Bændablaðið - 21.04.1998, Qupperneq 18
18
Bcendablaðið
Þriðjudagur 21. apríl 1998
Grafískur hönnuður í Aðaldal
Landsbyggðin og þróun hennar er
málefni sem margir velta fyrir sér. Jákvæð
byggðastefna er baráttumál flestra
stjómmálaafla og menn huga að því
hvemig hafa megi áhrif á þróunina.
Samfara aukinni tækni fækkar störfum
jafnt og þétt í hefðbundnum búskap og
þeir eru færri og færri sem afkasta því að
brauðfæða þjóðina. Trúa má því að
sveitimar haldist í byggð þrátt fyrir þetta
og að þar búi fólk sem hefur ýmsa aðra
vinnu en það að vera bændur og nýti
möguleika dreifbýlis á annan hátt en gert
hefur verið.
Eitt er það að trúin á möguleikana þarf
að vera fyrir hendi og þekkingu þarf til
þess að nýta þá. Þá er ljóst að að nútíma
samskiptanet munu auðvelda mjög búsetu
í dreifðari byggðum.
Bændablaðið leit inn hjá Jóni Ásgeiri
Hreinssyni í Aðaldal en hann býr með
fjölskyldu sinn að Staðarhrauni þar í sveit
og býr með allt annað en hefðbundinn
búskap.
Jón Ásgeir er grafískur hönnuður en
Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir kona hans
er húsgagnasmiður og hefur einnig lært
kvikmyndaförðun.
Jón hefur nokkuð fengist við
fluguhnýtingar undanfarið og hefur
stofnað Þingeyska Loftfélagið sem
framleiðir alíslenskt fluguhnýtingarefni.
Hann er í sambandi við Hollendinga sem
vilja kauþa þetta hráefni og dýralæknirinn
er að athuga þau gögn sem þarf að hafa til
þess að geta sent þetta úr landi.
Efnin em sérstaklega pökkuð fyrir
innanlandsmarkað, en það vekur athygli að
verið sé að flytja inn kálfahala frá
Englandi í fluguhnýtingar. Þá er einnig
verið að flytja inn refaskinn, skott,
geitaskinn, ull, hænsni o.m.fl. sem ætti að
vera hægt að fá hér heima.
Bœkur, stangveiðiskóli, veiðistangir og
verslun
„Ég byrjaði að hnýta flugur þegar ég
var í kringum tvítugt, en nú vaknaði
áhuginn aftur þegar ég fór að gera
heimildarmyndina mína um Laxá í
Aðaldal. Þá tók ég viðtal við Pétur
Steingnmsson fluguhnýtingarmeistara í
Laxámesi og fór upp úr því að hnýta með
hænsnafjöðrum og afskurðum af
refaskinnum frá kunningjum mínum hér í
Aðaldalnum.
Þannig kviknaði sú hugmynd hvað það
væri miklu ódýrara að nýta heimafengin
efni í stað þess að flytja þau inn. Maður
verður hvorki ríkur af þessu né feitur en
þetta er hins vegar nýtingarsjónarmið á
íslenskum efnum.
Nafnið á Þingeyska Loftfélaginu er
auðvitað orðið til í spaugi en það félag
stendur að bókinni um Mývatn sem verið
er að vinna að og Stóm stangveiðibókinni
sem er í undirbúningi. Það em sem sagt
bækur sem ég er að vinna að nú í
augnablikinu. Annars emm við orðnir tíu
hér á svæðinu sem emm að vinna að
fluguhnýtingum.
Við þetta hangir framleiðsla á
veiðistöngum og mun ég hefja hana innan
tveggja ára. Þær munu verða kenndar við
Laxá í Aðaldal, en maður þarf svolítið að
hugsa um framleiðslumöguleika í eigin
umhverfi. Þá er ég einnig að setja í gang
stangveiðiskóla sem tekur til starfa 1999
og er aðalmarkhópurinn Bandaríkjamenn
og því tengist verslun sem selur
fluguhnýtingarefni héðan, svo og stangir.“
Auglýsinjgar og bœklingar
Jón Asgeir vinnur við öll stig grafísku
hönnunarinnar bæði umbúðahönnun,
auglýsinga- og bæklingahönnun og þá
vinnur hann að útlitsgerð hvalasafnsins á
Húsavík. Einnig vinnur hann að skiltagerð.
Þetta er allt unnið á tölvu og notar hann
Intemetið til þess að koma verkefnum
sínum í prentun eða til birtingar í
dagblöðum og tímaritum. Hann getur sent
verkefni frá sér hvert sem er hvort það er
til Reykjavíkur eða Timbuktu. Hann segir
að það gildi það sama um sig og fólk á
Stór-Reykjavíkursvæðinu, það geri þetta
eins og hann.
„Eg bý mörg hundmð kílómetra frá
Reykjavík, samt bý ég ekki nema í þriggja
kortera fjarlægð frá borginni. Þegar ég geri
t.d. bókakápur fyrir útgáfur eins og
Forlagið og Mál og menningu, þá sendi ég
próförkina beint á tölvunni og svo hringja
þeir og segja álit sitt. Síðan fer það beint í
prentsmiðjuna."
Hvalabók og umbúðaverðlaun
Heimildamyndina klippir Jón Ásgeir
heima í tölvunni og möguleikunum fjölgar
sífellt. Nýtt á hverjum degi. Hann segir að
fluguhnýtingamar og fluguskólinn séu í
raun hvfld frá tölvunni því þar sé hann
mikið.
Jón Ásgeir hefur hannað mikið af
auglýsingum og umbúðum fyrir Kaupfélag
Þingeyinga og fékk umbúðaverðlaun
iðnaðarins árið 1996 fyrir sémmbúðir fyrir
Húsavíkurhangikjöt. Þá er nýkomin út
bók um íslenska hvali sem hann hefur
unnið að ásamt sr. Sigurði Ægissyni og
Jóni Baldri Hlíðberg. Jón segir að
verkefnin komi ekki hlaupandi heldur
þurfi að róa eftir mörgu. Áður gerði hann
auglýsingar fyrir sjónvarp en hefur
minnkað það mikið.
Heimildamynd í samstarfi við Saga Film
„Myndin um Laxá í Áðaldal á að
klárast um miðjan næsta vetur. Það vantar
inn í ákveðin „vetrarskot“ sem komu ekki
í vetur. Ég ætlaði undir ísinn með vélina,
en í þau skipti sem þetta átti að gerast var
svo ofboðslega kalt og rafhlöðumar
kláruðust á þremur kortemm. Svo mistókst
hjá mér að mynda seiðin og þarf að gera
aftur. Mikið af sumarefninu er komið en
enn vantar mikið og það mun ég klára í
sumar. Þá er og eftir að taka vormyndir af
silungsveiðinni o.fl. Einnig heimsækja hitt
og þetta fólk sem tengist ánni og því sem
þar er að gerast.
Myndimar tek ég einn en
meðframleiðandinn er Saga Film.“
Heilbrigt umhverfi
Jón Ásgeir og Guðrún Lilja em liðtæk
í foreldrafélagi Hafralækjarskóla en þar er
verið að setja upp söngleikinn Oliver
Twist. Jón fékk það hlutverk að vinna
auglýsingaskilti með bömunum og tók
leikskrána að sér, en Guðrún aðstoðar við
förðun. Hann segir að í þessari vinnu hafi
vaknað margar spumingar og öll viti
krakkamir hvað tölvur séu. Kannski geri
þau sér grein fyrir þessum möguleika að
búa hér á svæðinu þegar þau hafa sótt sér
menntun hérlendis eða erlendis.
Jón segir að ef eitthvað sé óheilbrigt þá
sé það flutningar fólks til Reykjavíkur sem
sé slæmur fyrir byggðalögin og slæmur
fyrir þjóðarbúið.
Kennari í myndlistarskóla
Jón hefur verið að kenna í
Myndlistarskólanum á Akureyri. Þar
kennir hann í auglýsingadeildinni og fer
kennslan fram í gegnum tölvu.
Nemendumir sitja inn á Akureyri við sín
tæki en Jón við sína tölvu heima í
Staðarhrauni. Jón reynir að skapa alvöm
vinnuumhverfi þar sem nemandinn þarf að
glíma sjálfur við verkefnin og eftir að
verkefnagerð hefur farið fram er farið yfir
þau á netinu. Þetta hefur tekist mjög vel og
ferðir milli Aðaldals og Akureyrar urðu
óþarfar.
Ferðamannafrystihús og gamlar
byggingar
Verkefnin virðast óþrjótandi og alltaf
bætist nýtt við enda er Jón Ásgeir bókaður
langt fram eftir næsta sumri. Hann sá um
hönnun á ferðamannafrystihúsi á Húsavík
í fyrra og teiknaði upp aðstöðu þá þar sem
tekið er á móti þeim. Hann hefur og
teiknað Gamla Bauk að innan sem er hús í
endurbyggingu neðan við Bakkann á
Húsavík. Þá vinnur hann að hugmyndum
um framtíð Gömlu Kaupfélagshúsanna
sem byggð voru í lok síðustu aldar. Svo
vill hann gera safn um sögu Laxár í gömlu
veiðiheimili og auka við safnið á
Grenjaðarstað.
Svona er að hafa gaman af lífinu.
i
X