Bændablaðið - 21.04.1998, Page 19
Þriðjudagur 21. apríl 1998
Bœndablaðið
19
Sláturfélag Suðurlands hélt kynn-
ingarfund í matsal Bændaskólans
á Hvanneyri á dögunum. í upphafi
fundar ávarpaði Páll Lýðsson,
stjórnarformaður SS, fundarmenn
en þá kynnti Steinþór Skúlason
starfsemi félagsins og þá valkosti
sem í boði eru í afurðaviðskiptum.
Fram kom að rekstur SS gekk vel á
liðnu ári. Rekstur félagsins var í
samræmi við rekstaráætlun og
skilaði viðunandi ávöxtun á eigin
fé. í byrjun sumars jók félagið
eigið fé með sölu viðbótarhluta í
B-deild stofnsjóðs. Allir hlutirnir
seldust á fyrsta degi. Þetta útboð
og hagnaður af rekstri jók eigið fé
félagsins um 266 mkr. á milli ára. í
árslok 1997 störfuðu 294 starfs-
menn hjá Sláturfélaginu og er það
fjölgun frá árinu áður, er þeir voru
283. Þegar starfsmenn voru flestir
hjá félaginu í sláturtíð voru 512 á
launaskrá.
Steinþór segir fundarmönnum frá
starfsemi Sláturfélagsins.
Eiríkur Brynjólfsson á Brúarlandi og Guðjón Gíslason á Lækjarbug spáðu
í spilin íbyggnir á svip.
Fundarboð
Umræðufundur um sjávarnytjar jarða verður haldinn á
bókasafni Bændasamtaka íslands í Bændahöllinni
mánudaginn 4. maí nk. og hefst fundurinn kl 14:00
Dagskrá:
*lnngangur: Þáttur hlunninda í landbúnaði.
Ari Teitsson, formaður Bændasamtaka íslands.
*Hver eru hlunnindi sjávarjarða? Stutt yfirlit um þróun nytja.
Árni Snæbjörnsson, hlunnindaráðunautur.
*Hlunnindaréttur jarða.
Lögfræðileg túlkun á rétti landeigenda til að nytja hin óiíkustu
hlunnindi, ásamt túlkun á rétti til bóta þar sem hlunnindi jarða
hafa verið skert með lagasetningu eða opinberum
framkvæmdum.
Tryggvi Gunnarsson, lögfræðingur.
‘Umræður og fyrirspurnir.
Landeigendur og aðrir sem áhuga hafa á efninu eru hvattir til
þess að koma og skýra frá sínum viðhorfum og reynslu og
taka þátt í umræðum um þessi mikilvægu mál.
Bændasamtök íslands
Öflugur söxunarbúnaður
Alfa-laval TP 360 VS haugdæla
Alfg-laval Agri
Fjöjhœf og
öflug haugdœla
Alfa-Laval TP 360 VS haugdælan
Til að nota í grunna sem djúpa kjallara.
Tengd á þrítengibeisli og vökvastrokk ofan á
burðarramma.
Vökvayfirtengi staðalbúnaður.
Breytanlegt horn, 75° - 90° -105°, milli dælu og
burðarramma.
Þekktar fyrir öflugan hræribúnað.
Auðvelt að beina hræristútnum upp og niður og til
beggja hliða.
Þrenging á hræristútnum eykur kraftinn við
upphræringu.
Hræristútur neðarlega, auðveldar notkun í grunnum
fjárhúskjöllurum.
Þarf lítið op, 80 x 80 cm.
Upp í 13.0001/mín við upphræringu og 7.0001/mín
við dælingu á tank.
Byggð á áratuga reynslu Alfa-Laval við smíði á
haugdælum.
Dælan hefur verið prófuð hjá Bútæknideild RALA á
Hvanneyri
Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar
w
C L O B U 5
VELAVERf
Lágmúla 7, 108 Reykjavík
Sími: 588 2600, fax: 588 2601
s
Bændur
Guffen tankdreifarar
GUFFEN GB8 0
Guffen tankdreifararnir eru fáanlegir
með 3-10 þúsund lítra tanki. Tankurinn
er byggður ofan á grind og er belgurinn
úr sérstöku slitsterku stáli með Epoxý
húðun. Formið á tanknum er trektlaga
svo mykjan rennur alltaf fram að dælu.
Dreifibreidd er 13 m. Flotmiklir
hjólbarðar. Dæluþrýstingur er þrjú kg.
G L O B U 5
VELAVERf
Lágmúla 7, 108 Reykjavík
Sími: 588 2600, fax: 588 2601