Neytendablaðið - 01.02.1998, Blaðsíða 23
Neytendur um allan heim
Svíþjóð:
Ný rafmagns-
lög vernda
neytendur
betur
Frá og með síðustu áramót-
um tóku gildi í Svíþjóð ný
lög um rafmagnsveitur. í
lögunum er m.a. að finna
ákvæði um að seljanda sé
skylt að bæta tjón sem
verður, til dæmis á matvæl-
um sem eyðileggjast í
frysti, vegna rafmagnsleys-
is þegar seljandi rafmagns-
ins ber ábyrgð á rafmagns-
leysinu. Einnig er að finna í
lögunum ákvæði um að
óheimilt er að grípa til
harðra lokunaraðgerða þótt
greiðsla berist ekki. Raf-
magnsveitur þurfa að senda
nokkrar ítrekanir til not-
enda með ákveðnum hætti
og ekki má loka fyrr en fé-
lagsmálanefnd viðkomandi
sveitarfélags hefur fengið
tilkynningu um fyrirhugaða
lokun, enda gert ráð fyrir
að nefndin geti gripið inn í
og greitt reikninginn sé
þess talin þörf. Enda er hér
um að ræða nauðsynlega
þjónustu sem neytendur
geta alls ekki verið án.
Athugasemd
vegna gæða-
könnunar á
filmum
f síðasta Neytendablaði var
birt gæðakönnun á filmum. í
texta með könnuninni sagði að
sú filma sem reyndist best
meðal 35 mm filmna, Fu-
jicolor Reala, væri ekki seld
hér á landi. Þetta er ekki rétt,
hún er seld hér en er talsvert
dýrari en Fujicolor Super G
plus, sem er algengasta 35
mm Fuji-filman. Fujicolor
Reala-fdman er aðeins flutt
inn í einni stærð, 36 mynda,
og kostar hún 725 kr. hjá um-
boðsaðila en sama stærð af
Fujicolor Super G plus- filmu
kostar 495 kr.
Erfðabreytt matvæli, val neytendans skiptir öllu
Neytendaamtök Evrópu
(BEUC) hafa hvatt þingmenn
á Evrópuþinginu að taka af-
stöðu gegn nýjustu tillögum
framkvæmdastjórnar ESB um
merkingar á matvælum sem
innihalda að hluta erfðabreytt
soja og maís. Verði hugmynd-
ir framkvæmdastjórnarinnar
að veruleika þarf ekki að
merkja flest þau matvæli sem
innihalda erfðabreytt hráefni
að hluta. Samkvæmt þessum
hugmyndum þarf aðeins að
merkja afurðir úr soja og maís
ef hægt er að finna í endan-
legu vörunni merki um DNA
(litningar/gen) eða prótein
sem eru erfðabreytt. í fram-
kvæmd eru margir efnisþættir
matvæla hinsvegar þróaðir
eða umbreyttir á þann hátt að
DNA og prótein eru ekki
lengur til staðar í sínu upp-
^éSmmSmmsc'" - *
SAINSBURYS
'jceéipmtim
MAOÍ WIIH ....
GEHETICAUY MODIFIED TOMATOIl
runalega formi og finnast því
ekki t matvælunum.
BEUC telur að vörur sem
framleiddar eru með erfða-
breyttu soja og maís eigi að
aðgreina að fullu frá fæðu-
keðjunni, þannig að hægt sé
með upplýsingum á umbúðum
vara að bera kennsl á þau mat-
væli sem innihalda erfðabreytt
efni. A þennan hátt einan hafa
neytendur raunverulegan
möguleika á að velja og
hafna.
Aðgreining á erfðabreytt-
um vörum og vörum fram-
leiddar á hefðbundinn hátt
mun tryggja að framleiðendur
sjálfir þurfa að sannfæra neyt-
endur um öryggi, gæði og
innihald vöru sem að hluta
eða að öllu leiti er framleidd
með erfðabreyttum lífverum.
Neytandinn á að hafa valið á
grundvelli upplýsinga, hann á
einfaldlega kröfu á að vita
hvað það er sem hann kaupir.
Erfðabreytt matvæli eru þar
engin undantekning.
Þing Neytendasamtakanna 1998
Þing Neytendasamtakanna verður haldið í Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðinni), Reykjavík,
dagana 24.-25. apríl nk.
Samkvæmt 7. grein laga Neytendasamtakanna eiga allir félagsmenn, sem tilkynna um þátttöku
með eins mánaðar fyrirvara, rétt til setu á þinginu.
Stjórn Neytendasamtakanna hvetur þá félagsmenn sem áhuga hafa á að sitja þingið að tilkynna
um þátttöku sem allra fyrst og eigi síðar en 24. mars nk. Þátttöku ber að tilkynna til skrifstofa
Neytendasamtakanna í Reykjavík, ísafirði, Akureyri eða Selfossi.
Stjórn Neytendasamtakanna
NEYTENDABLAÐIÐ - Janúnar 1998
23