Neytendablaðið - 01.02.1998, Page 15
Heilbrigði
Borgar umstangið sig?
Að hverju
þarf að gæta:
Leiðarvísir, uppskriftir
Leiðarvísar eru misgóðir og ekki
alltaf á íslensku. Rétt er að ganga
úr skugga um að maður kunni að
nota vélina að fullu, til þess er hún
jú keypt. Sumir seljendur láta
einnig fylgja með uppskriftabæk-
linga eða -blöð.
Hraðbakstur
Eitt hnoðstigið fellur út og styttir
tímann um klukkustund en brauð-
ið kann að verða minna en venju-
lega.
Valmöguleikar
Flestar vélar hafa þann eiginleika
að hnoða deigið og lyfta því og
stöðva síðan. Þá má taka deigið
úr vélinni og forma það að vild,
svo sem í pítsubotn, bollur eða
annað.
Neytendablaðið hefur reiknað út hvað
kostar að baka sjálfur í brauðgerðarvél-
inni. Verð á hráefni var kannað í lág-
vöruverðsverslun, stórmörkuðum og
klukkubúðum. Ef miðað er annarsvegar
við að allt sé keypt þar sem það er ódýr-
ast og hinsvegar þar sem það er dýrast
kostar hráefni eftirfarandi í 615 g brauð:
Franskbrauð 15-30 krónur, heilhveiti-
brauð 16-31 krónurog sólblómabrauð
23-42 krónur. Samkvæmt upplýsingum
blaðsins kostar rafmagnsnotkunin við
baksturinn um 7 kr. á hvert brauð.
Við könnuðum verð á brauði í versl-
unum og bakaríum. Þegar tekið var með-
alverð og það umreiknað til sömu
þyngdar og sólblómabrauðið okkar er
verðið eftirfarandi: Franskbrauð 175 kr.,
heilhveitibrauð 185 kr. og fjölkoma-
brauð 200 kr.
Við miðum við íjölskyldu sem borðar
ljögur slík brauð á viku og er hlutfallið
30% af fransk- og heilhveitibrauðum og
70% af fjölkornabrauði. Miðað er við
meðalverð á hráefni eins og það reyndist
vera í könnun Neytendablaðsins. Þá
kostar á ári að baka heima í brauðgerðar-
vélinni 7.800 kr., en það kostar 40.500
kr. að kaupa sama magn í búð eða bak-
aríi. Sparnaðurinn er þvf 32.700 kr. á ári
og er það nokkru hærri upphæð en verð
dýrustu brauðgerðarvélarinnar sem hér
er á markaði. Raunar má lækka hráefnis-
kostnaðinn enn meira með því að kaupa
allt hráefni á lægsta mögulega verði. En
minnt skal á að brauðverð er einnig
breytilegt milli búða/bakaría. Það er þó
ljóst að umstangið við baksturinn marg-
borgar sig.
Hljóðmerki fyrir rúsínur
Ef þú vilt gera rúsínu- eða ávaxta-
brauð gefur vélin merki þegar
bæta á ávöxtunum út í.
Kælimöguleiki
Fullbakað brauð verður rakt og
skorpan seig ef það er ekki tekið
strax úr vélinni. Sumar vélar gefa
möguleika á kælingu sem hindrar
að þetta gerist.
Ef rafmagnið slær út
Kannið hjá seljanda hvað gerist ef
rafmagn fer af eða slær út stutta
stund. „Geymir" vélin stillinguna
og heldur áfram eins og ekkert
hafi í skorist þegar rafmagn kemst
á aftur?
Innflytjendur
Sex innflytjendur selja sjálfir beint til neytenda, en ofnana má
oft fá í fleiri verslunum. Fákanes og I. Guðmundsson selja
ekki beint til neytenda.
Einar Farestveit
Fákanes
Fálkinn
I. Guðmundsson
Japis
Raftækjaverslun íslands
Smith og Norland
Radíóbúðin
El-Gemel, Severin
Le Chef
Melissa
Aroma
Panasonic
Melissa, Wifta-lde line
Boman
IDE line
15
NEYTENDABLAÐIÐ - febrúar 1998