Neytendablaðið - 01.12.1998, Side 22
Reynir Guðjónsson,
slökkviliðsmaður í Reykjavík og
umsjónarmaður forvarna- og
fræðsludeildar Landssambands
slökkviliðsmanna skrifar
Algengt er að við gerum ráð fyr-
ir að slæmir hlutir gerist hjá
öðru fólki en okkur sjálfum. Þegar
við leggjum út í umferðina erum
við sjaldnast að hugsa um hvort við
lendum í slysi eða ekki, við sættum
okkur við áhættuna og gerum okkar
besta til að komast heil heim. Við
getum dregið úr hættunni með því
að fylgja umferðarreglum, aka var-
lega og sýna tillitssemi. Þegar við
stingum rafmagnstæki í samband
eða kveikjum á kerti erum við ekki
upptekin af því hvort við kveikjum
í húsinu eða ekki og alltof sjaldan
gerum við okkar besta til að draga
úr áhættunni. Það kviknar örugg-
lega ekki í hjá okkur, bara öðrum.
Fjárhagslegt tjón er hægt að bæta
að mestu leyti. Tilfinningalegt tjón
verður seint bætt og manntjón
aldrei. En er eitthvað hægt að gera
til að draga úr hættunni hjá okkur?
Já, það er margt sem hægt er að
gera til að auka öryggi okkar á
heimilinu. Það sem liggur beinast
við er að nota heilbrigða skynsemi.
Allir vita að upptalningin hér að
neðan er ekkert annað en heilbrigð
skynsemi.
Algengt er að eldsvoðar
verði út frá rafmagni:
■■ Takið rafmagnstæki úr sam
bandi þegar íbúðin er yfirgefin
wm Ekki nota fjarstýringuna til að
slökkva á sjónvarpinu
wm Trosnaðar rafmagnssnúrur og
brotnir tenglar geta valdið
eldsvoða
■i Gætið þess að kerti brenni ekki
niður í jólaskreytingum
wm Reykingar í rúminu hafa valdið
mörgum dauðsföllum og alvar-
legum slysum
■■ Eldspýtur á glámbekk eru
freisting fyrir börn
M Reykskynjarar hafa bjargað
mörgum mannslífum og eru
ódýr líftrygging
■■ Semjið og æfið flóttaáætlun
fyrir heimilið
NEYTENDASTARF ER ÍALLRA ÞÁGU
10- 11 verslanirnar
Endurvinnslan
Ágæti hf.
Reykjavikurborg
Bónus verslanirnar
Nýkaup
11- 11 búöirnar
Nettó-verslanirnar, Akureyri
og Reykjavik
Bón- og þvottastöóin ehf.,
Sóltúni 3
Bræóurnir Ormsson hf.
Góa-Linda
Glerborg, Dalshrauni 5
Karl K. Karlsson ehf.,
Skútuvogi 5
Kaupmannasamtök íslands
Mjólkurfélag Reykjavíkur
Byko
Verslunin Eva
Verslunin Sautján
Galleri Fold
Konfektbúóin Kringlunni
Markaóstorg Kringlunnar
Rollingar
Tekk-vöruhús
Landsvirkjun
Lyfjaverslun íslands
Sparisjóöur Keflavíkur
Sparisjóður Norölendinga
Samskip
löja - félag verksmiöjufólks,
Skipagötu 14, Akureyri
Sjómannasamband íslands
Verslunarmannafélag
Suöurnesja
Verslunarmannafélag
Skagfiröinga
Verslunarmannafélag
Austurlands
Skeljungur hf.
Stórar stelpur,
Hverfisgötu 105
Ceres hf., Nýbýlavegi 12
Frigg hf., Lyngási 1
Kópavogsbær Fannaborg 2
NEYTENDABLAÐIÐ - desember 1998