Neytendablaðið - 01.12.1998, Side 3
I stuttu máli
Stórir og öruggir bílar
Oryggi skiptir miklu máli þegar selj-
endur auglýsa bíla, ekki síst þegar
um er að ræða stóra bíla sem kosta mik-
ið. Og sjö stórir fjölskyldubílar áf árgerð
1998 koma líka bærilega út í nýrri evr-
ópskri árekstrarannsókn. Rannsóknir af
þessu tagi hafa verið gerðar reglubundið
undanfarin tvö ár og þó að bílaframleið-
endur hafi sýnt framfarir er enn beðið
eftir hámarksvöm fyrir bæði ökumann og
farþega. Og fótgangandi vegfarendur
eiga ekki mikla möguleika þegar þeir
mæta 1,4 tonna afli eins og þegar slíkir
bílar eiga í hlut. Volvo sýnir þó framfarir
á þessu sviði.
Þeir fjórir bílar sem koma best út úr
árekstraprófuninni eru BMW 520i, Opel
Omega, Saab 9-5 og Toyota Camry. All-
ir fá þeir fjórar stjörnur af fjórum mögu-
legum, en Opel Omega með þeim fyrir-
vara að í honum sé bæði farþega- og
hliðarloftpúði. Allar þessar tegundir eiga
Þjónustusamningurviö
viðskiptaráðuneytið
Nýlega undirrituðu Neytendasamtök-
in og viðskiptaráðherra þjónustu-
samning og þar sem fram kemur hvaða
þætti í starfsemi samtakanna stjórnvöld
styrkja á næsta ári. Hér er um að ræða
framlag vegna rekstrar upplýsinga- og
leiðbeiningaþjónustu, kvörtunarþjón-
ustu og rekstur úrskurðamefnda, allt
vegna einkaneyslu neytenda. Þetta er í
fyrsta sinn sem stjórnvöld viðurkenna
ábyrgð sína á þessum málum, en
Neytendasamtökin hafa lengi barist
fyrir því að stjómvöld geri það. Jafn-
framt hafa samtökin ítrekað minnt á að
litið er á þessa þjónustu í nágranna-
löndum okkar sem samfélagslega
þjónustu sem allur almenningur þarf að
eiga greiðan aðgang að og er þessi
þjónusta því ýmist rekin eða kostuð af
stjómvöldum nágrannalandanna.
Þó svo að um mikilvægan áfanga sé
að ræða, er hér þó aðeins tekið takmark-
að skref. Enn er stuðningur íslenskra
stjómvalda við neytendastarf allt of lítill
og með nýja þjónustusamningnum
greiða stjómvöld enn aðeins minnihluta
kostnaðar við þessa þjónustu. En vissu-
lega; mjór er mikils vísir og vonandi á
það við í þessu máli.
það sammerkt að veita afbragðs öryggi
fyrir ökumann og farþega, bæði fram í
og í aftursæti. Volvo 570 var nálægt því
að ná fjórum stjörnum en þrjár stjörnur
urðu þó niðurstaðan, eins og hjá Audi A6
2,4 I og Mercedes E-200 Classic. Þessir
þrír bílar voru ágætlega ömggir, þótt ein-
staka atriði gerðu að verkum að þeir
næðu ekki hámarkseinkunn.
Þótt erfitt sé að bera saman bfla í mis-
munandi þyngdarflokkum er öryggi
þessara stóru fjölskyldubíla í árekstri
miklu meira en lítilla fjölskyldubfla, sem
sagt var frá í maíhefti Neytendablaðsins.
Nýr öryggisútbúnaður
Rannsóknin sýnir að loftpúðar framan
við ökumenn virka mjög vel. Enn ber á
vanda með öryggisbelti í mismunandi
gerðum óhappa. Loftpúðarnir leysa hann
þó oftast.
Loftpúðar á hliðum er nýr útbúnaður á
bílum og hafa þeir orðið til þess að bfl-
arnir koma nú betur út en í fyrri rann-
sóknum sambærilegra bfla. Það nýjasta
er hliðarloftpúði með vöm fyrir höfuðið,
en enn sem komið er fínnst þessi útbún-
aður sem staðalbúnaður aðeins í BMW
og Saab. Þessi tegund loftpúða var ekki
metin í rannsókninni, þar sem þeir em
það nýir að rannsóknarstofan hafði ekki
útbúnað til þess að rannsaka þetta.
Með því að fallast á að nota sérstaka
bamastóla hafa bílaframleiðendur tryggt
verulega vörn fyrir börn í árekstri að
framan. Aftur á móti vantar enn upp á
hliðarvörnina, en aðeins í Volvo er vöm
bamanna nægileg í slíku tilviki. í hinum
bflunum sex var vöm fyrir höfuðið á
börnunum ekki nægileg þar sem þau
héldust ekki nógu föst í bamastólunum í
árekstri á hlið.
Gangandi vegfarendur
Sem gangandi vegfarandi er erfitt að
sleppa heill á húfi frá því að lenda í
árekstri við bíl sem vegur 1,4 tonn, en
það er dæmigerð þyngd þessara bíla. Því
var rannsakað hvernig gangandi vegfar-
endur fæm út úr árekstri við bifreið á 40
kflómetra hraða. Og enn var staðfest að
aðeins fáir framleiðendur hugsa nægilega
um gangandi fólk þegar bílar eru hann-
aðir. Af fjórum stjörnum mögulegum
fékk BMW aðeins eina og sýnir það best
viðhorf bílaframleiðenda til gangandi
fólks. Aðrir bflar fá stjörnur, og í fyrsta
skipti í þessum rannsóknum var bíll ná-
lægt því að fá þrjár stjörnur, en það var
Volvóinn.
Jólasteikin verður
ódýr hjá Dönum
Á umliðnum árum hel'ur stór hluti af
tekjum danskra svínabænda komið af
útflutningi á svínakjöti. Verðið á er-
lendum mörkuðum hefur lækkað
mikið undanfarna mánuði og hefur
þessi verðlækkun nú skilað sér í
danskar \erslanir. Allt bendir því til
að jólasteikin í ár kosti í krónum það
sama og hún gerði fyrir 25 árum.
samkvæmt upplýsingum danska
blaðsins Politiken. Neytendur gleðj-
ast. en bændur eru eðlilega ekki
hressir. í fyrra l'engu þeir um 128
krónur íslenskar fyrir kílóið. en fá
núna um 66 krónur.
NEYTENDABLAÐIÐ - Desember 1998
3