Neytendablaðið - 01.05.2001, Qupperneq 7
Gæðakönnun
GÓÐ KAUP
Athugið að í gæðakönnuninni lentu 11 af þeim 29 geisla-
skrifurum sem voru á íslenska markaðnum í apríl. Abend-
ingarnar hérna um góð kaup eiga þvi' aðeins við um þessa
11 og vera kann að hér fáist jafn góðir eða betri spilarar.
Til að átta sig á því er hægt að hafa liðina í gæðakönnun-
artöflunni til hliðsjónar þegar spurningar eru lagðar fyrir
sölumenn.
Plextor Plexwriter fékk hæstu heildareinkunnina í
gæðakönnuninni og kostaði 29.900 kr. í Griffli. Einn af
kostum hans er mikill skrithraði.
Aopen CRW 1232 A fékk næsthæstu heildareinkunn-
ina af þeim spilaragerðum sem voru til hér og kostaði
20.900 kr. í Radíónausti.
Ricoh MP9120 A-DP er samhæfður skrifari sem getur
lesið DVD-diska og það getur verið mörgum hagstætt.
Hann fékk góða heildareinkunn og var yfirleitt vel yfir
meðallagi. Hann kostaði 29.900 í Elko.
Iomega ZipCD USB er utanáliggjandi skrifari en þeir
eru yfirleitt hægvirkari og hafa minni lestrarnákvæmni og
leiðréttingarhæfni en hinir innbyggðu. Þeir henta samt bet-
ur við sumar aðstæður. Hann kostaði 29.900 kr. í Pennan-
um.
Að ná góðum hljómi
Plextor Plexwriter 16/10/40 A
fékk hæstu heildareinkunnina
í gæðakönnuninni og var
ótvíræður sigurvegari í því að
skrifa örugglega og áfalla-
laust á diska - en það er bara
önnur hlið málsins. Hin hliðin
er hve mikil gæði nást í því
að afrita hljómdiska í heild
eða raða saman tónlistarefni á
diska. Hvort tveggja er leyfi-
legt ef það er gert til einka-
nota. Einnig er löglegt að
gefa öðrum þannig diska.
Mælikvarðinn á gæðin er
auðvitað sá hve tónlistin skil-
ar sér vel af diskinum í
hljómflutningstækjum. Sam-
kvæmt rannsóknum ICRT
ráðast gæðin ekki aðallega af
því hve vel tekst til að skrifa á
diskinn heldur hve skýrt
geislaskrifarinn les gögn af
frumritinu. Algengasta orsök
lélegs hljóms á CD-R eða
CD-RW geisladiski er
skemmdur eða skítugur upp-
runadiskur.
Til að andæfa þessu er
leiðréttingabúnaður í geisla-
skrifurum og reyndist hann
bestur í TDK CyClone-skrif-
urum. Til að sjá muninn á
hæfni skrifaranna í þessum
efnum skuluð þið lesa línuna
„lestramákvæmni og leiðrétt-
ingar“ í gæðakönnunartöfl-
unni.
Hugbúnaðurinn
Munurinn á hugbúnaði sem
fylgir skrifurunum skiptir
ekki miklu máli. Sé notandinn
óánægður getur hann auð-
veldlega fengið sér annan.
Hægt er að mæla með forrit-
unum „HP MyCD“ og „In-
stantCD". Þó brást hið fyrr-
nefnda þegar reynt var að af-
rita disk í yfirlengd (80 mín. í
stað 74 mín.). Og hið síðar-
H0LLRAÐ
Hl jómdiskar (Audio-CD).
Þeir eru dýrir og ekki
nauðsynlegir til tölvunota.
Sjálfvirk CD-kennsl.
Þegar notaður er geisla-
skrifari á að gera óvirka
Windows-skipun sem ber
sjálfvirkt kennsl á CD-
diska þegar þeim er stung-
ið í geisladrif tölvunnar.
Yfirskrif. 1 staðinn fyrir
að vera bundinn við þau
650 MB (74 mín. tónlist)
sem eiga að komast á einn
geisladisk er unnt að „yfir-
skrifa" á 700 og 800 MB
og jafnvel stærri diska.
Hins vegar er aðeins hægt
að nota 700 MB diskana í
hljómflutningstækjum.
nefnda gat ekki afritað á einn
disk samsafn tónlistarefnis af
tveimur geisladiskum. Það
vafðist einnig mjög fyrir
gæðakönnunarfólki að læra
að breyta röðinni á lögunum
sem áttu að fara á diskana eft-
ir að búið var að velja þau.
Vel gekk að nota forritið
„WinOnCD" frá Roxio sem
leiddi venjulegan notanda
skýrt og þægilega öll skref
sem til þurfti.
Kostir útværra
I gæðakönnuninni vora þrír
útværir (utanáliggjandi) skrif-
arar, frá Iomega, Hewlett
ATHUGASEMDIR 0G 0RÐSKÝRINGAR
Skrifform: CD-DA: Tón-
listardiskar. CD-Extra:
Gögn og tónlist. CD-i:
Gagnvirkar myndir og leik-
ir. CD-Rom XA: Blanda af
hljóði, hreyfimyndum og
tölvugögnum. CD-G:Tón-
listardiskur með texta og
myndum. Foto-CD: Há-
mark 100 myndir.
Burn-Proof/Just Link:
Tækni sem tryggir gallalaus
skrif þrátt fyrir truflanir
eins og rof á gagnastreymi.
CD-R (CD Recordable):
Diskur sem unnt er að
skrifa einu sinni á.
CD-ROM (Compact
Disc Read Only Memory).
Diskur með tölvugögnum
sem aðeins er unnt að lesa.
CD-RW (CD Rewrita-
ble): Diskur sem unnt er að
endurrita á í allt að 1000
skipti.
DAO (Disc at once):
Efnið skrifast á diskinn í
einni lotu, án hléa milli titla.
Disc-at-once-R A W:
Efnið er lesið og skrifast á
diskinn bita fyrir bita, nauð-
synlegt við skrif á diskum
með afritunarvörn (með
„Clone CD“).
DVD (Digital Versatile
Disc): Gagnadiskur sem er í
stærð og útliti eins og CD-
diskur en tekur margfalt
meira af gögnum, hámark
18 gígabæti.
Multisession: Á disk
sem er ekki fullskrifaður er
hægt að bæta meiri gögnum.
Geisladiskaspilari getur hins
vegar bara lesið og flutt það
sem skrifað var á diskinn í
fyrstu lotu.
RAW: Gögnin eru lesin
og skrifuð „hrá“ sem þýðir
að afritunarvarnir virka
ekki. Heppilegur hugbúnað-
ur: WinOnCD 3.8 „Power
Edition“ (www.roxio.com)
eða CloneCD (www.ela-
borate-bytes.com).
TAO (Track at once).
Skrifarinn setur sjálfvirkt
bil á milli t.d. laga á tónlist-
ardiski. (Getur verið til ama
við skrif á ýmsu öðru efni).
NEYTENDABLAÐIÐ - maí 2001
7