Neytendablaðið - 01.05.2001, Page 17
Gæðakönnun
GSM -símar
Data) getur flutt gögn á 28,8
Kb/sek. og er miðuð við inter-
netnotkun en verður e.t.v. of
hægskreið í samkeppninni.
Kostnaðurinn
Mikil fjölbreytni ríkir í bún-
aði, innkaupsverði og rekstr-
arkostnaði símanna. Það
sannast m.a. á breiðu verðbili,
rúmlega sjöfaldur verðmunur
er á ódýrasta GSM-símanum
og hinum dýrasta í verðkönn-
framleiðsluland, þyngd, gerð
rafhlöðu, endingu rafhlöðu, Mhz
Wit og WAP. Sjá www.ns.is.
ENDING (5%)
Þæqindi Höqqpróf
í notkun heild
4,1 4,8
4,2 5,0
4,4 4,7
4,4 5,0
4,1 4,8
3,7 5,5
3,8 4,8
3,8 3,0
4,2 4,8
3,7 5,0
4,0 4,8
4,1 4,8
3,3 5,5
4,0 5,5
3,8 5,0
4,3 3,0
3,5 5,4
3,9 5,0
4,0 4,8
4,2 5,0
3,8 3,9
3,5 5,0
3,8 4,0
3,5 5,5
4,2 3,8
3,7 5,0
3,7 5,2
3,8 5,0
3,8 4,8
4,0 2,0
sumum símum og auðveldar innslátt.
m.k. 20 klst. U.v.: upptýsingar vantar
uninni sem gerð var í apríl og
birt er á www.ns.is, verðið er
frá 8.400-59.900 kr. Einn af
samkeppnisþáttunum er mis-
munandi ending og kostnaður
rafhlöðu. Það sem fólk greiðir
hærra verð fyrir í dýrum
GSM-símum er einkum með-
færileiki og möguleikar.
Við val á hagkvæmri
áskrift þarf að taka tillit til
þess hvemig og hvenær er
helst fyrirhugað að nota sím-
ann. Símafyrirtækin bjóða
upp á margvíslega möguleika
og er því hægt að „skraddara-
sauma“ áskriftina fyrir hvem
og einn notanda. Fyrir marga
er hagkvæmast að kaupa
símakort (tiltölulega hærri
mínútugjöld en engin áskrift-
argjöld). Og munið að GSM-
símar sem virðast nánast
gefnir samkvæmt auglýsing-
um hafa líka kostað sitt þegar
upp er staðið og búið að
greiða skráningar- og notkun-
argjöld.
Næmið er misjafnt
Skynsamlegt val á GSM-síma
getur farið eftir því hvar not-
andinn býr, heldur sig helst
eða ætlar að ferðast. Þótt
GSM-dreifikerfin nái víða um
land er sambandið lélegt eða
dettur út víða utan þéttbýlis.
Símafyrirtækin sýna á kortum
hvar á að vera hægt að nota
símana. En næmið er einn af
þeim fáu þáttum þar sem tals-
verður mælanlegur munur er
á símagerðunum. Fyrir not-
anda sem ætlar fyrst og
fremst að vera á svæðunt þar
sem samband er gott skiptir
næmi GSM-símans ekki eins
miklu máli og fyrir þann sem
ferðast mikið eða dvelst á jað-
arsvæðum þar sem sambandjð
er slakt. Unnt er að tengja við
símana aukaloftnet til að bæta
skilyrðin.
Annar þáttur sem getur
ráðið vali á síma er hve skýrt
hann flytur eða tekur á móti
tali þar sem umhverfishávaði
er mikill. Ef notandinn þarf
Bestu kaupin
Af símunum í gæðakönnuninni sem fást hér á landi reyndust
tveir hinna efstu á afar hagstæðu verði.
Nokia 3310 fékk 4,02 í heildareinkunn og kostaði 15.900
kr. í Elko, 15.999 kr. í BT, 16.890 kr. í Radíómiðun, 16.900
kr. í Hátækni, Kaplan og Tal, 16.990 í Heimilistækjum hf.
og 17.900 kr. í Nýherja.
Philips Ozeo fékk 4,02 í heildareinkunn og kostaði
16.900 kr. í Heimilistækjum hf.
Góð kaup
Hér er bent á hagstæða síma sem eru í gæðakönnunni og fást
hérlendis.
Philips Xenium 9@9 fékk hæstu heildareinkunn allra
síma í gæðakönnuninni, 4,43, og kostaði 29.900 kr. í Heim-
ilistækjum hf.
Sicmens S 35i fékk 4,10 í heildareinkunn og kostaði
27.999 kr. í BT, 29.900 kr. í Elko og Tal og 33.100 kr. hjá
Smith og Norland.
Ericsson T20s fékk 4,00 í heildareinkunn og kostaði
19.899 kr. í Hátækni, Kaplan og Radíomiðun
Ericsson R320s fékk 3,98 í heildareinkunn og kostaði
19.900 kr.í Radíómiðun og Kaplan en 22.900 kr. í Hátækni.
að tala oft fótgangandi í um-
ferðamið þarf hann að nota
næman síma.
Hvernig er hann
í notkun?
Áður en GSM-sími er keyptur
ætti notandinn alltaf að prófa
að halda á honum, hringja úr
honum og láta hringja í sig.
Aðeins þannig fær hann til-
finningu fyrir því hve hentug-
ur hann verður.-Eru hnapp-
amir af viðunandi stærð? Litl-
ir símar fara þægilega í vasa
eða tösku en það pirrar marga
að nota smáa hnappana á
þeim. Sést letrið á skjánum
nógu vel? Eldri kynslóðin
þarf að jafnaði stærra letur en
sú yngri. Leturstærðin og
fjöldi lína á skjánum skiptir
oft miklu máli fyrir þá sem
NEYTENDABLAÐIÐ - maí 2001
17