Bændablaðið - 21.04.1998, Blaðsíða 8
8
Bœndablaðið
Þriðjudagur 21. apríl 1998
Hvert er megin markmið bænda? Er það ekki að ná sem mestum tekjum af sínu búi? Eða
er það að halda lífi á sama hátt og forfeðurnir og breyta ekkert út frá gömlum venjum?
Eg held að megin markmið sauðfjárbænda, sem og annarra bænda, hljóti að vera að hafa
sem mestar tekjur út úr hverri vetrarfóðraðri á (og þar með talið að halda góðu lífi í sér
og sínum). En hvemig fara menn að því að ná markmiðinu? Þær leiðir eru auðvitað eins
margar, markvissar og árangursgóðar og bændurnir eru margir. Mig langar hér til að
kynna hvernig við hjónaleysin höfum farið að því að ná okkar markmiði.
Allir dilkar I fyrsia flokk
Guöný Helga Bjömsdóttir,
Be88astöðum, V.-Húnavatnssýslu.
Kynbætur eiga stóran þátt í því
að auka tekjur bænda. Sauðfjár-
bændur geta notað kynbætur t.d. til
að auka fijósemi og bæta ullar- og
kjötgæði fjárins. Með nýju kjöt-
mati koma kostir vel byggða
fjárins enn betur í ljós. Bændur
hafa meira fyrir sinn snúð ef þeim
hefur tekist vei til við að auka og
bæta vöðvafyllingu dilkanna.
Annar þáttur sem ég tel að sé
stór liður í auknum tekjum bænda,
er sláturtími fjárins. Með tilkomu
Félags Ferskra Fjárbænda í Vest-
ur-Húnavatnssýslu og Dölum hafa
opnast upp á gátt þær dyr sem
veita neytendum aukna þjónustu
með því að bjóða upp á ferskt
dilkakjöt yfir mun lengri tíma
ársins. Þar hefur jafnframt opnast
leið að auknu fjárstreymi og
tekjum innan búsins. Bændunum
er borgað fyrir þá auknu vinnu og
kostnað sem þeir leggja fram við
að eiga lömb til slátrunar utan
hefðbundins sláturtíma. Afurða-
stöðvar og aðrir söluaðilar dilka-
kjöts hafa fylgt í kjölfar FFF og
Hagkaups, en ekki náð að skila
bændum réttu „yfirverði" fyrir
dilkana.
En hvemig ná bændur því að
eiga lömb tilbúin til slátrunar í
byrjun júlí? Haustið 1996 héldum
við hjónaleysin nokkrum ám
snemma þannig að þær báru um
10. apríl 1997. Ær sem sæddar
voru báru í byrjun maí, en afgang-
ur ánna, um 150 ær, byijuðu að
bera um 20. maí. Æmar sem bám
fyrst gengu allar með tveimur
lömbum. 10 dögum eftir að þær
bám settum við þær allar saman í
mátulega stóra kró með lömbin.
Þar við hliðina höfðum við dálítið
afdrep sem lömbin komust að og
gátu étið í friði og leikið sér, en
æmar komust ekki þar að. Með því
að gefa lömbunum gott hey og
kjamfóður minnkaði álagið á
æmar. Anum var jafnframt gefið
gott hey og var þess alltaf gætt að
nóg af nýju og góðu heyi væri hjá
þeim. Til samans var ánum gefið
yfir tímabilið (10. apríl til 15. maí)
einn poki af maís og einn poki af
fiskimjöli. Þegar fór að þoma um
úti settum við fjölskyldumar út og
gáfum þeim, jafnframt því sem
þær höfðu aðgang að túni. Við
slepptum þeim því næst á úthaga
og gáfum þeim þar uns þær hættu
að koma að.
Ein af þessum 12 ám fékk
júgurbólgu vegna sárs á spena. Var
það sú ær sem vanið hafði verið
undir annað lamb og það lamb var
orðið örlítið tenntara en hennar
eigið og gekk nær henni fyrstu
dagana eftir burðinn.
I þennan sama úthaga settum
við allar einlembur og æmar úr
sæðingunum. Þegar kom að því að
velja lömb til slátrunar í byrjun júlí
(28. vika ársins) var þessi úthaga-
girðing smöluð og öll lömbin
vigtuð. Því næst vom valin lömb
sem voru 26 kíló eða þyngri og
með góða vöðvafyllingu sam-
kvæmt þreifmgu á síðu og hrygg.
Hjá tvílembum var aðeins þyngra
lambið tekið. Fyrir þessi lömb
fengum við borgað eins og þau
hefðu öll verið 23,9 kg DIA fall í
hefðbundinni sláturtíð án tillits til
útflutningsprósentu og beingreiðslna.
Mér þætti gaman að sjá það bú sem
gæfi slíka vigt og flokkun.
Hálfum mánuði síðar (30. vika
ársins) var aftur smalað til slátmn-
ar. Þá var seinna lambið tekið. Það
ar greinilegt að lambið sem skilið
hafði verið eftir hafði bætt mikið
meira við sig en ef lömbin hefðu
verið bæði undir ánni.
í meðfylgjandi töflu er unnt að
sjá hvemig DIA og Úrvals lömbin
lögðu sig í hverri slátrun. Ekki er
reiknað inn lækkun á haustverði
vegna hlutfalls til útflutnings, ef
slíkt væri gert kæmi dæmið enn
betur út. (Sjá töflu).
í hefðbundinni sláturtíð var
einnig kappkostað að velja lömb til
slátmnar, auðvitað em bændur
bundnir af því að slátra öllum hrút-
um fyrir tilsettan tíma. Þó er óþarfi
að leggja inn hrúta sem augljóst er
að eru of rýrir til að ná almenni-
legu falli. Þá er hægt að gelda og
geyma fram á veturinn eða jafnvel
næsta haust og leggja inn sem
sauði.
Með því að skoða lömbin áður
en þau em lögð inn í sláturhús er
unnt að sjá til þess að flokkunin
verði sem best. Að slátra jafnt og
þétt yfir sumartímann kemur í veg
fyrir að bændur þurfi að leggja inn
of feita dilka (Svo framarlega sem
þeir hafi aðgang að öllu fénu). Og
unnt er að komast hjá því að leggja
inn of rýr lömb með því að geyma
þau til seinni tíma. Slátmn utan
hefðbundins sláturtíma er undan-
þegin útflutningi og þar með koma
nokkrar krónur í vasann, í það
minnsta á meðan útflutningsverðið
er lægra en innanlandsverðið til
bænda. Með þjálfun tekst bændum
að átta sig á hvenær lömbin em
sláturhæf. Reyndar kemur til nýtt
kjötmat í ár. Má búast við að eitt-
hvað þurfi samhliða því að auka
kröfur við mat á sláturlömbum.
Til að geta stundað sauðfjárbú-
skap með þessum hætti verða
menn auðvitað að hafa góða að-
stöðu í fjárhúsum eða hlöðu því
æmar sem bera svo snemma þurfa
gott atlæti og rými. Einnig þurfa
menn að hafa góðar girðingar
heimavið svo ekki taki of langan
tíma að ná fénu saman og til að
unnt sé að stunda góða beitar-
stjómun. Bændur sem reka á afrétt
geta auðvitað ekki valið úr öllum
hópnum, en unnt er að velja það fé
sem fer á afrétt. Þannig er unnt að
skilja eftir heima æmar með
snemmfæddu lömbin, einlemb-
ingana og lömbin með mjólkur-
lögnustu ánum, sem sagt þau lömb
sem víst er að séu fljótust að ná
þroska og fara að fitna.
Margir bændur hafa spurt okk-
ur hvort æraar fái ekki júgurbólgu.
A haustin emm við vön að grípa
undir hveija á, jafnframt því að
skoða tennur og annað heilbrigði.
Síðastliðið haust vom engu fleiri
ær með júgurbólgu en undanfarin
ár. Enda sé ég ekki að það sé neitt
öðmvísi nema til hagnaðar að taka
lambið undan ánni til að slátra því,
eins og að það villist undan ánni
eða drepist í skurði eða af öðmm
völdum. Mér finnst mun betra að
frúmar í Vesturbænum njóti góðs
af búinu mínu heldur en kmmmi
eða annar vargur.
í fjárhúsinu á Bessastöðum f vor.
Þyrfti að
vera
þungt
um
Verð með haust
^látrað Fætt T Lítþungi T ^aliþungi Kjöt% Verð m.v. verðlags- ^rundvöll yfirborgun og greiðslu Irá markaðs- ráði Kr/kg T T Verð auk sláturs og gæra Lífdagar T Þyngdar- aukning/ dag T tilað sama verð fengist T
28.v. 16. apríl 27 13,1 45 3.000 5.670 432,41 6.356 81 0,17 23,89
30.v. 9. april 31 13,2 42 3.008 5.331 404,52 6.030 102 0,13 22,46
32.v. 23. maí 32 14,3 45 3.262 5.204 363,82 5.943 73 0,21 21,93
35.v. 29. maí 36 15,4 43 3.513 4.605 299,14 5.368 87 0,18 19,40
37.V. 31. maí 39 16,5 43 3.915 3.915 237,32 4.830 101 0,16 16,50
39.V. 30. maí 39 18,1 44 4.294 4.294 237,32 5.283 117 0,15 18,09
42.V. 5.- júni 17,6 4.170 4.170 237,32 5.159 132 0,13 17,57
47.v. 31,- maf 42 17,1 41 4.051 4.415 258,68 5.350 169 0,10 18,61
50.V. 1.- júnf 40 15,8 40 3.754 4.317 272,92 5.217 189 0,08 18,19
i
Bœndablaðsmynd: Jón Eiríksson