Neytendablaðið - 01.12.1998, Blaðsíða 5
Kertaljós og klæðin rauð...
Um jól og áramót loga ljós
á mörgum mismunandi
gerðum kerta og aldrei er
minnt um of á að fara varlega
með kertalýsingar yfir jólin
því logandi kerti geta valdið
ómældum skaða: Kertakúlur
og -kubbar, kerti í áldósum,
sprittkerti, sjálfslökkvandi
kerti, málmkerti húðuð með
silfur- eða gulllit og svo fram-
vegis.
Kertum má skipta í tvo
flokka eftir öryggi: Kerti sem
eru varhugaverð í sjálfu sér
og kerti sem geta reynst
hættuleg vegna rangrar notk-
unar.
Kerti í áldósum
geta verið varasöm
Kerti í áldósum stórum sem
smáum tilheyra fyrri flokkn-
um. Þau geta hitnað svo mjög
að það kviknar í öllu yfirborði
þeirra og loginn getur orðið
5-15 cm hár. Aldrei má reyna
að slökkva slíkan eld með
vatni því þá verður sprenging
og logarnir geta leitað í allar
áttir. Þess í stað á að kæfa
eldinn með pottloki eða ein-
hverju álíka. Sprengingin
verður vegna þess að vatnið
dregur upp með sér parafín-
agnir sem kviknar í, og geta
eldtungurnar orðið hátt í einn
metri að hæð. Þess vegna er
óráðlegt að láta slík ljós fljóta
í skál með vatni. Þessi kerti
verða alltaf að vera á föstum
fleti sem ekki getur brunnið,
til dæmis ekki á borðdúk eða
borðplötu úr tré, og ekki ætti
að raða þeim mörgum þétt
saman eða setja þau í lokaða
stjaka.
Hætta vegna
rangrar notkunar
Aðrar kertategundir, svo sem
sjálfslökkvandi kerti, kerta-
kubbar og kúlur, málmkerti
sem eru húðuð með kopar-,
silfur- eða gulllit, eru í seinni
flokknum. Sjálfslökkvandi
kerti eru oft valin í jólaskreyt-
ingar og aðventukransa, því
neðsti hluti þeirra er með-
höndlaður með eldvamarefni.
Þrátt fyrir strangt gæðaeftirlit
með kertaframleiðslunni eru
þessi kerti aldrei alveg örugg.
Það er alltaf viss hættá á því
að ekki slokkni á kertinu eins
og gert er ráð fyrir og þó að
slokkni á því þegar 4—5 cm
eru eftir nægir það ekki alltaf
til að koma í veg fyrir að log-
inn kveiki í skrautinu. Þess
vegna er nauðsynlegt að
fylgjast með þessum kertum
eins og öðrum.
Öll kertaljós eru viðkvæm
þegar trekkur er í húsinu, þá
rennur kertavaxið niður. Þess
vegna eiga þau ekki að standa
á eldfimum fleti, því þó að
parafín og sterín geti ekki
kveikt í borðdúk eða borð-
plötu þá getur kveikurinn
losnað, flotið með vaxinu og
haldið áfram að loga.
Góð ráð um kertaljós
Nokkur einföld atriði sem
gott er að hafa í huga þegar
kertaljósin loga:
▲ Slökktu aldrei á kerti með
vatni. Kæfðu logann með
undirskál eða loki.
▲ Slökktu strax á kerti sem
logar óeðlilega.
▲ Slökktu áður en kertið hef-
ur brunnið alveg niður.
▲ Hafðu alltaf auga með
kertaljósum, sérstaklega ef
börn eru nærri.
A Settu aldrei logandi kerti á
flöt sem getur brannið.
▲ Forðastu lokaða stjaka sem
ætlaðir eru sprittkertum
(teljós).
Athugaðu hvort hætta er á
að kertastjakinn geti brunnið.
Norðmenn sleppa morgun-
matnum í vaxandi mæli
Samkvæmt nýrri könnun er
það æ algengara að Norð-
menn sleppi að borða morg-
unmatinn sinn, máltíðina
sem sérfræðingarnir segja
hvað mikilvægasta. Það eru
helst yngri neytendur sem
þetta gera og sagðist rúm-
lega helmingur þeirra sem
eru á aldrinum 15-24 ára
ekki borða morgunmat dag-
lega. í heildina sögðust hins
vegar 74% aðspurðra aldrei
sleppa þessari máltíð og er
brauðið algengasti rétturinn
á morgunverðarborðum
frænda okkar Norðmanna.
Tíminn hleypur frá PVC-plastefninu
PVC-plastefnið hefur lengi verið um-
deilt og margir hafa krafist banns við
notkun þess. Og fleiri og fleiri framleið-
endur láta undan þessum kröfum neyt-
enda, umhverfissamtaka og fleiri. Nú
hefur einn stærsti framleiðandi íþrótta-
fatnaðar í heiminum, Nike, ákveðið að
hætta að nota þetta umdeilda plastefni í
framleiðsluvörur sínar. Auk þess sem
hætt verður til dæmis að nota PVC í
Nike-íþróttaskó hefur fyrirtækið ákveð-
ið að nota ekki PVC í byggingu nýrrar
aðalstöðvar fyrirtækisins sem rísa á í
Hollandi. Með þessari ákvörðun fylgir
Nike í kjölfar ýmissa annarra alþjóð-
legra fyrirtækja, svo sem og Lego og
IKEA, sem hætt hafa allri notkun PVC í
framleiðslu- og söluvörur sínar.
PVC-efnið sjálft er ekki talið mjög
skaðlegt umhverfinu. En þegar efnið er
komið í samband við sérstök mýkingar-
efni, sem notuð eru eins og nafnið ber
með sér til að mýkja plastið, hefur verið
sannað að það geti orsakað að einstak-
lingar innan margra dýrategunda geta
þróast yfir í að verða tvíkynja.
NEYTENDABLAÐIÐ - desember 1998
5