Bændablaðið - 21.04.1998, Page 7

Bændablaðið - 21.04.1998, Page 7
Þriðjudagur 21. apríl 1998 Bændablaðið 7 Kartöfluverksmiðjan í Þykkvabæ og Rala Leitað að kartúfluafbrigði sem hentar vel fil forsuðu í gangi er verkefni um að leita að kartöfluafbrigði sem hentar vel til forsuðu. Gullauga hentar vel til þessa nema að því leyti að augun eru mjög djúp og blöðrukláði herjar á það. Vegna þessara djúpu augna næst aðeins um helmings nýtni og jafnvel minna. Mörg eriend afbrigði hafa mun betri nýtni en þeim hættir til að molna þegar þær eru hitaðar aftur upp á veitingahúsum. Kartöfluverksmiðjan í Þykkva- bæ og Rala vinna saman að þessu verkefni og Framleiðnisjóður hef- ur styrkt það um samtals 300 þús. kr. á síðustu tveimur árum. Verk- efnið er sett upp til þriggja ára. I fyrra voru sett niður 24 afbrigði og eru vonir bundnar við 1-2 þeirra. 1 vor verða þau sett niður ásamt nokkrum öðrum af þessum 24 afbrigðum auk nýrra afbrigða. í haust munu liggja fyrir ákveðnar vísbendingar en endanlegar niður- stöður fást ekki fyrr en eftir tvö ár. Styrkir til hagræðingar og vöruþróunarverk- efna í slátrun og vinnslu sauðfjárafurða í samræmi við samning um framleiðslu sauðfjárafurða frá 1. október auglýsir Framkvæmdanefnd búvörusamninga styrki til hagræðingar og vöruþróunarverkefna í slátrun og vinnslu sauð- fjárafurða. Skilafrestur umsókna eru annars vegar til 1. júní 1998 og hins vegar til 1. ágúst 1998. Nánari upplýsingar og reglur um úthlutun er hægt að fá í landbúnaðarráðuneytinu, Sölvhólsgötu 7, sími 560 9750 og hjá Bændasamtökum íslands, Bændahöllinni við Hagatorg, sími 563 0300. HROSSARÆKTENDUR, HESTAMENN ATHUGIÐ! í samræmi við ítrekaða samþykkt fagráðs í hrossarækt frá 11. desember sl. skulu allir stóðhestar sem mæta til kynbótadóms vera blóðflokkaðir eða DNA-greindir til staðfestingar á ætterni. Ekki verða aðrir stóðhestar teknir til dóms en þeir sem uppfylla BÆNDASAMTÖK ÍSLANDS Búfjáreftirlit og hrossarækt Bændahöllinni v/Hagatorg, Netfang: bi@bi.bondi.is Sími 563 0300, fax 562 3058 Ferðaþjónustubændur fjalla um nýtt flokkunarkerfi gistiaðstöðu Dregið úr opinberum lágmarkskröfum þetta skilyrði. Á aðalfundi Félags ferða- þjónustubænda, sem haldinn var fyrir skömmu, var fjallað um flokkunarkerfi sem kynnt hefur verið af Samgönguráðu- neytinu. Við gerð þess var ekki reiknað með helmingi gististaða á landinu - þ.e. þeim stöðum sem bjóða 8 herbergi eða minna. í þessu nýja kerfi er einnig dregið verulega úr opinberum lágmarkskröfum og er það mikið hættumerki við núverandi aðstæður þegar kröfurnar á markaðnum fara stöðugt vaxandi. Fundarmenn lýstu yfir áhyggjum sínum vegna þessara tillagna og samþykkti fundurinn eftirfarandi ályktun til samgönguráðherra: „Aðalfundur Félags ferða- þjónustubænda haldinn að Hótel Sögu, 27.03.98, harmar þau vinnu- brögð sem viðhöfð voru þegar reglur um flokkun gististaða vom settar saman. Félag ferðaþjónustu- bænda bendir á að um árabil hefur félagið haft með höndum gæða- flokkun fyrir gistiaðstöðu félags- manna sinna með góðum árangri. Fundurinn lýsir furðu sinni á að ekki var leitað til félagsins, sem er sá aðilinn í landinu sem reynslu hefur í reglubundnu eftirliti og flokkun gististaða. Það er eindregin ósk Félags ferðaþjónustubænda að félagið komi að þeirri vinnu sem hlýtur að fara fram þegar þessar reglur verða endurskoðaðar. Félagið telur að fyrirliggjandi tillögur séu í sumum tilfellum skref aftur á bak og í ýmsum til- vikum óviðunandi." Teno Spin áíslandi f 10 ár Bændur! Verslið þar sem reynslan er mest og piastið er b...!!!!!!!!! Jjp Kverneland fZTlarin Kverneland Teno Spin rúllubaggaplast Verð: 50 sm -1.800 m kr. 4.150 + VSK 75 sm - 1.450 m kr. 5.150 + VSK Hafið samband við umboðsmenn okkar um land allt og tryggið ykkur gæðarúllubaggaplastið frá Teno Spin. Ingvar Helgason hf. Vélasala, Sævarhöfða 2, sími 525 8000. '? Kverneland Umboðsmenn jjspin Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki Kaupfélag A.-Skaftfellinga, Höfn Jóhann Pétur Ágústsson, Bijánslæk Sigurður Jónsson, Hvolsvelli Vélaverkstæðið Víkingur, Egilsstöðum Stefán N. Stefánsson, Breiðdalsvík Byggingafélagið Klakkur, Vík í Mýrdal Betri Bflasalan, Selfossi Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdimarssonar, Akureyri Kverneland ŒZJspin

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.