Neytendablaðið - 01.02.1998, Qupperneq 18
Gæða- og markaðskönnun
GSM-símar, verð og
gæði breytilegt
Neytandablaðiö gerði um miðjan janúar markaðskönnun á GSM-símum á höfuðborgarsvæðinu. Til sölu
eru 24 mismunandi símar og verð símanna er mjög breytilegt, eða á bilinu 19.900-69.900 kr. miðað við
staðgreiðslu. Neytendablaðið hefur einnig gert gæðakönnun á þessum símum í samvinnu við International
Testing og er helmingur þeirra síma sem hér eru á markaði í þessari gæðakönnun. í Ijós kemur að gæði
geta verið breytileg. Samkeppnin á þessum markaði er hörð og vænta má verðlækkana. Þannig að margt er
að varast í GSM-frumskóginum.
Markaðskönnun
Stærð síma
Eins og sjá má í töflu eru sím-
ar þessir afar mismunandi að
stærð og gerð. Þeir geta vegið
allt frá 99 gr og upp í 250 gr.
Þótt það sé kostur að hafa lít-
inn síma getur það lfka verið
vandamál að tala í slíkan síma,
sérstaklega ef þeir eru mjög
stuttir og þá verður að vera
hægt að opna símann þannig
að hann lengist. Stærð símans
skiptir miklu máli og eru til
dæmis Motorola StarTac 70,
Panasonic G 600 og Ericsson
768 og 788 mjög litlir og létt-
ir. Sony CMD-Zl er einnig
lítill en þyngri sem stafar af
mjög kröftugri rafhlöðu.
Rafhlaða
Tegund ratlilöðu skiptir miklu
máli og það er ánægjulegt að
NI-CD-rafhlöður hafa horfið
af markaðnum en ending
þeirra rýrnaði mjög ef ral'-
hlaðan var ekki alveg tóm
áður en hún var endurhlaðin.
Ni-MH (Nikkel-Metal
Hydridej-rafhlaðan er algeng-
ust á markaðnum en þetta er
miklu síður vandamál við
þessa tegund og hættan á að
þurfa að fleygja rafhlöðu eftir
nokkra mánuði er því lítil
með Ni-MH. Li-ion (Lithium-
ion) rafhlaðan er nýjasta teg-
und rafhlaðna enda dýrari en
Ni-MH. Li-ion er alveg laus
við þetta vandamál, auk þess
sem hún hefur betri endingar-
tíma. Það er rétt að hafa í
huga að endingartími rafhlöðu
18
getur verið mismunandi og
því getur verið gott að eiga
aukarafhlöðu. Verð á þeim er
einnig mismunandi og getur
haft áhrif á hvar hagstæðast er
að kaupa símann sé keyptur
bæði sími og aukarafhlaða.
Tekið skal fram að Radíomið-
un og Hátækni selur tvenns-
konar aukarafhlöður af Ni-
MH gerð í Ericsson 628 og
688. Þá er hægt að kaupa
bæði Ni-MH og Li-ion raf-
hlöðu í Nokia 61 l0-síma.
íslenskar leiðbeiningar
Nauðsynlegt er að auðvelt sé
og fljótlegt að læra þær að-
gerðir sem í boði eru í við-
komandi síma. Islenskar leið-
beiningar fylgja mörgum
þessara síma en ekki öllum og
eru misítarlegar. Ef íslenskar
leiðbeiningar liggja ekki fyrir
og þú kannt ekki tungumálið
sem leiðbeingarnar eru á, er
best að láta sölumanninn sýna
nauðsynlegustu aðgerðirnar.
Hjá Landssímanum er verið
að þýða leiðbeiningar fyrir
Sagem 730, og Ericsson-sím-
anna GF 788, GH 688 og GH
628. Hjá Klapan fylgir til
dæmis ítarlegur leiðarvísir á
íslensku fyrir Panasonic G
500, en stuttur leiðarvísir á ís-
lensku fylgir öðrum símum
sem Klapan selur. Þá býður
Radiomiðun upp á námskeið í
notkun símanna.
Samkeppni, tilboð
Á töflunni á bls. 19 má sjá
staðgreiðsluverð eins og það
var um miðjan janúar. Verð á
GSM-símum breytist hratt,
enda mikil samkeppni á þess-
um markað. Hjá einu fyrir-
tæki, Radiomiðun, var blað-
inu sagt að verð yrði lægra
upp úr mánaðamótum janúar-
febrúar vegna lægra innfluln-
ingsverðs. Þvf má vænta verð-
breytinga hjá öðrum söluaðii-
um.
NEYTENDABLAÐIÐ - febrúar 1998