Bændablaðið - 21.04.1998, Side 11
Þriðjudagur 21. apríl 1998
Bœndablaðið
11
„ViO verfium afl sifla við
sama borð og aflrir"
„Ég tel að löggjafinn verði að
endurskoða lagasetningar um
skógrækt í ljósi þess að nú hafa
norðlenskir bændur stofnað til fé-
lags skógarbænda. Til eru sérstök
lög um Héraðsskóga og
síðar vom sett sérstök
lög um Suðurlandsskóga.
Þá lýsti landbúnaðarráð-
herra því yfir að þetta
yrði í síðasta skipti sem
sett yrðu lög um sérstök
skógræktarverkefni.
Norðlendingar standa al-
farið utan þessara skóg-
ræktarsvæða. Ég tel því
að þeir verði annað hvort
að fá skógræktarverkefni
viðurkennt með sérstök-
um lögum á sama hátt og
Héraðsbúar og Sunn-
lendingar eða að laga-
setningum um skógrækt
verði breytt á þann veg
að ein lög taki til allra
þeirra landssvæða sem
félög skógarbænda ná
til,“ segir Eiríkur Hreið-
arsson, garðyrkjubóndi á
Grísará í Eyjafirði og
formaður nýlega
stofnaðra samtaka norð-
lenskra skógarbænda.
Félag skógarbænda á
Norðurlandi var stofnað
á liðnu ári og nær yfir
svæðið frá Húnavatnssýslum til
Þingeyjarsýslna en nokkur fjöldi
bænda á Norðurlandi hefur
stundað skógrækt um árabil. Eirík-
ur Hreiðarsson segir að fyrsta
hvatningin að stofnun félags er
nær yfir allt Norðurland hafi kom-
ið frá sr. Hjálmari Jónssyni, presti
og alþingismanni en hann sé mikill
áhugamaður um þessi mál. Með
þessu hafi Hjálmar talið að Norð-
lendingar gætu stofnað til sam-
bærilegs átaks og Héraðsbúar og
Sunnlendingar. Þetta hafi orðið
bændum hvatning til þess að
stofna félagið og efna þar með til
sambærilegs átaks og Sunnlend-
ingar hafa gert með Suðurlands-
skógum.
Þegar farið var að kynna hug-
myndina um stofnun féíags skóg-
arbænda þá hlaut hún fljótt góðan
hljómgrunn á meðan bænda og eru
nú hlutfallslega flestir félags-
manna úr Skagafirði. Eiríkur segir
að skógræktarhugmyndir hafi
hingað til fyrst og fremst miðast
við nytjaskóga til framleiðslu á
timbri en nauðsynlegt sé að horfa á
skógræktina í víðara samhengi.
Hann segir að ákveðna menningu
fylga skógrækt og skógum og
þurfi ekki annað en horfa til hinna
skógi vöxnu nágrannalanda til þess
að finna þau sterku menningaráhrif
sem skógamir hafi. Eiríkur segir
einnig að oft gæti þess mis-
skilnings að skógrækt og búfjár-
rækt geti ekki farið saman. Vissu-
lega þurfi að gefa skóglausu landi
frí frá umgangi búfjár í nokkum
tíma á meðan skógurinn nái
ákveðnum vexti en eftir það sé allt
í lagi að beita búfénaði á skóg-
lendi. Það þurfi ekki að líta langt
til þess að sjá að skógar og búfé
fari saman - tæpast lengra en til
Norðurlandanna. Þama sé spum-
ing um einn til tvo áratugi.
Nú er hafinn undirbúningur að
starfi hins nýja félags og segir Ei-
ríkur Hreiðarsson að gera verði ráð
fyrir allt að tveggja ára undir-
búningsvinnu. Ef allt gangi að ósk-
um megi gera ráð fyrir að starfið
verði komið í fullan gang árið
2000. Eiríkur segir ljóst að stórir
hlutar Norðurlands henti ágætlega
til skógræktar og ekki þurfi annað
en líta á árangur af skógræktar-
starfi ýmissa bænda á svæðinu til
þess að meta það. Hann kvest því
bjartsýnn fyrir hönd norðlenskra
skógarbænda en vissulega þurfi
þeir að sitja við sambærilegt borð
og félagar þeirra sunnan heiða eigi
árangur norðlenskrar skógræktar
að vera með þeim hætti sem stefnt
sé að.
Þarftu að
selja, kaupa
eða gefa.,.?
563 0300
Smáauglýsingar
Bændablaðsins eru
áhrifaríkar!
Símenntun og
íiiorðinsfræðsla
Ámi Snæbjömsson, hlunnindaráöu-
nautur Bændasamtaka íslands.
Nýlega hélt Símennt stutt
kynningarnámskeið á Drangs-
nesi og Hólmavík. Tilgangur
námskeiðanna var að vekja
athygli á mikilvægi símenntun-
ar og fullorðinsfræðslu fyrir
fólk á öllum aldri, ásamt því að
kynna möguleika sem þegar
eru til staðar varðandi fræðslu
og benda á ýmsa möguleika til
aukinnar nýbreytni á atvinnu.
Leiðbeinendur á námskeiðun-
um voru þær Ingibjörg Stefáns-
dóttir og Edda Hrund Halldórs-
dóttir frá Símennt, Halldór Hall-
dórsson frá Fjórðungssambandi
VestQarða og Ami Snæbjömsson
frá Bændasamtökum íslands.
Námskeiðin vom skipulögð í sam-
vinnu við heimamenn og voru þau
allvel sótt og þóttu takast vel.
Símennt er samstarfsvettvang-
ur Bændasamtaka Islands, Kvenfé-
lagasamtaka íslands og Ung-
mennafélags íslands, sem hefur
fullorðinsfræðslu að markmiði. Sí-
ment gegnir sambærilegu hlut-
verki og FNV - fullorðinsfræðslan
á Norðurlöndunum, sem Bænda-
samtök Islands eru aðilar að.
Eitt megin verkefni Símenntar
er að halda kynningamámskeið í
dreifbýli og hvetja fólk til athafna í
síbreytilegu umhverfi sem við
blasir á flestum sviðum þjóðlífsins
og benda á leiðir til að takast á við
ný verkefni, ekki hvað síst með því
að nýta alla þá möguleika sem
bjóðast til endurmenntunar/sí-
menntunar. Á námskeiðunum er
einnig reynt að vekja athygli á
þeim möguleikum sem hvert
svæði býður upp á og hvetja ein-
staklingana til að nýta öll hugsan-
leg sóknarfæri í heimahémðum til
aukinnar atvinnu.
Það er reynsla nágrannaþjóða
okkar að endurmenntun/símenntun
sé undirstöðuatriði fyrir einstak-
lingana til að takast á við ný og sí-
breytileg verkefni. Hér á landi em
nú í boði margvíslegir valkostir til
endurmenntunar auk hefðbundins
náms, bæði í formi námskeiða og
fjamáms og er það vel sambæri-
legt við það sem býðst í öðrum
löndum.
Frá fundinum á Drangsnesi. F.v. Ragna Guðmundsdóttir og Guðmundur
Halldórsson, Ásmundarnesi, Brynjólfur Sæmundsson, Hólmavík, Pálmi
Sigurðsson, Klúku, Jón Hðrður Elíasson og Jenný Jensdóttir, Drangsnesi.
*
MASSEY
FERGUSON
Varahlutir
Perkins
engines
Varahlutir
^TRIMA
Varahlutir
££IMS
Varahlutir
Varahlutir
Kverneland
Varahlutir
Brynningar
tœki og
varahlutir
Klippur og
varahlutir
Varahlutir
Varahlutir Varahlutir
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2, - sími 525 8000
Vélavarahlutir, sími 525 8040
Almennar upplýsingar um
landbúnaö á Internetinu
Notkun á veraldarvefnum verður sífellt
algengari og einn vefari var beðinn um
að benda á nokkrar síður um
landbúnað. Tilgangurinn erfyrst og
fremst að vekja athygli á fjölbreytni og
notagildi vefsins og vísa netförum á
athyglisverðar slóðir en ekki að fá tæmandi lista.
Almennt um landbúnað
http://www.agricullure.com/ Agriculture Online, rafrænt tímarit um
landbúnað.
http://www.gennis.com/aglinks.html AG-links. Fjöldi tilvísana í
landbúnaðarupplýsingar.
http://www.aginfo.com/agsearch.html ISA - Agricultural Information
System.
http://www.nalusda.gov/ USA National Agriculture Library.
http://thorplus.lib.purdue.edu/all_libraries/agriculture.html Catalogs for
Agriculture, Purdue University, tilvísanir í rnargar Gopher leitarvélar.
http://ibm.rhrz.uni-bonn.de/iol/english.html Bonn, Þýskaland, Institute of
Organic Agriculture.
http://www.jubii.dk/erhverv/landbrug.htm Safn danskra landbúnaðarsíðna.
http://www.ansi.okstate.edu/library Oklahoma State University Livestock
Virtual Library, Mæli eindregið með þessari síðu. Hér eru síður fyrir margar
dýrategundir og ótal kyn innan hverrar tegundar. Umfjöllun er um hvert kyn og
mjög góðar myndir, t.d. eru nokkrar blaðsíður um íslenskar kindur og hross með
fjölmörgum myndum en aðeins ein síða með íslenskum kúm og engar myndir.
.........meira seinna!