Neytendablaðið - 01.02.1998, Qupperneq 14
Markaðskönnun
Brauðgerðarvélar gera
baksturinn auðveldan
Brauðgerðarvélar eru eins og einkabak-
an, þær ljúka allri bakstursvinnunni fyrir
mann á þremur til fjórum klukkustund-
um; allt frá því að hnoða deigið til full-
bakaðs brauðs. Allt sem gera þarf er að
taka til hráefnið og setja það í pott vélar-
innar sem taka má upp úr sjálfri vélinni.
Síðan er bara að stilla vélina og kveikja á
henni. Það er líka hægt að stilla hana
þannig að hún byrji bakstur að nóttu og
er þá hægt að vakna við ilmandi, nýbak-
að brauð. Fullkomnari gerðir brauðvéla
geta einnig bakað kökur.
Neytendablaðið hefur gert könnun á
Og svo
bökum við
Hvernig brauðið á að vera fer eftir
smekk hvers og eins. Fjölbreytni má
auka með því að nota mismunandi
korntegundir og Finna út þær brauð-
tegundir sem henta. Hér á eftir er
grunnuppskrift að brauði:
Hveiti/korn *)
Salt
Síróp eða púðursykur
Matarolía
Ylvolgt vatn
Þurrger
6V2 dl **)
1 tsk. (5 g)
1 msk. (10 g)
2 msk. (25 ml)
2'/2 dl
lV2tsk. (4 g)
*) Hér prófar maður sig áfram. Ef
það á að baka franskbrauð er bara not-
að hveiti. Uppástunga að brauði, hæfi-
lega grófu - við köllum það sólblóma-
brauð - gæti verið eftirfarandi: 5 dl af
hveiti, 1 dl af heilhveiti, V2 dl af sól-
blómafræjum. Bakarinn okkar bauð
starfsfólki Neytendasamtakanna að
prófa glænýtt sólblómabrauð og var
samdóma álit manna að það væri gott
á bragðið, létt og gott að skera. Nota
má fjölmargar aðrar tegundir af komi,
svo sem hörfræ, hafraklíð, rúgflögur
og hveitikím og blanda jafnvel saman
fleiri tegundum upp í V2 dl. Bakarinn
okkar taldi að ef notað væri minna en
4 V2 dl af hveiti yrði brauðið of
„þungt“.
**) Rúmmál og þyngd á hveiti eða
korni: Hveiti 1 dl: 60 g, heilhveiti 1 dl:
70 g, annað korn 1 dl: 50 g.
framboði brauðgerðarvéla í verslunum
hérlendis. Könnunin sem gerð var í byrj-
un janúar náði til sérvöruverslana á höf-
uðborgarsvæðinu, Akureyri, Isafirði og
Selfossi. Við fundum níu brauðgerðar-
vélar sem kostuðu á bilinu 15-26 þúsund
krónur. „International Testing“ hefur
einnig nýlokið gæðakönnun á brauðgerð-
arvélum, en aðeins ein þeirra sem hér er
á markaði var í þeirri könnun.
Allar vélarnar sem við fundum hér eru
með tímastilli og er hægt að stilla þær
allar 13 stundirfram í tímann. Ein vél,
Aroma-vélin, er með 14V2 klst. stillingu.
Allar vélarnar eru með stillingu til að
halda brauðinu heitu eftir bakstur og láta
vita með hljóðmerki þegar bakstri er lok-
ið.
Gæðakönnun
í gæðakönnun International Testing var
rannsakað hve vel brauðgerðarvélarnar
baka og hversu auðveldar þær eru í notk-
un. Aðeins ein vél af sextán í gæðakönn-
un IT er seld hér, Panasonic SD-200.
Þetta er raunar sú vél sem fær bestu ein-
kunnina, eða 8 af 10 mögulegum. Aðrar
vélar fá 6 til 7. Panasonic-vélin er hins-
vegar næstdýrasta brauðgerðarvélin sem
Neytendablaðið fann, og kostar 24.500
krónur.
Þessar vélar eru til sölu
Vörumerki, vörunúmer Stað- greiðslu- verð Þyngd véiar Hve mikið deig mest?
Ide line CBM 300 14.900 1 4 kg 1 kg
Le chef BGB 404 14.9002 7 kg 1 kg
Wifta/lde line TS 2388 15.900 7 kg 900 g
Boman CB 527 16.055 8 kg 1 kg
Melissa BMH 550 16.8003 8,5 kg 900 g
Aroma ABM 230 16.5004 7,7 kg 1 kg
Severin BM 3980 16.9005 6 kg 750 g
Panasonic SD-200 24.5006 7,1 kg 750 g
El-Gemel HB 021E 25.9007 6,2 kg 750 g
Athugasemdir:
Uppgefið verð í töflu er lægsta staðgreiðsluverð sem fannst.
1) Seld á þessu verði í Jókó á Akureyri, kostar 15.440 kr. í Radíóbúðinni.
2) Seld á þessu verði í Siemens-búðinni á Akureyri, kostar 16.900 kr. hjá Rafha.
3) Seld á þessu verði í KEA-byggingavörum. Kostar allt að 17.900 kr.
4) Seld á þessu verði í Radíóvinnustofunni, Akureyri. Seld í verslunum víða um
land og kostar allt að 19.817 kr.
5) Seld á þessu verði í Straumi á ísafirði. Seld í verslunum víða um land á allt að
17.955 kr. sem er algengt verð
6) Seld á sama verði í Pfaff og Radíóvinnustofunni, Akureyri.
7) Seld á þessu verði í KÁ, Selfossj. Kostar 25.935 kr. hjá Einari Farestveit.
14
NEYTENDABLAÐIÐ - febrúar 1998