Neytendablaðið - 01.05.2001, Síða 14
Maturinn
Hvað fer í körfuna?
Hvernig valið er í innkaupa-
körfuna ræður miklu um fjár-
hag heimilisins. En innkaupin
hafa ekki bara áhrif á þyngd-
ina á buddunni, því þyngdin á
heimilisfólkinu, svo ekki sé
minnst á heilsu þess, getur
líka ráðist af því hvernig mat-
arinnkaupunum er háttað.
Hollustan hefst með vel
skipulagðri innkaupaferð.
Innkaupalisti
fyrir vikuna
Fysta skrefið í átt að betra
mataræði fyrir fjölskylduna er
að gera góðan innkaupalista
áður en farið er í stórmarkað-
inn. Næsta skrefið er auðvitað
að kaupa samkvæmt listan-
um, en það er oft hægara sagt
en gert þegar farið er í versl-
unarleiðangur eftir langan og
strangan vinnudag, sársvang-
ur, þreyttur og önugur. Alls
kyns kræsingar og óþarfi
verða svo miklu meira lokk-
andi þegar við erum svöng og
þreytt og afleiðingin geur
orðið sú að við komum heim
með allt aðrar og óheppilegri
vörur en ætlunin hafði verið.
Það er því yfirleitt betra að fá
sér eitthvað í svanginn áður
en farið er í matvöruverslun-
ina.
Hvernig lítur svo
listinn okkar út
Auðvitað er ekki til nein alls-
herjar regla fyrir alla, unga
sem aldna, um eina staðlaða
innkaupakörfu. Matarsmekk-
ur og aðstæður fólks eru ein-
faldlega það mismunandi.
Það sem hér verður sett fram
verður að skoða sem grófar
hugmyndir, tillögur sem
i hlii'kt rur mjólkunn
Eftir Laufeyju
Steingrímsdóttur
Hún er forstöðumaður
Manneldisráðs
byggja á ráðleggingum
Manneldisráðs um hollt
mataræði, sem hver og einn
þarf að laga að eigin aðstæð-
um.
Athugasemd við grein um sykur sem
birt var í Neytendablaðinu í nóvember
Á málþingi sem Náttúru-
lækningafélag íslands hélt
17. október í haust var um-
ræðuefnið sykur. I 4. tölu-
blaði Neytendablaðsins var
fjallað um þessa ráðstefnu.
Engu að síður snerist um-
ræðan þar ekki eingöngu um
sykur heldur einnig um öll
önnur kolvetni.
Kolvetni eru stundum
flokkuð í einföld kolvetni og
tlókin, en það orðalag er
ekki heppilegt og getur vald-
ið misskilningi. Almennt er
kolvetnum skipt í einsykrur,
tvísykrur, fásykrur og fjöl-
sykrur. Fjölsykrur skiptast í
sterkju og trefjar, en ein-
sykrur og tvísykrur mætti
einu nafni kalla sykur. Sykur
getur ýmist verið til staðar
náttúrulega í matvælum eins
og ávaxtasykur (einsykra)
og mjólkursykur (tvísykra)
eða sem viðbættur sykur,
oftast strásykur (tvísykra).
Það er fyrst og fremst mikil
neysla viðbætts sykurs sem
er áhyggjuefni og er aukin
umræða um hann mjög þörf.
Af sterkjuríkum matvæl-
um má nefna hveiti, hrís-
grjón, pasta og brauð, hvort
sem um er að ræða hvítar
unnar afurðir eða grófari.
Það er ekki hægt að setja
ljóst brauð, hvítt hveiti,
pasta og hrísgrjón undir
sama hatt og sælgæti, kökur
og gosdrykki og telja fólki
trú um að forðast eigi öll
þessi matvæli. Það er alger-
lega rangt að líkaminn sé
ekki gerður fyrir „einföld“
kolvetni. Það er ekki hægt
að segja að matvæli sem
innihalda kolvetni henti ekki
mannslíkamanum, þótt það
geti vissulega skipt máli fyr-
ir heilsuna um hvaða tegund
kolvetnis er að ræða. Ekki er
heldur rétt að staðhæfa að
íslendingar borði alltof kol-
vetnaríkt fæði. Hér hefur
neysla kolvetna verið með
því minnsta sem þekkist á
Vesturlöndum. Hins vegar
borðum við óhemju magn af
viðbættum sykri og það
kemur niður á næringargildi
fæðisins. Það er því mikil-
vægt að gera greinarmun á
því hvort talað er gegn við-
bættum sykri eða kolvetnum
almennt.
Anna Sigríður Olafsdótt-
ir, matvœla- og nœringar-
frœðingur hjá Manneldis-
ráði Islands
Uppistaðan
úr jurtaríkinu
Mjöl, korn og þurrvara eru
efst á listanum enda stór hluti
af daglegri fæðu. Hrísgrjón,
bæði hvít og brún, fara í körf-
una hjá okkur. Brúnu hýðis-
grjónin eru bæði hollari og
bragðmeiri en þau hvítu, en
þau eiga ekki alltaf við, og
hvít grjón eru líka síður en
svo nein óhollusta eins og
sumir vilja vera láta. Brúnu
grjónin eru hins vegar frábær
í grænmetisrétti, til dæmis
með baunum og grænmeti.
Grænmetisréttur vikulega er
bæði heilsusamleg og góð til-
breyting, og kemur sér vel
fyrir budduna. Baunir eru ein-
hver ódýrasta fæða sem hugs-
ast getur og hægt að matreiða
þær á ótal vegu. Poki af ein-
hverri baunategund, til dæmis
kjúklingabaunum eða linsu-
baunum, fer því í körfuna.
Röðin er komin að past-
anu. Það er fáanlegt bæði úr
hvítu hveiti og heilhveiti sem
auðvitað er hollara. Flestir
kjósa samt það hvíta, enda er
það góður orkugjafi og ódýr
matur. Því hefur verið haldið
fram að hvítt pasta sé sérlega
fitandi og óheilsusamleg
fæða, og geti jafnvel valdið
alvarlegum sjúkdómum á
borð við sykursýki. Þetta er á
misskilningi byggt. Pasta er
þeim eiginleikum gætt að við
meltingu brotna sykureindir
hveitisins óvenju hægt og
sykurinn fer hægt út í blóð-
rásina. Pasta hefur því tiltölu-
lega lágan sykurstuðul borið
saman við margar kolvetna-
ríkar fæðutegundir og líkist
að því leyti heilkorna fæðu,
jafnvel þótt það sé gert úr
hvítu hveiti. Pastamáltíð einu
sinni í viku er því ágæt til-
högun, en þá skiptir máli að
hafa mikið af grænmeti með
pastanu ásamt próteinríkari
14
NEYTENDABLAÐIÐ - maí 2001