Neytendablaðið - 01.12.1998, Síða 23
Þegar eldur kemur upp á heimilinu
er mjög algengt að fólk bregðist
rangt við. Það er ekki óeðlilegt því
fæstir hugsa um það hvemig þeir
ætla að haga sér ef svo illa fer. Þeg-
ar kviknar í potti á eldavél er mjög
algengt að fólk reyni að komast út
úr íbúðinni með pottinn. Hættan á
að brenna sig og jafnvel kveikja í
húsinu er veruleg. Einnig er al-
gengt að setja pottinn undir vatns-
bunu í eldhúsvaski. Ef logandi feiti
er í pottinum verða afleiðingarnar
af slíkri athöfn sprenging og log-
andi feiti slettist út um allt. Áhrifa-
ríkast er að setja einfaldlega lokið á
pottinn eða breiða yfir hann eld-
varnarteppi. Ef við höfum ekki velt
því fyrir okkur hvemig við ætlum
að bregðast við eldsvoða eru ekki
miklar líkur á að viðbrögð okkar
verði skynsamleg þegar á reynir og
uppnámið sem eldsvoða fylgir er í
hámarki. Mörg fyrirtæki og stofn-
anir hafa í gegnum tíðina boðið
starfsfólki sínu að sitja stutt eld-
varnamámskeið.
Þar er fólki kennt að reyna að
koma í veg fyrir eldsvoða og
bregðast skynsamlega við ef svo
illa fer að eldur verður laus. Vafa-
laust hafa slík námskeið margoft
hjálpað fólki að koma í veg fyrir
tjón, bæði á vinnustöðum sínum og
heimilum.
Við sem starfað höfum að for-
varnarmálum hjá Landssambandi
slökkviliðsmanna erum á þeirri
skoðun að fyrstu viðbrögð í elds-
yoða skipta sköpum.
Látið ekki
jólaljósin kveikja
í heimilinu
Brunamálastofnun
Eldvarnarbúnaður
Hagnýtar upplýsingar
Skynjarar
Reykskynjarar
Til eru tvær megingerðir af reykskynjur-
um, jónískir og optískir og svo skynjarar
sem sameina kosti þessara tveggja. Þessir
skynjarar hafa bæði kosti og galla. Sá jón-
íski skynjar vel reyk með stórum ögnum,
til dæmis opinn eld, en síður upphaf glóð-
arbruna, til dæmis í sófa. Glóðarbruna
skynjar sá optíski hins vegar mjög vel. Það
er því æskilegt að hafa báðar gerðirnar á
heimilinu. Einnig eru til samtengjanlegir
reykskynjarar sem fara allir í gang ef einn
þeirra skynjar reyk.
Hitaskynjarar
Hitaskynjarar nema hita en ekki reyk og er
æskileg staðsetning þeirra þar sem reykur
er algengur af eðlilegum orsökum, til
dæmis í eldhúsi og bílskúr.
Viðhald skynjara
Prófaðu alla skynjara reglulega með því að
styðja á prufuhnappinn, skiptu um raf-
hlöðu árlega og ryksugaðu skynjarann um
leið. Líftími reyk- og hitaskynjara er áætl-
aður um 10 ár.
Handslökkvitæki
Léttvatns-slökkvitæki
Léttvatnsslökkvitæki duga
vel á allan eld og hafa
mikinn slökkvimátt. Al-
geng stærð léttvatns-
slökkvitækja er 6 lítrar og
9 lítrar.
Duftslökkvitæki
Duftslökkvitæki eru ætluð á allan eld en
ekki er öruggt að duftið slökkvi glóð. Til
eru margar gerðir og stærðir dufttækja og
algeng stærð fyrir heimili er 6 kflóa tæki.
1-2 kílóa tæki eru ætluð fyrir bíla.
yfirfara árlega af viðurkenndum þjónustu-
aðila.
Björgunarstigar
Seftarar
Seftarar eru kaðal- og/eða keðjustigar úr
tregbrennanlegum efnum. Þeir eru festir á
vegg eða eru færanlegir með festingum
sem settar eru yfir gluggakistu. Þessir stig-
ar geta sveiflast nokkuð til og er betra að
halda við þá að neðan. Þeir duga fyrir 2-3
hæða hús og eru ódýr lausn.
Álstigar
Álstigar eru til í mörgum útfærslum og eru
auðveldir í notkun. Duga fyrir hærri hús en
eru nokkuð dýrir.
Siglínur
Nokkrar gerðir eru til af siglínum. Algeng-
ast er að siglína eða festing fyrir hana sé á
vegg við giugga. Lykkju á enda línunnar
er brugðið um þann sem ætlar út og sígur
hann hægt og örugglega til jarðar. Sumar
siglínur eru með tvöfalda lengd til jarðar
og lykkju á báðum endum og þegar einn
maður er kominn niður er hinn endinn til-
búinn fyrir næsta mann uppi. Duga fyrir
2-3 hæða hús og eru ódýr og góð lausn.
Eldvarnarteppi
Eldvarnarteppi eru til í mörgum stærðum.
Teppið er lagt yfir hinn brennandi hlut og
þétt að. Ef teppið fer ofan í feiti í potti get-
ur logað í gegn um það, þá er teppið tekið
af og byrjað að nýju.
Áríðandi!
Eins og áður hefur komið fram er ekki nóg
að eiga eldvarnarbúnað. Það er nauðsyn-
legt að hann sé til taks og að sá sem ætlar
að nota hann kunni til verka.
Vatnsslökkvitæki
Vatnsslökkvitæki eru aðallega ætluð á eld
í föstum efnum, til dæmis timbri, vefnaði
og pappír. Algeng stærð tækjanna er 9 lítr-
ar.
Kolsýruslökkvitæki
Kolsýruslökkvitæki eru aðallega ætluð á
virk rafmagnstæki, þ.e. rafmagnstæki sem
eru í sambandi. Kastlengd tækisins er tak-
mörkuð og eins og duftslökkvitækið slekkur
það ekki glóðareld. Kolsýruslökkvitæki eru
til í mörgum gerðum og stærðum allt frá 2
kg-.
Viðhald slökkvitækja
Aðgætið reglulega að innsigli sé órofið og
að þrýstimælir sé í lagi. Slökkvitæki skal
NEYTENDABLAÐIÐ - desember 1998
23