Neytendablaðið - 01.02.1998, Page 16
Húseigendatryggingar
Hvað er húseigendatrygging?
Húseigendatrygging er vá-
trygging sem býðst húseig-
endum og inniheldur vátrygg-
ingavernd gegn helstu tjónum
sem orðið geta á húseign, að
undanskildum þeim tjónunr
sem vátryggð eru með lög-
boðnum vátryggingum. Hús-
eigendatryggingar hafa einnig
að geyma ábyrgðartryggingu
sem bætir tjón húseiganda
þegar hann er krafinn um bæt-
ur vegna skaðabótaábyrgðar
sinnar sem húseigandi. Hús-
eigendur eru ekki skyldaðir
samkvæmt lögum til að kaupa
þessa vátryggingu, heldur er
um að ræða frjálsa vátrygg-
ingu. Húseigendatrygging er
hvorki lögákveðin né sam-
ræmd með neinskonar staðli.
Hinsvegar hefur myndast
venja um það hvað felst í vá-
tryggingunni, og er því bóta-
sviðið svipað hjá öllum vá-
tryggingafélögum. Það er þó
alls ekki eins. Sum vátrygg-
ingafélög bjóða misvíðtæka
húseigendatryggingu, vita-
skuld gegn misháu iðgjaldi.
Bótasvið
húseigendatrygginga
I dæmigerðri húseigenda-
tryggingu er að finna tiltekna
vátryggingavernd. Hér að
neðan er gerð grein fyrir
helstu atriðum þessarar vernd-
ar, en ekki er um að ræða
tæmandi talningu á bótasviði
eða undanþágum.
Vatnstjónstrygging
Með vatnstjónstryggingu fæst
bætt tjón vegna skyndilegs
leka úr leiðslum hússins og
þegar vatn flæðir úr hreinlæt-
istækjum, vatnsrúmum og
fiskabúrum, svo og vatns-
krönum sem gleymst hefur að
skrúfa fyrir. Sum félög bjóða
upp á ákveðið val, til dæmis
tvo möguleika um það hvers-
konar vatnstjónstrygging er
innifalin í vátryggingunni.
Vatnstjónstryggingin er án efa
einn mikilvægasti þátturinn í
húseigendatryggingum, þar
sem vatnstjón er algengt í
húsum hér á landi og hefur
valdið miklu eignatjóni.
Verulegur hluti þeirra bóta
sem greiddar eru vegna hús-
eigendatryggingum eru vegna
vatnstjóns.
Fok/óveðurstrygging
Með þessari tryggingu fæst
bætl tjón sem verður á húsinu
þegar vindur nær að rjúfa þak,
glugga eða veggi húseignar-
innar. Skilyrði bótaskyldu er
að vindhraði hafi náð 11 vind-
stigum.
Húsaleigutrygging
Með henni er bætt húsaleiga
sem vátryggður tapar eða
verður að greiða ef hann
neyðist til að flytja úr hús-
næðinu vegna tjóns sem er
bótaskylt úr vátryggingunni.
Slíkt getur til dæmis komið
fyrir þegar um meiriháttar
vatnstjón er að ræða.
Innbrotstrygging
Með henni eru bættar
skemmdir á húsinu vegna inn-
brots eða tilraunar til innbrots.
Ekki má rugla þessari vá-
tryggingavernd saman við
innbrotsþjófnaðartryggingu
sem almennt er innifalin í
heimilistryggingum og bætir
tjón á innbúi.
Glertrygging
Með henni er bætt tjón á
venjulegu rúðugleri ef það
brotnar eftir að því hefur ver-
ið komið endanlega fyrir. Yf-
irleitt eru gerðar undantekn-
ingar frá bótaskyldu, til dæm-
is vegna byggingarfram-
kvæmda og viðhalds.
Ábyrgðartrygging
húseiganda
Vátryggingin greiðir bætur
vegna tjóns sem húseigandi
veldur og ber skaðabóta-
ábyrgð á sem eigandi hús-
eignar. Vátryggingin greiðir
því ekki bætur vegna tjóns
sem húseigandi veldur, ef
tjónið stendur ekki í neinu
sambandi við hina vátryggðu
húseign. Það er oft á tíðum
álitaefni hvort skilyrði bóta-
skyldu eru fyrir hendi úr þess-
um lið húseigendatryggingar,
og ákveðin grundvallarþekk-
ing í almennum skaðabótarétti
er nauðsynleg þegar bóta-
skylda er könnuð. Grundvall-
arskilyrði þess að húseigandi
geti talist skaðabótaskyldur er
að hann hafi valdið tjóninu af
gáleysi, til dæmis þannig að
honum hafi orðið á mistök
eða hann gerst sekur um van-
rækslu. Húseigendur bera þó
víðtækari ábyrgð þegar um er
að ræða bilun á búnaði sér-
eignar og lagna.
Sem dæmi um tjón sem
yrðu eftir atvikum greidd úr
ábyrgðartryggingu húseig-
anda má nefna tjón vegna
þess að grýlukerti eða snjór
fellur af húsþaki á fólk eða
bfla og tjón vegna þess að
gangandi vegfarandi dettur í
hálku og slasast við inngang á
húsi. Þetta á sérstaklega við
um verslunarhúsnæði og aðrar
byggingar þar sem er mikill
umgangur eða umferð, vegna
þess að ríkari kröfur eru gerð-
ar í þeim tilfellum um að-
gæslu húseiganda, þ.e. að
hann geri ráðstafanir til að
koma í veg fyrir tjón.
Ýmsir bótaþættir
Að auki bætir húseigenda-
trygging oft á tíðum tjón
vegna skyndilegs úrhellis og
NEYTENDASTARF ER ÍALLRA ÞÁGU
Ágæti hf.
Vagnhöfða 13-15, Reykjavik
Feróaskrifstofa Reykjavikur
Aðalstræti 9, Reykjavik
Samvinnuferðir-Landsýn
Austurstræti 12, Reykjavík
GJ Fossberg hf.
Skúlagötu 63, Reykjavik
Herjólfur hf.
Básaskersbryggju,
Vestmannaeyjum
Hitaveita Reykjavíkur
Húsgagnahöllin hf.
Biidshöfða 20, Reykjavik
íslenska útflutnings-
miðstöðin hf.
Síðumúla 34, Reykjavík
íslenskir aóalverktakar
Keflavíkurflugvelli
Jón Bakan ehf.
Nýbýlavegi 14, Kópavogi
Gnoóavogi 44, Reykjavík
Karl K. Karlsson hf.
Skúlatúni 4, Reykjavík
KEA Rafiagnadeiid
Óseyri 2, Akureyri
Kjarnafæói hf.
Fjölnisgötu 1b, Akureyri
Kjötiðnaðarstöð KEA
Hafnarstræti 91-95, Akureyri
Málningaþjónustan hf.
Stillholti 16-18, Akranesi
Mjólkursamlag KEA
Akureyri
Nóatúnsbúðirnar
höfuóborgars væóinu
Osta- og smjörsaian
Bitruhálsi 2, Reykjavik
Skeljungur hf.
Suðurlandsbraut 4,
Reykjavík
Sláturfélag Suóurlands
Fosshálsi 1, Reykjavík
Póstdreifing ehf.
Skipholti 11-13, Reykjavík
Veislueldhúsió Skútan
Hólshrauni 3, Hafnarfirói
Veitingahúsiö Viö Tjörnina
Templarasundi 3, Reykjavík
Verkamannafélagið Hlif
Reykjavíkurv. 64, Hafnarfirói
Verslanir KÁ
Suóurlandi
Verslunin 17
Laugavegi 91, Reykjavik
Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur
Kringlunni 7, Reykjavik
Visa ísland - Greiðslumiðlun
hf.; veffang: www.visa.is
16
NEYTENDABLAÐIÐ - febrúar 1998