Neytendablaðið


Neytendablaðið - 01.06.1998, Page 5

Neytendablaðið - 01.06.1998, Page 5
Þing Neytendasamtakanna 1998 Stjórn Neytenda- sam- takanna Eins og getið var um í síð- asta blaði var sjálfkjörið til stjórnar Neytendasamtak- anna sem tók við á þing- inu. Mistök urðu hins veg- ar við birtingu nafns fulltrúa Austurlands, en það er Ólafur Sigurðsson, Hofshreppi. Auk þess drógu báðir fulltrúar Suð- urlands framboð sín til baka og voru tveir nýir fulltrúar Suðurlands kjörn- ir í stjórn á þinginu, Birgir Þórðarson, Holta- og Landssveit, og Heimir Davíðsson, Laugardals- hreppi. Samstarf við stéttarfélög Þingið taldi mikilvægt að samstarfí við stéttarfélög og samtök þeirra verði framhaldið og það aukið, meðal annars til að knýja á um lægra verðlag um land allt, fylgjast með mark- aðnum og veita neytend- um upplýsingar. Neytendalöggjöf þarf enn að bæta Jón Magnússon varaformaður rœðir við Jón Karlsson. ingið samþykkti nokkrar ályktanir þar sem hvatt er til nýrrar lagasetningar eða endurbóta á eldri lögum til að tryggja eðlilegan neytendarétt. Ný kaupalög og lög um þjónustukaup „Þing Neytendasamtakanna skorar á viðskiptaráðherra að beita sér fyrir því að lagafrum- varp um ný kaupalög verði lagt fram á næsta hausti. Þing- ið leggur á það þunga áherslu að tekið verði fullt tillit til þeirra athugasemda sem Neyt- endasamtökin sendu frá sér vegna frumvarpsdraganna. Jafnframt að endanleg gerð frumvarpsins verði gerð í samvinnu við Neytendasam- tökin. Miðað verði við að ný kaupalög taki gildi um leið og lög um þjónustukaup eða um næstu áramót.“ Umboösmaöur neytenda Þingið ítrekaði fyrri sam- þykktir um umboðsmann neytenda og skoraði á við- skiptaráðherra að setja „þegar á laggimar nefnd til að móta tillögur um lagasetningu um stofnun embættis umboðs- manns neytenda. Umboðs- maður neytenda getur eðli máls samkvæmt einnig gegnt því hlutverki að vera umboðs- maður skattgreiðenda.“ í ályktuninni kemur fram að Neytendasamtökin telji það „óeðlilegt að réttarvernd neyt- enda heyri undir Samkeppnis- stofnun. Samkeppnisstofnun á að gæta og gætir að því að samkeppni sé virk og hefur því aðra stöðu en umboðs- maður neytenda hefur þar sem slík embætti eru,“ segir meðal annars í ályktuninni. Viðskipti neytenda við fjármálastofnanir „Þing Neytendasamtakanna telur að mikilvægur árangur hafi náðst með samningi við fjármálastofnanir um ábyrgð- arveitingar, en telur að meira þurfi að koma til. Neytenda- samtökin lýsa yfir stuðningi við meginefni þess frumvarps sem nú liggur fyrir alþingi um ábyrgðarmenn. Þingið felur stjóm samtak- anna að vinna að því í sam- starfi við flutningsmenn frum- varpsins að það verði endur- flutt á næsta þingi með breyt- ingum sem Neytendasamtökin telja nauðsynlegar." Endurskoðun laga á vátryggingarsviði Þingið telur eðlilegt að lög um vátryggingarsamninga og vá- tryggingarstarfsemi verði end- urskoðuð. Fyrmefndu lögin eru orðin gömul og sett við „þjóðfélagsaðstæður þar sem neytendavernd og neytenda- sjónarmið voru ekki með sama hætti og nú er“. Tryggja þarf greiðan aðgang neytenda að lausn deilumála egar kom að neytenda- vernd taldi þingið brýnt að neytendur hefðu greiðari aðgang að lausn deilumála sinna og seljenda. Úrskurðarnefndir Á þinginu var samþykkt að skora á viðskiptaráðherra og dómsmálaráðherra „að vinna að því í samvinnu við Neyt- endasamtökin að koma á góðu kerfí greiðra úrlausnar- Ieiða fyrir neytendur í deilu- málum þeirra við seljendur, kerfi sem uppfylla muni þær kröfur sem gerðar verða á Evrópska efnahagssvæðinu innan fárra ára“. Þingið lýsti ánægju með frumkvæði Neytendasamtak- anna við „að koma á úrskurð- arnefndum til að leysa með ódýrum og skjótum hætti úr deilumálum neytenda og selj- enda“. Þingið lýsti einnig ánægju sinni með að samstarf skuli hafa tekist milli neyt- endasamtaka og -stofnana á Norðurlöndum um að vinna að því að koma á gagnkvæmu kerfi úrskurðarnefnda. Þannig verði hægt að taka til af- greiðslu og úrlausnar deilu- mál milli kaupenda og selj- enda á Norðurlöndum og væntanlega innan Evrópska efnahagssvæðisins innan skamms. Reynslan sýnir að þegar neytendur eiga kost á að leita réttar síns með þess- um hætti gera þeir það í mun ríkari mæli en þegar leita þarf seinvirkari og dýrari leiða hjá dómstólum.“ Úrskurðarnefndir innan opinbera geirans Þingið fól stjórn samtakanna „að fylgja því eftir að komið verði á fót úrskurðamefndum hjá öllum þeim opinberu stofnunum sem neytendur eiga viðskipti við og þessar stofnanir setji sér jafnframt samskiptareglur, í samvinnu við Neytendasamtökin, sem tryggi vandaða málsmeðferð til hagsbóta fyrir neytendur. Fulltrúar neytenda eiga yfir- leitt ekki sæti í nefndum inn- an stjórnsýslunnar. Þing Neytendasamtakanna gerir kröfu til þess að fulltrúar kaupenda þjónustu af opin- berum fyrirtækjum taki þátt í og hafi að minnsta kosti um- sagnarrétt í öllum ágreinings- málum neytenda og seljenda opinberrar þjónustu." NEYTENDABLAÐIÐ - júní 1998 5

x

Neytendablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Neytendablaðið
https://timarit.is/publication/904

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.