Neytendablaðið - 01.02.1998, Qupperneq 9
Markaðskönnun
Örbylgjuofnar, fjölbreytni
og gæði eru meiri
Orbylgjuofnar eru öruggir,
þægilegir í notkun og
spara rafmagn í samanburði
við eldavélar og ofna. Og úr
nægu er að velja, eins og sjá
má í markaðskönnun sem
Neytendablaðið gerði um
miðjan janúnar. Þrjár mis-
munandi gerðir ofna eru til
sölu, venjulegir örbylgjuofn-
ar, örbylgjuofnar með grilli
og samsettir ofnar. Mögu-
leikar og vörumerki eru einn-
ig í rniklu úrvali. Og verðið er
breytilegt, þannig kosta
ódýrustu ofnarnir 13.900 kr.
en þeir dýrustu 55.000 kr., en
þá er maður raunar kominn
með allt aðra vöru í hend-
urnar.
Sé örbylgjuofninn notaður
á réttan hátt er þetta örugg og
fljótleg leið til til að þíða mat,
hita hann upp og elda. Það er
afar lítil hætta á því að ör-
bylgjurnar berist út fyrir ofn-
inn. Mesta hættan er hinsveg-
ar matareitrun vegna þess að
maturinn hefur ekki verið hit-
aður nægilega.
Mismunandi
gerðir örbygjuofna
Þrjár gerðir örbylgjuofna eru
framleiddar. Odýrasta og
algengasta gerðin eru hefð-
bundnir örbylgjuofnar sem
nota eingöngu orku frá ör-
bylgjum til hitunar. Þeir elda
matinn með því að láta stutt-
bylgjugeisla dynja á honum.
Þetta örvar vatnssameindirnar
í matnum sem veldur því að
hann hitnar. Önnur gerðin eru
ofnar sem sameina örbylgju-
hitun og grillun svo hægt er
að brúna matinn og gera hann
stökkan. I þessum gerðum má
nota annaðhvort grill- eða ör-
bylgjuna, en í flestum tilvik-
um er einnig hægt að nota
þær samtímis eða í tengslum
hvora við aðra. Þriðja gerðin
er ýmist kallaður samsettur
ofn eða þríþættur ofn og er í
senn örbylgjuofn, grill og
hefðbundinn ofn (með hita-
hringstreymi - blástur). Þessa
eiginleika er hægt að nota
hvern fyrir sig, en oftast einn-
ig saman eða tengja þá
saman. I gæðakönnun sem
International Testing hefur
gert kom í ljós að samsettu
ofnarnir unnu almennt vel og
skiluðu ofnbökuðum mat á
styttri tíma en í venjulegum
bökunarofni.
Gæðin eru meiri
International Testing og sæns-
ka neytendablaðið Rád och
rön hafa nýlega gert gæða-
kannanir á öllum gerðum
örbylgjuofna og franska neyt-
endablaðið Que Choisir á
örbylgjuofnum með grilli.
Félagsmenn geta fengið ljósril
af þessum könnunum á skrif-
stofu Neytendasamtakanna.
Eftirtaldir ofnar í þessum
gæðakönnunum eru til í ver-
slunum hér (innan sviga í
hvaða blöðum):
Venjulegir örbylgjuofnar:
AEG Micromat 21 (þýsk),
Melissa M WT 2010 (sænsk,
frönsk), Sharp R-4V17
(þýsk), Sharp R 210 (ensk),
Siemsen HF 22023 (þýsk).
Örbylgjuofnar með grilli:
Daewoo KOG 3667 (frönsk),
Miele M 626 (sænsk), Pana-
sonic NN-K 354 (frönsk,
ensk), Panasonic NN-K456
(þýsk), Sharp R4P58 (frönsk),
Sharp R-4P58 (þýsk), Whirl-
pool MT 243 (sænsk, frönsk).
I heild hituðu örbylgjuofn-
arnir í þessari könnun jafnar
en örbylgjuofnar í fyrri gæða-
könnunum.
Örbylgjuofnarnir eru al-
mennt orðnir betri en áður
hvað jöfnun á upphitun
varðar. Og hvað varðar frávik
í hitastigi matarins voru
tlestar gerðir viðunandi.
Sjálfvirka afþíðingarkerfið
reyndist vel og í sumum
tilvikum betur en handvirki
mátinn. Fullkomnustu ofnarn-
ir stóðu einnig uppúr í jafnri
upphitun og eldun þegar mið-
að er við hefðbundna blást-
ursrofna og reyndust miklu
fljótvirkari. Til dæmis tók
klukkustund að elda tvo kjúk-
lingahelminga í hefðbundnum
ofni, en aðeins 30 mínútur í
hitahringstreymi og örbylgj-
um í samsettum ofni.
Handvirkir ofnar með
góðum merkingum voru taldir
einfaldir og góðir í notkun.
Hinsvegar var erfitt að stilla
nákvæmlega.
Sjálfvirkni
A einföldustu örbylgjuofnun-
urn er eingöngu hægt að stilla
afkastagetuna (wött), eldunar-
tímann og grilltímann ef grill
er ti I staðar. Rafrænar gerðir
örbylgjuofna eru hinsvegar
með rnarga mismunandi
möguleika og fjölmörg kerfi
(prógrömm).
Flestir þessara örbylgju-
ofna eru með afþíðingarkerfi
F.h. bls. 12
NEYTENDABLAÐIÐ - febrúar 1998
9