Neytendablaðið - 01.05.2001, Qupperneq 13
Byrgjum brunninn
að bömum sínum nálægt
vatni í ferðalögum. Börn og
vatn fara ekki saman ef þau
eru án eftirlits. Fæstir gera sér
grein fyrir því að börn undir
fjögurra ára geta drukknað í
vatni sem er ekki dýpra en
2-5 cm. Böm undir átta ára
aldri eiga aldrei að vera ein að
leik nálægt vatni.
Sundlaugar
Á fslandi voru reglur um ör-
yggi á sundstöðum settar í
kjölfar fjölmargra slysa. Mik-
ill árangur hefur náðst og
þessum slysum hefur fækkað
en aldrei má slaka á kröfun-
um því þá er hætta á að illa
fari.
í reglunum er kveðið á um
að börn undir átta ára aldri
eigi ekki að fara ein í sund.
Þar með er ekki sagt að for-
eldrar geti sent bömin sín ein
í sund þegar þau eru orðin
átta ára. Við foreldrar berum
ábyrgð á bömum okkur og þó
að gæslan á sundstöðunum sé
góð er það okkar ábyrgð að
senda ekki böm ein í sund
sem ekki kunna að synda.
Hringlaga kútar
Hringlaga kútar eru stór-
hættulegir. Þessir kútar eru
vinsælir og fólk telur sig vera
að kaupa öryggisbúnað, en
svo er alls ekki - þetta eru
leikföng og ekki öruggt að
börn noti kútana í sundi án
sérstaks eftirlits. Alvarleg slys
hafa orðið í þessum búnaði,
til dæmis þannig að börn
renni niður úr kútnum. Sumir
kútamir eru með buxum og er
dæmi um að slíkum kút hafi
hvolft og barnið verið fast í
honum með höfuðið undir
vatninu.
Foreldrar leggja mismun-
andi skilning í að gæta að
baminu sínu í sundi. Það er
ekki gott eftirlit að vera í
heita pottinum og fylgjast
NEYTENDASTARF ER ÍALLRA ÞÁGU
11-11 verslanirnar
Bónus verslanirnar
Bændasamtök íslands
Ceres hf.
Davíö S. Jónsson & co. ehf.
Efling - stéttarfélag
Eining-ldja, Eyjafiröi
Ellingsen ehf.
Emmessís
EUROPAY ISLAND
Farmanna- og
fiskimannasamband
íslands
Fatabúöin,
Skólavöröustíg 21
Feröaskrifstofa Reykjavíkur
Fjaröarkaup
Freyja ehf., sælgætisgerö
Fróöi hf., bóka- og
blaðaútgáfa
Fönix ehf.
Glerborg hf.
Harpa hf.
IKEA
Ingvar Helgason hf.
ísfugl hf.
íslensk matvæli
íslenska
útflutningsmiöstööin hf.
ístak hf.
Johan Rönning hf.
Kaupfélag Vopnfiröinga
Kolaportiö - Markaöstorg
Kringlan
Mjólkurbú Flóamanna
Mjólkursamsalan
Olíuverslun íslands hf.
Orkuveita Reykjavíkur
Osta- og smjörsalan
með litlum börnum í fjarska í
lauginni. Bam getur drukknað
á minna en þremur mínútum.
Sundlaugarverðir eru ekki í
bamagæslu heldur er hlutverk
þeirra að fylgjast jafnt með
öryggi allra sundlaugargesta.
Opnir grunnar
Slys þar sem börn eru hætt
komin inni á byggingarsvæð-
um eru algeng á sumrin. Mik-
ilvægt er að foreldrar fræði
böm sín um að fara ekki inn á
slík svæði. Foreldrum er líka
bent á að slík svæði eiga að
vera afgirt en því miður er
töluverður misbrestur þar á.
Það er því mikilvægt að setja
sig í samband við byggingar-
deild sveitarfélagsins eða
Vinnueftirlitið og láta vita ef
slíkir staðir em ekki afgirtir
eða hlið þeirra skilin eftir
opin eftir að vinnu lýkur.
Samband íslenskra
sparisjóöa
Samtök íslenskra
tryggingafélaga
Sjöfn hf., Akureyri
Sómi, samlokugeró
SVÞ - Samtök verslunar og
þjónustu
Starfsgreinasamband
íslands
Verkalýósfélagiö Hlíf,
Hafnarfiröi
VISA ISLAND
NEYTENDABLAÐIÐ - maí 2001
13