Neytendablaðið - 01.05.2001, Page 9
® ICRT og Neytendablaðið 2001
Gæðakönnun
Gæðakönnun
Packard og Freecom. Enginn
þeirra var sannfærandi í gæð-
um. Þeir eru dýrir, hægvirkir
og viðkvæmir fyrir titringi og
truflunum (sjá línuna „lestrar-
nákvæmni og leiðréttingar“ í
gæðakönnun).
En þrátt fyrir þessa tækni-
legu annmarka geta verið full-
gild rök og ástæður fyrir því
að kaupa utanáliggjandi skrif-
ara. Ef á heimilinu eða vinnu-
staðnum eru t.d. fleiri en ein
tölva, kannski fartölva sem
tekin er stundum meðferðis,
og áhugi eða þörf á að afrita
gögn úr þeim á geisladiska, þá
er utanáliggjandi skrifari oft
ódýrasta og réttasta lausnin. í
þessum efnum halaði
Freecom-skrifarinn inn
punkta, hann er lítill og léttur
og upplagður ferðafélagi með
fartölvu. Freecom hefur auka-
búnað fyrir mismunandi tengi
(FireWire, PC-kort, prentara-
tengi) og fyrir rafmagn annað-
hvort frá fartölvunni eða úr
sérstakri rafhlöðu. Með þess-
um búnaði er hægt að skrifa
geisladiska í flugvél eða hvar
sem er, þótt hraðinn sé minni
en heima. Það er líka kostur
bæði við Freecom og Iomega
að þeim fylgja reklar til að
tengjast Apple MacOs-tölvum.
Ókostir samhæfðra
Fremur illa gekk að nota sam-
hæfðu (,,combi“) skrifarana
sem eiga að geta „allt“, Ricoh
MP 9120 A-DP og Samsung
SM-308 B (og Toshiba
Combo SD-R 1002 sem ekki
fékkst hér). Þeir bjóða upp á
lestur á CD-ROM, skrif á og
lestur af CD-R og CD-RW og
lestur af DVD-diskum. (Hinir
síðastnefndu rúma 18 gígabæt
sem er margfalt á við CD-
diska. En afköst og gæði voru
alls ekki sérstök, mikilvæg at-
riði eins og lestrarnákvæmni
og leiðréttingar reyndust fyrir
neðan meðallag. Samhæfðu
skrifararnir eru hins vegar litl-
ir um sig og komast fyrir í
tölvuboxum af minni gerðum.
Áhrif hita og Ijóss
CD-diskar eru viðkvæmir.
Með því að nota dýra og sér-
staklega sterka diska er hægt
að lengja endingartíma mikil-
vægra gagna. En slíkir diskar
eru líka viðkvæmir fyrir risp-
um, fingraförum og ætandi
litarefnum (t.d. úr pennum).
Þeir geymast betur á svölum
stöðum en heitum. I gæða-
könnuninni voru ódýrir diskar
geymdir í nokkrar klukku-
stundir við 90°C og 90% loft-
raka. Þeir reyndust alveg
jafngóðir aflestrar eftir þessa
misþyrmingu eins og fyrir
hana. Þetta er athyglisvert því
framleiðendur ábyrgjast að-
eins að diskamir skemmist
ekki upp að 40° og í hæsta
lagi 55° hita. Diskar eyði-
leggjast sem sé ekki séu þeir
Gæöakönnun á geisladiskaskrifurum
Gefrar eru einkunnir á kvarðanum 1-5,5 þar sem 1 er lakast og 5,5 best. í könnuninni voru notaóir 650 MB diskar. í markaðskönnun Neytendablaðsins eru 29 skrifarar. | Hún er á vef Neytendasamtakanna, www.ns.is. Lykilorðið er neytandi
INNBYGGÐIR
Vörumerki
Gerð
Seljandi
Verð á Islandi í apríl 2001
Meóaiverð í Þýskalandi jan.-feb. 2001
Raðaó er eftir heildareinkunn, best fremst, Lökust aftast.
HEILDAREINKUNN
SKRIF (40%)
Skrifgæði á CD-R
Skrifgæði á CD-RW
Skrifhraði á CD-R
Skrifhraði á CD-RW
Skrifgæði á CD-hljómdiska
Fjölhæfni
Frammistaða / samhæfni
LESTUR (25%)
Leshraði af gagnadiskum
Leshraði af tónlistardiskum
Leitartími
Viðbragðshraði
Lestrarnákvæmni og leiðréttingar
ÞÆGINDI í N0TKUN (35%)
Notkun skrifara og hugbúnaóar
Búnaður og stillingar
Uppsetning skrifhugbúnaðar
Skrif tónlistar
Notkun hugbúnaðar við afritun á tónlist
Samsetning efnis á hLjómdiska
Skrif töLvugagna á diska
Snið CD-RW diska og útþurrkun efnis
Notkun hugbúnaðar við snið CD-RW
Handbækur, Leiðbeiningar
BÚNAÐUR (ekki metió í einkunnagjöf)
Skrifhugbúnaóar
4.01SE_______________________________________________
Pakkaskrifhugbúnaður________________________________
Skrifhraði á CD-R / CD-RW, uppL. framleiðanda
Innra minni
Hewlett Packard
HewLett Packard
UTANALIGGJANDI
Iomega Freecom ***
TraveLler CDRW 4x4x20x HP CD Writer 8230e
(EJS)
WinOnCD 3.8
16 / 10
2 MB
InCD 1.50/1.60 InCD 1.76 DirectCD 3.0
16 / 10 12 / 10 12/8
2 MB 2 MB 4 MB
Elko / Penninn
/ 32.9
geymdir um stundarsakir í
meiri hita, t.d. ef þeir gleym-
ast í hanskahólfi bíls.
Þar að auki voru ódýrir
diskar prófaðir með því að
láta sterkt ljós skína á þá
langtímum saman, alvöru ljós
með útfjólubláum (UV) geisl-
um. Ekkert gerðist. Dýrir og
sérstaklega UV-varðir diskar
virðast samkvæmt þessu ekki
hafa umtalsverða yfirburði
yfir CD-R diska við algeng
not.
Framkvæmd
í gæðakönnuninni voru notað-
ar PC-tölvur með 700 MHz
örgjörva, 128 MB RAM og
Windows ME stýrikerfi sem
var sett upp að nýju fyrir
prófanir á hverjum skrifara
fyrir sig. Alltaf var notuð
sama gerð af diskum.
Notaður var hugbúnaður-
inn sem fylgdi skrifurunum
og skrifað á átta CD-R diska
og tvo CD-RW diska í skrif-
gerðunum „Audio Disc at
once“ (DAO), „Audio Track-
at-once“ (TAO) og „Packet
writing“. Gögn voru skrifuð í
þremur lotum, hljóðum og
öðrum gögnum blandað sam-
an.
Skrifgæðin voru metin
með því að hlusta á tónlista af
diskunum í hljómflutnings-
tækjum og með tæknilegum
aðferðum.
Skýringar
*) Hér fékkst TDK CYC A 121032
**) Hér fékkst Samsung 818132
***) Hér fékkst Freecom 14480
Athugasemdir:
ALLa innbyggða skrifara er hægt að
nota með stýrikerfunum WIND0WS
95 / 98 / 2000 / ME / NT.
UtanáLiggjandi skrifararnir þurfa
USB-tengingu sem gengur með
WIND0WS 98/ 2000 / ME. AtLir
skrifararnir styðja skrifgerðirnar
„disc-at-once", „track-at-once" og
„packet writing" og geta notað
diskagerðirnar CD-R0M, CD-
R0M/XA, CD-DA, Photo CD, CD-I,
CD-G, CD-TEXT, CD-EXTRA . Ricoh
og Samsung eru samhæfðir
(combi) og geta líka Lesið DVD-
diska.
8
NEYTENDABLAÐIÐ - maí 2001
NEYTENDABLAÐIÐ - maí 2001
9