Neytendablaðið - 01.05.2001, Síða 5
í stuttu máli
Handbók
neytenda
Neytendasamtökin hafa gefið
út Handbók neytenda. Jón
Magnússon lögmaður og fyrr-
verandi forystumaður í Neyt-
endasamtökunum tók saman
bókina. Þar er að finna ýmsar
mikilvægar upplýsingar fýrir
neytendur, um rétt þeirra og
margt fleira.
Bókin er á heimasíðu neyt-
enda á netinu, www.ns.is. Þar
geta neytendur fært bókina í
heild sinni af heimasíðunni og
yfir í tölvu sína að hluta eða
að öllu leyti. Bókina er einnig
hægt að fá á geisladiski og
kostar hann 500 kr. til félags-
manna, en 1000 kr. til ann-
arra. Einnig er hægt að fá
bókina útprentaða og kostar
hún þá það sama og á geisla-
diski. Þeim sem vilja frekari
upplýsingar er bent á að hafa
samband við skrifstofur Neyt-
endasamtakanna.
Nýtt lykilorð á
heimasíðunni,
ns.is
Frá og með 30. maí breytist
lykilorð sem félagsmenn
þurfa að muna til að komast
inn á þann hluta heimsíðunnar
er læstur. Nýja lykilorðið er
„ns.l953“. Það skal tekið
fram að fram að 15. júní verð-
ur hægt að nota bæði gamla
lykilorðið og það nýja. Munið
lykilorðið: ns.1953.
Enn um
ístravel-málið
Eins og fram kom í síðasta
tölublaði Neytendablaðsins
vannst Istravel-málið í héraðs-
dómi og var íslenska ríkinu
gert að greiða félagsmanni
Neytendasamtakanna
skaðabætur. íslenska ríkið
hefur nú áfrýjað málinu til
Hæstaréttar og verður það
væntanlega flutt þar innan
skamms. Neytendablaðið mun
fylgjast með ífamvindu
málsins og greina frá dómi
Hæstaréttar þegar hann liggur
fyrir.
Borðtuskur eru ekki matur
Fyrir nokkru sögðum við frá
danskri herferð þar sem
neytendur eru hvattir til að
þvo þvott á 60° í stað suðu-
þvottar. Með þessu móti
geta neytendur sparað tals-
vert rafmagn. En ef hand-
klæðin og sængurfatnaður-
inn eru þvegin á 60° - hvað
á þá að gera við borðtusk-
umar og viskustykkin? Það
er jú staðreynd að salmón-
ellu- og kamfýlóbakteríur
drepast fyrst við 70-75°.
Borðtuska sem hefur verið
notuð við þrif eftir með-
höndlun á hráu kjöti getur
innihaldið þessar bakteríur
og þarf þá ekki að þvo þær á
suðu ef gæta á fyllsta örygg-
is?
Nei, svo einfalt er málið
ekki, enda má ekki rugla
saman borðtuskum og mat.
Við matargerð drepast bakt-
eríumar eingöngu vegna
hitameðhöndlunar. Þegar
borðtuskan er þvegin er hit-
inn aðeins hluti af þvottin-
um, þar skiptir ekki síður
máli að vatnið og þvottaefn-
in drepa einnig bakteríumar.
Danska neytendastofnun-
in hefur staðið að tilraun á
þessu og var bakteríunum þá
„smurt“ á það sem þvegið
var. Rannsóknin sýndi að til
a drepa bakteríumar nægir
60° hiti, vatn og þvottaefni.
Þó er mælt með að nota
sömu borðtusku ekki of
lengi (jafnvel eina á dag)
áður en hún er þvegin á 60°.
Tusku sem hefur verið notuð
til að þurrka blóðvatn frá
hráu kjöti er þó best að setja
í þvott strax áður hún er not-
uð næst.
Niðurstaðan er því sú að
60° hiti er nægjanlegur við
allan heimilisþvott.
Undarskriftarlisti um afnám
tolla á grænmeti
Eftir að „grænmetismálið“
kom upp höfðu Neytenda-
samtökin undirskriftalista á
heimasíðunni þar sem neyt-
endur vom hvattir til að mót-
mæla tollastefnu stjómvalda.
Yfirlýsingin var svohljóð-
andi:
„Ég lýsi vanþóknun minni
á viðskiptaaðferðum heild-
sölufyrirækja á grænmetis-
og ávaxtamarkaði. Ég krefst
þess að stjórnvöld grípi tafar-
laust til nauðsynlegra að-
gerða til að lækka vöruverð
og afnemi tolla á grænmeti
og kartöflum.“
Undir þessa yfirlýsingu
skrifaði alls 2.901, en undir-
skriftasöfnunin var eingöngu
á netinu. Landbúnaðarráð-
herra hefur verið sendur þessi
undirskriftalisti ásamt bréfi.
Þar er óskað eftir að að
stjómvöld taki tillit til
þessara sjónarmiða við
endurskoðun á stefnu sinni
um tolla á innflutt grænmeti.
Skráið ykkur á póstlista
Neytendasamtakanna
Neytcndasamtökin hal'a ákveðið að bjóða neytendum að
skrá sig á sérstakan póstlisla á Netinu. Listarnir verða raun-
ar tveir, annar fyrir l'élagsmenn og hinn l'yrir þá sem ekki
eru enn orðnir félagsmenn. Að sjáll'sögðu Ia lélagsmenn allt
efni sem þannig er sent út, en þeir sem standa utan samtak-
anna lá aðeins liluta þess sent. Þannig borgar sig alltaf að
vera félagsmaður. Þeir sem áliuga hafa á að vera á þessum
lislum geta haft samband í lölvupósti, netfangiðer
ns@ns.is, og í síma 545 1200. Þeir lélagsmenn sem ekki eru
með itðgang að tiilvu og Neti er bent á að hal'a samband og
munu þeir þá fá þessi bréf í pósti.
NEYTENDABLAÐIÐ - maí 2001
5