25% af-
slátt af bensínverði hjá Esso
og Olís. Bensínlítrinn kostar
76 kr. fyrir 95 oktana bensín
hjá báðum þessum félögum
og 80,70 kr fyrir 98 oktana
bensín. Þannig sparast 1.140
kr. miðað við 1200 lítra notk-
un á ári á 95 oktana bensíni og
verð eins og það var 20. janú-
ar sl. Dæli menn sjálfir er
verðið hins vegar 74 kr. á lítra
eða tveggja króna afsláttur.
Dæli menn sjálfir er um sama
þjónustusti^ að ræða og hjá
Orkan og OB-bensíni. 95 okt-
ana bensín kostar 70,60 kr. hjá
Orkan, þannig að munurinn er
3,40 kr. Sé áfram miðað við
1200 lítra sparast 4.080 kr.
með því að skipta við Orkan á
meðan þeir fá 1.140 kr. í af-
slátt af Sérkortinu. Því tapast
2.940 kr. með því að halda sig
við Sérkort Stöðvar 2 í stað
þess að kaupa það þar sem
það er ódýrast.
Fríðindakort Visa ísland
Skilmálar: Engir sérstakir
skilmálar gilda um Fríðinda-
kortið umfram almenna við-
skiptaskilmála Visa-kredit-
korta. Ef korthafi hefur átt
viðskipti við fyrirtæki sem
veitir afslátt er uppsafnaður
afsláttur færður mánaðarlega
til frádráttar á reikningi hans.
Hvað kostar kortið: Allir
handhafar Visa-kreditkorta
geta fengið Fríðindakortið.
Þeir sem nota Visa-kreditkort
þurfa ekki að sækja sérstak-
íega um Fríðindakortið og
ekki þarf að greiða árgjald og
stofngjald þar sem það er þeg-
ar greitt, en árgjald af al-
mennu Visa-korti er 1.900 kr.
og stofngjaldið 1.000 kr.
Fjárhagslegur ávinningur:
Fríðindakortið veitir afslátt
FRÍÐINDAKORTIÐ
'I iiM"H • I- H 11> l \ i' • \ » •> l \ i l t lt
hjá ýmsum sölu- og þjónustu-
aðilum hér á landi sem nú eru
107. Afsláttur sem fyrirtækin
veita er á bilinu 3%-15%.
6
NEYTENDABLAÐIÐ - febrúar 1998