Neytendablaðið - 01.12.1998, Blaðsíða 19
hans, sem nam samtals
einmitt um 14 milljónum
króna árin 1996 og 1997.
Skuldir hlaöast upp
Skuldir Heyrnar- og talmeina-
stöðvar Islands vegna hjálpar-
tækjakaupa námu samtals um
18 milljónum króna um síð-
ustu áramót og verða fyrirsjá-
anlega komnar nálægt 30
milljónum um næstu áramót.
Þetta samsvarar því sem næst
alveg þeirri upphæð sem veita
á til slíkra tækjakaupa á næsta
ári. Verði þess krafist að þess-
ar skuldir verði greiddar á
næsta ári segir Birgir As fyrir-
sjáanlegt að alls ekki verði
unnt að úthluta neinum nýjum
tækjum fyrr en árið 2000.
Skuldir stöðvarinnar eru
ekki einungis við ríkissjóð
heldur einnig við Ríkiskaup,
raunar hátt í helmingurinn, og
Birgir As segir yfirvofandi að
Ríkiskaup fari að loka á frek-
ari viðskipti verði skuldin
ekki greidd.
Örvæntingarkaup fyrir
hundruð þúsunda
Vegna þess að algengustu
heyrnartækin eru tiltölulega
ódýr er algengt að fólk lýsi sig
reiðubúið að greiða þau fullu
verði í stað þess að þurfa að
bfða mánuðum saman í ein-
angrun frá umhverfi sínu og
daglegu lífi í samfélaginu. I
íslenska úthlutunarkerfinu er
þessi möguleiki þó ekki í
boði. Heyrnar- og talmeina-
stöðin er eini aðilinn sem flyt-
ur þessi tæki til landsins og
þau eru einungis afgreidd
samkvæmt úthlutunarreglun-
um. „Ég veit heldur ekki
hvernig ætti að fara að því að
selja sumum heyrnartæki á
fullu verði en niðurgreiða fyr-
ir aðra,“ segir Birgir As Guð-
mundsson. „Hverjum ætti ég
að bjóða að greiða fullt verð?
Ég tók nýlega lista yfir 50
manns og reyndi að raða
þessu fólki í forgangsröð. A
listanum reyndust vera tveir
einstaklingar sem forsvaran-
legt kynni að vera að láta bíða
eitthvað. En ef þeir væru settir
aftast yrðu þeir að bíða miklu
lengur en ég treysti mér til að
bera ábyrgð á.“
Þess eru allmörg dæmi að
fólk hafi farið til útlanda og
keypt sér heymartæki á frjáls-
um markaði. Það er þó ærið
kostnaðarsamt fyrirtæki því á
frjálsum markaði kosta heyrn-
artæki að minnsta kosti nokk-
ur hundruð þúsund. Til munu
dæmi um einstaklinga sem
hafa pungað út yfir hálfri
milljón króna til þess arna.
í athugun í ráðuneyti
Davíð A. Gunnarsson ráðu-
neytisstjóri í heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytinu segir að
Jóhannes Pálmason forstjóri
Sjúkrahúss Reykjavíkur og
stjórnarformaður Heyrnar- og
talmeinastöðvar hafi vakið at-
hygli ráðuneytisins á fjárhags-
erfiðleikum stofnunarinnar og
sé málið nú til nánari skoðun-
ar í ráðuneytinu. Davíð segir
að athugað verði hvort stofn-
unin kunni að geta náð auknu
fjármagni til kaupa á heyrnar-
tækjum með hagræðingu og ef
til vill einhverju samstarfi við
háls- nef- og eyrnadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur. Þá
verði einnig farið yfir það
með fjárlaganefnd alþingis
hvort unnt verði að hækka
framlög til stofnunarinnar á
fjárlögum næsta árs.
NEYTENDUR!
Gerið ykkur
grein fyrir
rétti ykkar með
LAGASAFNI NEYTENDA
Verð kr. 900 tii hfl AGSMANNA KR. 700
(póstkröfukostnaður bætist við ef bokin er send)
V
19