Bændablaðið - 21.04.1998, Page 25
Þriðjudagur 21. april 1998
Bœndablaðið
25
Danmörk
Tvö stón kalkúnabú
sknrin niður
Fj árvog
Elektrónískur stafaskjár með endur-
hleðslurafhlöðum, hleðslutæki fylgir.
Auðvelt íyrir einn mann að vigta.
Vigtar: 150 kg. (hámark)
Utanmál: 139x72x115 cm
Innanmál: 133x48x83 cm
Þyngd: 58 kg.
Dekk: 8" (þvermál)
Nákvæmni: 0,2% ffávik
Borgartúni 26, Reykjavík
Sími 535 9000
Fax 535 9040
Dagbikli
Fyrir skömmu kom upp alvar-
legur vírussjúkdómur á
tveimur stórum kalkúnabúum
á Sjálandi, Danmörku. í Ijós
kom að um var að ræða hina
s.k. Newcastle veiki (New-
castle disease, NCD), sem er
ein skæðasta vírusfarsótt sem
herjar á alifuglarækt í heimin-
um í dag. Newcastle veikin
hefur nokkur stig sjúkdóms-
einkenna; allt frá minnkandi
eggjaframleiðslu og upp í
mjög háa dánartíðni, allt eftir
því hve alvarlegt smitið er á
hvegum stað.
A Norðurlöndunum er bannað
að bólusetja fugla gegn þessari
veiki og því hefur verið brugðist
ákaflega hart við, er hún hefur náð
að skjóta sér niður. Báðir bæimir
voru því settir umsvifalaust í ein-
angrun og allir kalkúnamir af-
lífaðir, enda hætta á að sjúk-
dómurinn geti breiðst hratt út.
Ekki er vitað hvemig vímsinn
barst á þessa bæi, en vírusinn getur
borist bæði með lifandi fuglum
sem og afurðum þeirra.
Að sögn Yding Sörensen,
starfsmanns Danskra alifuglarækt-
enda, em það mikil vonbrigði fyrir
danska alifuglaræktendur að þessi
farsótt hafi komið upp núna. New-
castle veikin hafi síðast komið upp
fyrir tveimur ámm og þá hafi
reglur verið hertar. Þrátt fyrir
alvarleika ástandsins, telur hann
þó lán í óláni að þar sem veikin
kom upp, liggi ekki margir aðrir
bæir nálægt, svo að von er til þess
að vírusinn berist ekki víðar. Þetta
er alvarlegasta tilfelli af Newcastle
veikinni í Danmörku til þessa.
Þrátt fyrir strangar reglur á
Norðurlöndunum hefur Newcastle
veikin komið upp með reglulegu
millibili. Árið 1996 kom veikin
upp í Noregi, en versta tilfelli
síðara ára á Norðurlöndunum kom
upp í Svíþjóð árið 1995. Þá vom
rúmlega 300.000 fuglar á Skáni af-
lífaðir og rúmlega einni milljón
eggja eytt.
Rétt er að taka það fram að
þrátt fyrir að vímsinn geti smitast
með lifandi fuglum, sem og afurð-
um þeirra, þá stafar mönnum
engin hætta af þessum sjúkdómi.
Strútaeldi á uppleið
Framleiðsla í Danmörku á
strútakjöti er hægt og bítandi að
aukast og í ár verða u.þ.b. 5
þúsund dýr leidd til slátrunar. A
næsta ári er gert ráð fyrir að rúm-
lega 20 þúsund dýr komi til
slátrunar. Við slátmn er miðað við
100 kg. lífþunga og tekur um eitt
ár fyrir strútana að ná slíkri þyngd.
í dag em strútar á 3-400
bæjum, en flestir stunda strútarækt
sem aukabúgrein. Meðalfjöldi
kynbótagripa er um 10 á hverjum
bæ, svo að heildarljöldi er um 3-4
þúsund stykki.
Verð á strútakjöti hefur verið
fallandi á Evrópumarkaði undan-
farið og fæst nú álíka mikið fyrir
það og nautakjöt. Þó hafa hvergi
verið söluvandræði með kjötið,
enda er það bæði með lítið inni-
hald af fitu og kólesteróli - sem
sumum þykir víst eftirsóknarvert.
RALA - erindi
Fræðsluerindi Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins Keldnaholti.
Síðasta erindi vetrarins verður
7. maí kl.10:00. Ólafur G. Arnalds
flytur erindi sem hann nefnir
Sandfok.
Búnaðarsamband Eyjafjarðar
Aðalfundur BSE verður haldinn
þriðjudaginn 28. apríl í Fiðlaranum,
Skipagötu 14, 3. hæð. Fundurinn
hefst kl. 10.
Sauðfjárbændur Eyjafirði
Aðalfundur Félags sauðfjárbænda
yið Eyjafjörð verður haldinn í
íslandsbænum við Blómaskálann
Vin föstudaginn 24. apríl og hefst
fundur kl. 20:30. Gestur fundarins
er Aðalsteinn Jónsson, formaður
Landssamtaka sauðfjárbænda.
Búnaðarsamband S.-Þing.
Aðalfundur Búnaðarsambands S-
Þingeyinga verður haldinn að
Ýdölum föstudaginn 24 apríl og
hefst kl. 10.f.h. Þeir sem vilja leggja
mál fyrir fundinn hafi samband við
Ragnar Þorsteinsson s. 464-3592"
Búnaðarsamband Suðurlands
Aðalfundur Búnaðarsambands
Næstkomandi föstudag kl. 16
verður haldinn stofnfundur fé-
lags eigenda og áhugamanna
um íslensku hænuna. Fundur-
inn verður í fundarsal Rann-
sóknastofnunar landbúnaðar-
ins á Keldnaholti.
Markmið væntanlegs félags er
að stuðla að vemdun og viðhaldi
íslenska hænsnastofnsins og
áframhaldandi útbreiðslu hans sem
víðast um landið.
Suðurlands verður haldinn hinn 30.
apríl í Fossbúð, A.-Eyjafjallahreppi.
Fundurinn hefst kl. 11.
Mánudagserindi
Búvfsindadeildar á Hvanneyri
27. apríl kl. 15:00 flytur Sigurjón
Bláfeld erindi um tilraunir í
loðdýrarækt á Hvanneyri.
Næstu námskeið í
Garðyrkjuskólanum
Bændaskógrækt - skjólbeltarækt.
Námskeiðið verður haldið laugar-
daginn 25. apríl frá kl. 10:00 til
16:00 í Brautarholti á Skeiðum.
Landgræðsla og skógrækt á rýru
landi. Um tvö námskeið verður að
ræða. Það fyrra verður haldið
laugardaginn 9. maí
frá kl. 09:00 til 17:00 í húsnæði
Landgræðslusjóðs, Suðurhlíð 38 (
Reykjavík. Ekki er búið að
tímasetja seinna námskeiðið en
það verður haldið
í Gunnarsholti á Rangárvöllum.
Tilkynningar í dagbók óskast
sendar blaðinu ekki síðar en á
hádegi fimmtudag fyrir útkomu
blaðsins. Faxið er 552 3855 og
netfang ath@bi.bondi.is
Á fundinum verða kynntar
niðurstöður könnunar á stofnstærð
og dreifingu íslenska hænsna-
stofnsins. Þá verða kynnt drög að
lögum félagsins; þau rædd og af-
greidd. Kosin verður stjóm og
varastjóm og að lokum efnt til
almennra umræðna.
Áhugasamir, sem ekki komast
á fundinn, em hvattir til að hafa
samband við Hallgrím Sv. Sveins-
son á Rala í síma 557 1010.
Flutningskassar
Hjólakvíslar
G. SKAPTASON & CO.
SÍMI 577 2770
TUNGUHÁLSI 5
REYKJAVÍK
Orðsending til bænda,
búnaðarsambanda og dýralækna
vegna flutnings á líffé milli
varnarhólfa haustið 1998
(geymið þessa auglýsingu)
Bændur, sem vilja kaupa líflömb vegna fjárskipta á komandi hausti
þurfa að senda yfirdýralækni skriflega pöntun fyrir 31. júlí 1998. Þeir
koma einir til greina, sem fengið hafa úttektarvottorð héraðsdýra-
læknis um að lokið sé fullnaðarsótthreinsun og frágangi húsa, um-
hverfis og annars, sem sótthreinsa átti. Ákveðið hefur verið að bæta
við sótthreinsun og maurahreinsun. Merkingarskylda verður á
nýjum stofni.
Sami frestur gildir fyrir þá, sem óska þess að fá keypt hrútlömb til
kynbóta á ósýktum svæðum vegna vandkvæða á að nota sæðingar
eða vegna arrarra gildra ástæðna. Þeir skulu fá umsögn héraðs-
dýralæknis um það efni og senda pöntun sína með milligöngu við-
komandi búnaðarsambands.
Að gefnu tilefni er áréttað, að flutningur á sauðfé og geitum milli
varnarhólfa (yfir varnarlínur) er stranglega bannaður án leyfis yfir-
dýralæknis.
Á svæðum þar sem riðuveiki eða aðrir alvarlegir smitsjúkdómar
gætu leynst er varað við allri fjárverslun þ.m.t. kaupum og sölu á líf-
hrútum milli bæja. Héraðsdýralæknir gefur nánari upplýsingar um
heilbrigðisástand í sínu umdæmi.
Umsóknum verður svarað fyrir ágústlok. Leyfi ræðst af heilsufari
fjár á sölusvæðinu, þegar kemur að flutningi hverju sinni.
Embætti yfirdýralæknis
Sölvhólsgötu 7,150 Reykjavík
Sími: 5609750-56-9075
Stofnfundur felags eigenda og
áhugamanna um íslensku hænuna