Neytendablaðið - 01.12.1998, Qupperneq 16
Gæði, markaður
Rafmagns-
rakvélar
Hér birtast niðurstöður úr
gæðakönnun International
Testing á nokkrum gerðum
rafmagnsrakvéla og íslensk
verðkönnun. Gæðin reyndust
nokkuð misjöfn. Aðalgallarnir
fólust í því að rakvélamar
klipptu ekki nógu snöggt (-
komust ekki nógu nærri húð)
og rökuðu illa háls, höku og
kinnar. „Ófullnægjandi“ þótti
aðeins Braun Flex Integral
ultra speed 6015 vegna út-
komu í höggprófi sem var
framkvæmt með því að láta
vélarnar detta 50 cm niður 50
sinnum.
Til viðbótar við tæknipróf-
in voru 30 karlmenn látnir
raka sig með hverri vél í 3-4
daga. Metið var meðal annars
hve vel þær rökuðu mismun-
andi húðhluta og hvort húðin
skaddaðist, hitnaði eða roðn-
aði undan þeim. Einnig hve
vel þær fóru í hendi, hvað þær
voru þægilegar í notkun,
hreinsun og viðhaldi, hve
lengi rafhleðslur entust, hve
auðvelt var að leggja vélarnar
frá sér og setja í hylki og hve
hávaðasamar þær voru. Nauð-
synlegt er að hreinsa rakvél-
amar reglulega til að tryggja
endingu þeirra. Þyngstu vél-
amar vom stirðastar í notkun,
háværastar og titmðu mest.
Tveir flokkar
Rafmagnsrakvélar skiptast í
tvo meginflokka eftir lögun
og gerð hnífanna. í flokki
„hringvélanna" eru Philis-
have-vélamar. Þær em með
hringlaga snertiflötum og
hnífum sem snúast en í hinum
flokknum em vélar með í-
löngum snertiflötum og hnífs-
blöðum sem ganga fram og
aftur.
Val á milli flokkanna fer
eftir smekk notandans en líka
eftir gerð og lögun skeggsins.
Notendur Philishave-vélanna
fullyrtu að þær væru ívið
fljótvirkari og klipptu samt
löng skegghár og krulluð án
vandkvæða. Séu menn með
skegg og vilji aðeins raka á-
kveðna hluta húðarinnar henta
hins vegar betur rakvélar með
beinum blöðum sem sneiða
nákvæmar meðfram jöðrum
hárs og skeggs.
Margar gerðir
Rafmagnsrakvélar eru til í
ýmsum útgáfum, bæði fyrir
karla og konur. Flestar eru
hleðsluvélar með rafhlöðum
en athugið að hleðslutæki er
ekki alltaf innifalið í verði.
Sumar má líka beintengja raf-
kerfi húsa. Hægt er að velja úr
margskonar vélum með ýms-
um stillingum og búnaði og
kosta þær dýrustu upp undir
20 þúsund krónur. Odýrastar
eru ferðavélar með rafhlöð-
um. Odýrustu vélar eru með
eitt hnífsblað en í þeim dýrari
eru þau tvö eða þrjú.
Sumar vélanna má jafnt
nota á þurra húð ef krem eða
rakefni hefur verið borið á
hana fyrst („wet and dry“) og
getur það verið góður kostur
fyrir þá sem eru með sérlega
viðkvæma húð. Philishave
Cool Skin HQ 5620 sem fékk
einkunnina „góð“ hefur sér-
stöðu því í henni er hylki með
rakefni sem dælist á húðina
við notkun. Hylkið dugir í um
10 rakstra. Flestum karlmönn-
um sem notuðu vélaramar í
könnuninni gast sérlega vel að
þessari tækni en sumir virtust
hafa ofnæmi fyrir efninu. Líka
er hægt að nota vélina án
þess.
„Wet and dry“-rakvélar er
yfirleitt ekki hægt að bein-
tengja við húsarafmagn ef raf-
hlaðan hefur tæmst og
hleðslutæki þeirra eru yfirleitt
ekki innbyggð í vélamar.
Rafhlöðurnar
Venjulega er hleðslutækið
innifalið í verði. Það er kostur
við sumar vélanna að á þeim
sést hve mikið er eftir af orku
í rafhlöðunum svo unnt er
hafa varann á og hlaða tíman-
lega. Sumar vélanna er líka
hægt að tengja beint við raf-
Bestu kaupin
• I flokki rakvéla með hringhnífum komu best út Philips
Reflex Action HQ 5830 og Philips Philishave Cool Skin
HQ 562. Bestu kaupin í þessum flokki miðað við verð og
gæði þóttu í þeirri fyrrnefndu og Philips Philishave HQ
5425 sem rakaði almennt best.
• I flokki rakvéla með beinu blaði kom best út Panasonic
ES 883 (fæst ekki hér) en bestu kaupin þóttu í Braun Flex
Integral 5010 og Panasonic ES 765. Líka þóttu góð kaup í
Braun 2040 (fæst ekki hér).
kerfi húss meðan á notkun
stendur. Allar vélamar geta
notað 110-230 volta spennu
og allar stilla sig sjálfvirkt á
rétta voltatölu (sem er misjöfn
eftir löndum) nema Philips
Cool Skin HQ 5620.
Til að hámarka endingu
hleðslurafhlaðna á láta þær
tæmast til fulls oft á ári. Yfir-
leitt tók full endurhleðsla
50-70 mínútur en hún entist
mjög misjafnlega eftir rak-
vélagerðum. Það þótti lélegt
ef hlaða varð í hverri viku
miðað við fimm mínútna dag-
lega notkun. Næðust bara sjö
rakstrar á hleðslu olli það ein-
kunninni „ófullnægjandi“ og
hana fékk af þeim sökum
Philips Rota Action HQ 2830.
Aðeins tvær rakvélar fengu
einkunnina „góð“ í þessu efni,
Philishave Cool Skin HQ
5620 með 20 rakstra á hieðslu
og Philips Reflex Action HQ
5830 með 27.
Allar vélamar sem hér fást
nýta rafhlöður með blöndu
nikkels og „málmlíkis" en
þær em oft kallaðar „grænar“
og þykja vistvænni en raf-
hlöður með nikkel-kadmíum
blöndu.
Ekki hentug gjafavara
Ekki er ráðlegt að nota raf-
magnsrakvélar til tækifæris-
gjafa að þiggjandanum for-
spurðum. Það fer mjög eftir
smekk, húð, skeggvexti og
skegggerð hvaða vélar menn
kjósa helst. Flestir karlmenn
hafa skoðun á því hvort þeir
vilja rakvél með hringskurði
eða ílöngum snertiflötum.
Húðin þarf um hálfan mánuð
til að venjast nýrri gerð rak-
vélar.
Að frátöldu verðinu er
mikilvægast að gæta að því að
rakvélin fari vel í hendi og
hve auðvelt er að beita henni
á húð og skegg notandans.
Líka er rétt að aðgæta hvað í-
hlutir kosta, til dæmis ný
hnífsblöð, rafhlöður og
rakefni.
Skýringar með töflu
*) Fengi rakvél einkunnina „óviðunandi" i höggprófi
leiddi það til „óviðunandi" i heitdareinkunn hvað sem
öðrum kostum viðvék.
**) Yfirleitt staðgreiðsluverð hjá innflytjanda.
Vélarnar geta fengist á hærra og lægra verði.
Prósentutölur i svigum í einkunnagjöf (fremsti dálkur)
eiga við rakvélar sem ekki eru með
rafhlöðuhleðslutæki.
Öltum rakvélunum fytgja hreinsibursti og hlífðarlok og
altar hafa sjálfvirka voltaskiptingu nema Philishave
Cool Skin HQ 5620.
Rafhlöðurnar nýta allar nikkel og málmliki
(metathybrid).
Einkunnirnar í gæðakönnuninni
eru frá 1 til 5, slakast er 1
HQ 5620
Einkunnir i gæðaprófi:
• Rakstur 35% (40%)
Fjötdi skurðflata
Hreyfanleiki fiata
Sveigjanlegir
Sveigjanlegir
Sveigjanlegir
Fastir
Fastir
Sveigjanlegir
Sveigjantegir
Þyngd i grömmum
Spenna í voitum
Braun Flex Philips Remington Philips Panasonic
Integral uttra Reflex Action Micro screen Rota Action Wet/Dry
speed 6015 HQ 5830 DA757 HQ 2830 ES765
!
4 | 4 I 3 4 4 |
4 3 4 4 4 ;
5 5 . 5 5 4
4 4 3 4 4 ;
4 3 2 3 4 ;
27 11 9 11 20
4 4 1 3 ■■HHHHHHI^H^MH 4 4 ......... 1
Hver selur hvað?
Neytendablaðið kannaði markaðinn á rafmagnsrakvélum í nóvember. Sex mis- munandi vörumerki fundust en fleiri
verslanir selja vélarnar heldur en inn-
flytjendur.
Vörumerki Innflytjandi
Braun Pfaff
Fagor Raftækjaverslun ísl.
Grundig Sjónvarpsmiðstöðin
Panasonic Japis
Philishave Heimilistæki
Remington I. Guðmundsson
16
NEYTENDABLAÐIÐ - desember 1998
NEYTENDABLAÐIÐ - desember 1998
17