Neytendablaðið - 01.12.1998, Qupperneq 6
í stuttu máli
Hvaða vörur eru með Svaninn -
Norræna umhverfismerkið?
Norræna umhverfis-
merkið, Svaninn, er að
finna á fleiri og fleiri vöru-
tegundum. Fyrir neytendur
sem vilja kaupa inn í
þokkalegri sátt við náttúr-
una skiptir merkið miklu.
Enn sem komið er er að-
eins ein íslensk vara með
Svaninn, Maraþon milt frá
Frigg.
Vörur með Svaninum -
Norræna umhverfismerk-
inu:
Bónefni á gólf: Vörur frá
Svenska Johnson’s vax
(Klar floor polish og
Parket polish).
Gólfefni: Pergo og fleira
sem Ofnasmiðjan flytur
inn.
Hreingerningarlögur: Mr
Muscle.
Klósctt- og cldhósróllur:
Edet, Lambi, Nemli.
Ljósritunarvélar: Sharp.
Pennar: Ergopen (Penn-
inn).
Rafhlöður, einnota:
Duracell, Hellesens,
Tudor, Varta.
Sláttuvélar: Stiga.
Umslög: Lyche (Penninn).
Þvottaefni fyrir upp-
þvottavélar: Golden.
Þvottaefni fyrir þvottavél-
ar: Golden, Maraþon
milt.
Auk þess flytja flestir
pappírsinnflytjendur bæði
inn ljósritunar- og prent-
pappír með Svaninum.
Fleiri vörur á íslenskum
markaði en hér hafa verið
taldar uppfylla þær kröfur
sem gerðar eru til að vör-
urnar geti borið Svaninn,
en eru þó ekki merktar
með Svaninum. Annars
staðar á Norðurlöndum eru
þær seldar með Svaninum.
Hvers vegna innflytjendur
sjá ekki ástæðu til að hafa
vöruna merkta hér á landi
er spurning sem meðal
annars við neytendur þurf-
um að fá svar við. Er það
kannski vegna þess að við
spyrjum ekki eftir þeim og
látum okkur í léttu rúmi
liggja hvort við íþyngjum
umhverfinu óþarflega í
daglegri neyslu okkar?
Allavega er ljóst að á með-
an einstakir innflytjendur
hirða ekki um að merkja
vöruna með Svaninum til
upplýsingar fyrir íslenska
neytendur sér Neytenda-
blaðið ekki ástæðu til að
nefna þær vörur.
Norræn
neytendasamtök
krefjast aðgerða til
að draga úr fúkka-
lyfjanotkun
Norrænu neytendasamtökin hafa í
sameiginlegri ályklun skorað á rík-
isstjórnir á Norðurlöndum að grípa til
sameiginlegra aðgerða lil að stöðva sí-
vaxandi notkun fúkkalylja. Þessi aukn-
ing hefur orðið vegna notkunar fúkka-
lyfja við veikindum manna og dýra en
einnig vegna notkunar í fóður dýra,
bæði til að fyrirbyggja sjúkdóma og
ekki síður til að örva vöxt dýranna. Á
íslandi er bannað að nota fúkkalyf nema
vegna sjúkdóma manna og dýra. Nor-
rænu neytendasamtökin kretjast að-
gerða lil að berjast gegn þessari miklu
notkun og verði þær aðgerðir bæði sam-
norrænar og á vettvangi Evrópusam-
bandsins.
I ályktuninni er bent á að þessi mikla
notkun fúkkalyfja sé ógn við allt mann-
kyn. Bakteríur og bakteríugen geta flust
milli mismunandi tegunda; frá einum
nianni til annars, frá dýri í matvæli og
frá matvælum í menn. Og fleiri og lleiri
mynda þol gegn fúkkalyfjunum sem
koma þá ekki að gagni þegar nauðsyn-
legt er að nota þau. Því kreljast norrænu
neytcndasamtökin þess að ríkisstjómim-
ar komi |iessu máli ofarlega á lista
þeirra aðgerða sem grípa þarf til innan
Evrópska efnahagssvæðisins.
Aflið tveggja nýrra félagsmanna og fáið bók í jólagjöf
Með því að vera félagsmaður í Neytendasamtökunum færðu
Neytendablaðið reglulega með gæða- og markaðskönnunum
auk annars fróðleiks. Þú styrkir um leið stöðu þína á markaðn-
um og aldrei veitir af því. Gætir þú hugsað þér að fá tvo vini
eða kunningja til að ganga til liðs við samtökin og fá blaðið auk
annarrar þjónustu (t.d. upplýsinga- og kvörtunarþjónustu)?
Fyrir það ómak að afla tveggja nýrra félagsmanna geturðu
valið eina af eftirtöldum bókum og færð hana senda heim þér
að kostnaðarlausu (ef þú vilt þær allar útvegarðu einfaldlega
átta nýja félagsmenn):
□ Heimilisbókhald Neytendasamtakanna
□ Lagasafn neytenda
□ Græna bókin - um neytandann og umhverfið
□ Bílar - sterku og veiku hliðarnar (frá sænsku
neytendastofnuninni)
Nýir félagsmenn:
Nafn:______________________________________________
Kennitala:_____________________
Heimilisfang:_____
Póstnúmer:_____________________
Óskað er eftir að greiða með greiðslukorti eða boðgreiðslum
(starfsfólk Neytendasamtakanna mun þá hafa samband, -
munið - ódýrasta innheimtuaðferðin): □ já □ nei
Nafn:__________________________________________________
Kennitala:_______________________
Heimilisfang:__________________________________________
Póstnúmer:_______________________
Óskað er eftir að greiða með greiðslukorti eða boðgreiðslum
(starfsfólk Neytendasamtakanna mun þá hafa samband, -
munið - ódýrasta innheimtuaðferðin): □ já □ nei
Nafn sendanda:_________________________________________
Heimilisfang:__________________________________________
Pósthólf:________________________
Mundu eftir að merkja við þá bók sem þú vilt fá senda. Sendu
okkurþessa úrklippu: Neytendasamtökin, Pósthólf 1096, 121
Reykjavík. Ef þú heldur Neytendablaðinu til haga og vilt síður
klippa það niður þá sendir þú okkur einfaldlega allar nauðsyn-
legar upplýsingar á blaði í pósti, faxi (562 4666) eða í tölvu-
pósti (neytenda@itn.is).
6
NEYTENDABLAÐIÐ - desember 1998